Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2004, Page 69

Læknablaðið - 15.02.2004, Page 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SÁTTMÁLI UM FAGMENNSKU Skuldbinding til að vinna að réttlátrí dreifingu á þjón- ustu sem er takmörkunum háð Jafnframt því að sinna þörfum einstakra sjúklinga er þess krafist af læknum að þeir veiti þjónustu sem byggir á skynsamlegri og hagkvæmri stýringu á klín- ískum þjónustuþáttum sem takmarkað framboð er á. Þeir ættu að leggja sig fram um að vinna með öðrum læknum, sjúkrahúsum og greiðendum þjónustunnar að þróun leiðbeininga sem stuðla að hagkvæmri þjónustu. Fagleg ábyrgð lækna á að þjónustan sé skynsamleg og við hæfi krefst þess að sneitt sé hjá óhóflegum rannsóknum og aðgerðum. Þarflaus þjón- usta eykur ekki einungis líkur á mögulegum skaða og óþörfum útgjöldum, heldur leiðir hún til minna framboðs á þjónustu öðrum til handa. Skuldbinding gagnvart vísindalegrí þekkingu Samskipti lækna við samfélagið byggja að miklu leyti á heiðarleika og viðeigandi notkun vísindalegrar þekkingar og tækni. Læknum ber skylda til að halda uppi vísindalegum stöðlum, stuðla að vísindarann- sóknum og sköpun nýrrar þekkingar og tryggja við- eigandi notkun hennar. Stéttin ber ábyrgð á sann- leiksgildi þessarar þekkingar sem er byggð á vísinda- legum grunni og reynslu lækna. Skuldbinding til að viðlialda trausti með því að takast á við hagsmunaárekstra Læknar og fagfélög þeirra standa oft frammi fyrir hættu á að rýra faglega ábyrgð með því að sækjast eftir einkahagnaði og persónulegum ávinningi. Sér- stök hætta er á slíkum skaða í samskiptum einstak- linga eða félagasamtaka við fyrirtæki sem rekin eru í hagnaðarskyni, svo sem framleiðendur lækninga- tækja, tryggingafyrirtæki og lyfjafyrirtæki. Læknum ber skylda til að átta sig á og gera opinberlega grein fyrir og takast á við hagsmunaárekstra sem koma upp í tengslum við faglegar skyldur þeirra og störf. Samband milli fyrirtækja og áhrifamanna í lækna- stétt á að gera opinbert, sérstaklega þegar þeir síðar- nefndu ákveða skilmerki fyrir framkvæmd og birt- ingu klínískra rannsókna, skrifa ritstjórnargreinar ell- egar meðferðarleiðbeiningar, eða gegna stöðu rit- stjóra vísindatímarita. Skuldbinding til að bera faglega ábyrgð Til þess er ætlast af læknum að þeir hafi samvinnu um að tryggja að þjónusta við sjúklinga sé eins góð og kostur er. Enn fremur að þeir beri virðingu hver fyrir öðrum og taki þátt í innra eftirliti, þar á meðal að beita viðurlögum gegn starfsbræðrum sem standast ekki faglegar kröfur ásamt því að sinna endurmennt- un þeirra. Læknastéttin ætti að skilgreina og skipu- leggja menntun og gæðastaðla fyrir núverandi og verðandi lækna. Læknum ber skylda til þess að taka þátt í þessu ferli. í þeirri skyldu felst meðal annars að taka þátt í innra mati og gangast undir utanaðkom- andi skoðun á öllum þáttum faglegrar frammistöðu. Samantekt Nú á tímum stendur læknisfræðin frammi fyrir fjöl- mörgum áður óþekktum áskorunum í nánast öllum menningarheimum og þjóðfélögum heimsins. Af þessum áskorunum ber hæst vaxandi misræmi milli réttmætra þarfa sjúklinga og þjónustuþátta sem eru fyrir hendi til að mæta þessum þörfum, vaxandi áhrif markaðsafla við umbreytingu heilbrigðiskerfa og sú freisting fyrir lækna að láta virðingu fyrir því að hags- munir sjúklingsins séu í fyrirrúmi víkja. Til að viðhalda trúnaði í samskiplum lækna og sam- félagsins á þessum umbrotatímum álítum við að lækn- ar verði að leggja áherslu á skyldu sína við grundvall- arþætti fagmennskunnar sem á bæði við um persónu- legar skyldur þeirra gagnvart velferð sjúklinga sem og sameiginlegt framtak til að bæta heilbrigðiskerfið með aukna velferð samfélagsins að leiðarljósi. Þessum „Sáttmála um fagmennsku í læknisfræði“ er ætlað að hvetja til slíkrar helgunar og stuðla að frekari vexti og framþróun læknisfræðinnar sem faggreinar. Þátttakendur í verkefninu „Fagmennska í læknisfræöi" ABIM Foundation:Troy Brennan, MD, JD (verkefnisstjóri), Brigham and Women's . Hospital, Boston, Massachusetts, Bandaríkjunum; Linda Blank (starfsmaöur verk- efnis), ABIM Foundation, Philadelphia, Pennsylvania, Bandaríkjunum; Jordan Cohen, MD, Association of American Medical Colleges, Washington, DC, Banda- ríkjunum; Harry Kimball, MD, American Board of Internal Medicine, Philadelphia, Pennsylvania, Bandaríkjunum og Neil Smelser, PhD, University of California, Berkeley, Califomia, Bandaríkjunum. ACP-ASIM Foundation: Robert Copeland, MD, Southern Cardiopulmonary Associ- ates, La Grange, Georgia, Bandaríkjunum; Risa Lavizzo-Mourey, MD, MBA, Robert Wood Johnson Foundation, Princeton, New Jersey, Bandaríkjunum og Walter McDonald, MD, American College of Physicians-American Society of Intemal Medicine, Philadelphia, Pennsylvania, Bandaríkjunum. European Federation of Internal Medicine: Gunilla Brenning, MD, University Hospital, Uppsölum, Svíþjóö; Christopher Davidson, MD, FRCP, FESC, Royal Sussex County Hospital, Brighton, Englandi; Philippe Jaeger, MB, MD, Centre Hospitalier Universitaire Vaudois, Lausanne, Sviss; Alberto Malliani, MD, Universitá di Milano, Mílanó, Ítalíu; Hein Muller, MD, PhD, Ziekenhuis Gooi-Noord, Rijksstraatweg, Hollandi; Daniel Sereni, MD, Höpital Saint-Louis, París, Frakklandi og Eugene Sutorius, JD, Faculteit der Rechts Geleerdheid, Amsterdam, Hollandi. Sérlegir ráðgjafar: Richard Cruess, MD, og Sylvia Cruess, MD, McGill University, Montreal, Kanada, og Jaime Merino, MD, Universidad Miguel Hernández, San Juan de Alicante, Spáni. Læknablaðið 2003/89 165

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.