Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 87
STYRKIR / ÞING
Rannsóknarstyrkur úr
Minningarsjóði Bergþóru
Magnúsdóttur og Jakobs
J. Bjarnasonar
Ákveðið hefur verið að auglýsa til umsóknar styrki úr
ofangreindum sjóði.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans:
1. Að styrkja kaup á lækninga- og rannsókna-
tækjum til sjúkrastofnana.
2. Að veita vísindamönnum í læknisfræði styrki til
framhaldsnáms eða sjálfstæðra vísindaiðkana.
Rannsóknir á krabbameinssjúkdómum sitja að jafn-
aði fyrir um styrkveitingar.
Umsóknum, ásamt ítarlegri greinargerð, skal skilað
til Landlæknisembættisins, Austurströnd 5,170 Sel-
tjarnarnesi, fyrir 1. mars 2004.
Gert er ráð fyrir að úthlutun verði lokið fyrir endaðan
maí 2004.
Sjóðsstjórn
Ársþing
Skurðlæknafélags íslands
og Svæfinga- og gjörgæslu-
læknafélags íslands
verður haldið á Nordica hóteli 14. og 15. maí 2004 (föstudag og laugardag). Á þinginu verða meðal annars flutt
erindi og kynnt veggspjöld. Nánari dagskrá auglýst síðar.
Ágrip erinda skulu berast fyrir 15. mars til Margrétar Aðalsteinsdóttur hjá Fræðslustofnun lækna, með tölvupósti
eða á disklingi.
Þau ágrip sem vísindanefnd félaganna samþykkir til flutnings á þinginu verða birt í Læknablaðinu. Vísindanefnd
áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum og einnig rétt til að hafna ágripum til flutnings en samþykkja þau í
formi veggspjalds. Höfundar geti þess hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald. Ágrip skulu
skrifuð á íslensku. Hámarkslengd ágripa er 1800 letureiningar. Nafn flytjanda skal feitletrað.
Við ritun ágripa skulu eftirtalin atriði koma fram í þeirri röð sem hér segir:
• Titill ágrips, nöfn og vinnustaður höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir.
Nánari upplýsingar um þingið veita: Helgi H. Sigurðsson, Landspítala Fossvogi og Felix Valsson, Landspítala
Hringbraut.
Ritari þingsins er Margrét Aðalsteinsdóttir hjá Fræðslustofnun lækna, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, sími: 564
4108, bréfasími: 564 4106, magga@lis.is
AstraZeneca
dagur
6. mars 2004
Árlegur fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna
haldinn á Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars.
Öldrunarlæknar einnig hjartanlega velkomnir.
Dagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og Astra-
Zeneca.
Dagskráin hefst kl. 9:00 með tveggja klukku-
stunda almennum fundi. Að því loknu verður
tvíþætt samhliða dagskrá fram að almennum
fundi milli kl. 16:00 og 17:00.
Nánari dagskrá mun verða send læknum sérstak-
lega.
Fræðslunefnd FÍH AstraZeneca
Læknablaðið 2004/90 183