Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2004, Page 31

Læknablaðið - 15.02.2004, Page 31
FRÆÐIGREINAR / VISTUNARMAT ALDRAÐRA Gott samræmi var milli heildarstiga úr vistunar- mati og huglægs mats matshópsins og styrkir það for- spárgildi vistunarmatsins um þörf fyrir vistun. Margir þættir hafa fundist sem spá fyrir um vistun á hjúkr- unarheimili. Helstu félagslegu þættirnir eru: að vera ógiftur (7), lítil samskipti við fjölskyldu (8), lélegt sjálfsmat (9). Aðrir spáþættir vistunar í hjúkrunar- rými eru meðal annars hár aldur (7), skerðing á vits- munum (7), færniskerðing (10) og kvenkyn (3). Skoðað var sérstaklega hvort aldraðir, sem fluttu úr þjónusturými yfir í hjúkrunarrými, væru að meðal- tali með færri stig en þeir sem voru með fullt mat. Meðalstig þeirra sem fluttu voru nánast þau sömu og Tafla V. Samantekt um vistanir eftir sveitarfélögum. Sveitarfélag/ Svæöi Meöalaldur viö vistun Félagslegar aöstæöur Líkamlegt atgervi Andlegt atgervi Færni Meöalstig viö vistun Reykjavík Karlar Konur 82,6 ± 0,5 84,4 ± 0,4 20,6 ±0,7 20,5 ± 0,5 10,8 ± 0,3 10,7 ± 0,3 8,3 ±0,3 8,8 ± 0,3 15,9 ± 0,7 15,4 ± 0,5 55,7 ± 1,3 55,5 ± 1,0 Nágrenni Reykjavíkur Karlar Konur 82.9 ± 0,9 83.9 ±0,7 21,1 ± 1,0 21,2 ± 0,8 11,8 ± 0,8 11,7 ± 0,6 8,3 ±0,7 9,0 ± 0,6 15,8 ± 1,3 13,3 ± 1,6 57,0 ± 2,8 55,3 ± 2,2 Akureyri Karlar Konur 83.7 ± 1,5 84.7 ± 1,1 18,8 ± 1,1 18,7 ± 1,0 13,5 ± 0,8 12,4 ±0,7 11,5 ± 1,1 12,3 ± 1,1 19,7 ± 1,9 17,2 ± 1,5 63.5 ± 3,0 60.6 ± 2,8 Mynd 5. Lifun í hjúkrun- arrými eftir hjúkrunar- heimilum. hinna og má því álykta að sömu kröfur séu gerðar til þeirra sem fluttu á hærra þjónustustig innan stofnun- ar og þeirra sem fluttu heiman frá sér. Sumir þeirra sem fluttu heiman frá sér komu við á spítala áður en þeir vistuðust. Þegar skoðuð voru afdrif fólks eftir vistunarmat kom fram að tiltölulega hátt hlutfall aldraða dó á fyrsta árinu eftir mat án þess að komast á hjúkrunar- heimili og á það sérstaklega við um karla en um 22% karla dóu á fyrsta árinu á biðlistanum en hlutfallið fyrir konur var 14%. Borin voru saman heildarstig þeirra sem vistuðust fyrst tvo mánuðina eftir vistunarmat og heildarstig þeirra sem dóu fyrstu tvo mánuðina eftir vistunar- mat. Ekki þarf að koma á óvart að þeir sem dóu fyrstu tvo mánuðina voru aldraðir með há stig úr vist- unarmatinu. Sama staða var uppi þegar þeir sem vist- uðust á þriðja til áttunda mánuði voru bornir saman við þá sem dóu án þess að vistast á þriðja til áttunda mánuði. Þeir sem biðu enn eftir átta mánuði voru með lægstu stigin úr vistunarmati og verður það að teljast eðlilegt. Mikilvægt er að sem flestir sem eru í þörf fyrir vistun eigi kost á því að vistast. Bætt for- gangsröðun inn á hjúkrunarheimili þar sem veikasta fólkið hefði forgang á vistun myndi leiða til lægri meðaldvalartíma á hjúkrunarheimilum og gefa þann- ig fleirum kost á vistun. Þetta væri hægt að gera með því að nota spáþætti lifunar og setja þá í forgang sem eiga skemmst eftir ólifað samkvæmt þeim. Það væri í Biö (dagar) 400-i 300 1 T Reykjavík Kc Karlar 219 Konur 290 □ Karlar li pavogur Gar 235 188 □ Konur ÉjtJi öabær Hafnarfjöröur Akureyri L88 113 197 219 166 175 Mynd 6. Meðalbiðtími vistaðra eftir vistun í hjúkrunarrýmum. Biö (dagar) ö-i 4- 2' □ Karlar □ Konur Reykjavík Nágrenni Reykjavíkur Akureyri Karlar 2,5 2,9 2,2 Konur 3,1 3,9 3,5 senn siðferðilega sanngjarnt gagnvart hinum öldruðu og fjárhagslega hagkvæmt fyrir samfélagið. Það kæmi einnig til álita að endurskilgreina stig þarfar út frá hlutlægum skilmerkjum sem lýstu samspili aldurs og Mynd 7. Lifun í hjúkrun- arrými eftir stofnunum sveitarfélaga. Læknablaðið 2004/90 127

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.