Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR / VISTUNARMAT ALDRAÐRA urlöndum og hefur það leitt til skilvirkari útskriftar aldraðra af sjúkrahúsum eftir að sérhæfðri þjónustu þar er lokið (16). Nú er það verulegt vandamál bæði faglega og fjárhagslega, sérstaklega á Landspítala, hversu lengi aldraðir þurfa að bíða eftir tilfærslu á annað umönnunarstig, hvort heldur það er á stofnun eða í heimahúsi. Því hefur verið haldið fram að með því að leggja meiri fjármuni í félagslega heimaþjónustu og heima- hjúkrun sé hægt að minnka kostnað vegna dýrari úr- ræða eins og vistunar í hjúkrunarrými og minnka þannig heildarkostnað við umönnun aldraða. í Bandaríkjunum var þetta kannað en útkoman olli vonbrigðum þar sem kostnaður jókst (17-19). Ein lfk- legasta skýringin á kostnaðaraukningunni var talin sú að flestir þeirra sem nutu heimaþjónustu voru ekki í þörf fyrir vistun í hjúkrunarrými (17) og fjölgaði þannig í hópnum sem naut aðstoðar frá yfirvöldum. Hugsanlega mætti draga úr líkum á kostnaðarauka við heimaþjónustu með upptöku heimaþjónustumats sambærilegu við vistunarmatið. Ef til vill mætti styðj- ast við RAI hjúkrunarmatið en notagildi þess hefur verið forprófað hér á landi (20). Þótt það hafi ef til vill kostnaðarauka í för með sér fyrir ríkið að auka við heimaþjónustuna frekar en stofnanaþjónustu þá er óumdeilt að þorri aldraða vill frekar fá aðstoð heima í stað þess að vistast á stofnun og aukast því lífsgæði aldraðra við að bæta heimaþjónustuna. Einn- ig lækkar ómældur kostnaður aðstandenda við það að auka heimaþjónustu því að með henni fá þeir meira svigrúm til annarra athafna, þar á meðal vinnu, en margir hverjir þurftu að draga úr henni í kjölfar veikinda nákomins aldraðs ættingja. Einn helsti styrkleiki rannsóknarinnar er hinn stóri rannsóknarhópur og það að hópurinn er laus við valskekkju þar sem allir sem höfðu undirgengist vist- unarmat á viðkomandi svæðum eru hafðir með í rannsókninni. Annar styrkleiki er að gögn vistunar- matsins ná yfir 10 ára tímabil. Áreiðanleiki vistunar- matsins er líklega mestur í Reykjavík, þar sem flest möt eru framkvæmd, og var því stuðst við vistunar- möt í Reykjavík við mat á lifun. Tíu ára uppgjör vistunarmatsins er um margt upp- lýsandi. I fyrsta lagi má segja að gildi vistunarmatsins sé staðfest með því sterka og rökrétta samhengi sem sést milli stigagjafar og lifunar. I öðru lagi opnar þessi greining möguleika á því að skilgreina stig þarfar (þörf, brýn þörf, mjög brýn þörf) út frá samspili ald- urs og stiga að frátöldum félagslegum stigum. í þriðja lagi mætti koma ákveðnum ábendingum til stofnana um að hafa inntöku í nánara samræmi við niðurstöð- ur vistunarmats. í fjórða lagi sýnir munur á lifun á hjúkrunarheimilum í Bandaríkjunum og á Islandi að finna þarf leiðir til að stilla betur saman samfélags- þjónustuna og styrkja hana þannig að hún geti ekki aðeins sinnt almennri heimaþjónustu heldur einnig sérhæfðari heimaþjónustu í ríkari mæli en nú er. í framhaldi af þessi rannsók væri áhugavert að kanna tengsl vistunarmatsins við RAI matið á hjúkrunar- heimilum með tillili til hjúkrunarþyngdar. Þakkarorö Hrafni Pálssyni eru veittar sérstakar þakkir fyrir að gera þetta verkefni mögulegt. Einnig eru Hermanni Bjarnasyni og Oddnýju Vestmann í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, Sigríði Vilhjálmsdóttur hjá SKÝRR, Ólafi Oddssyni og riturum á Landakoti færðar bestu þakkir fyrir hjálpina. Heimildir 1. Kassner E, Joanna M. Decisions, decisions: Service allocation in home and community-based long-term care programs. A four-state analysis. Washington DC, Public policy institute, 1996. 2. Jónsson PV, Björnsson S. Mat á vistunarþörf aldraðra. Lækna- blaðið 1991; 77:313-7. 3. Jóhannesdóttir GB, Jónsson PV. Vistunarmat aldraðra í Reykjavík 1992. Læknablaðið 1995; 81: 233-41. 4. O'Keeffe J. Determining the need for long-term care services: An analysis of health and functional eligibility criteria in medicaid home and community-based waiver program. Wash- ington DC, Public policy institute, 1996. 5. Reglugerð um vistunarmat aldraðra. Stjórnartíðindi B deild. 1995; 660. 6. Norusis MJ. Spss 11.0 guide to data analysis. New Jersey: Prentice Hall inc.; 2002. 7. Lee T, Kovner CT, Mezey MD, Ko IS. Factors influencing long-term home care utilization by the older population: Implications for targeting. Public Health Nurs 2001; 18: 443-9. 8. Osterweil D, Martin M, Syndulko K. Predictors of skilled nursing placement in a multilevel long-term-care facility. J Am Geriatr Soc 1995; 43:108-12. 9. Freedman VA. Family structure and the risk of nursing home admission. J Gerontol B Psychol Sci Soc Sci 1996; 51: S61-9. 10. Smith GE, O'Brien PC, Ivnik RJ, Kokmen E, Tangalos EG. Prospective analysis of risk factors for nursing home place- ment of dementia patients. Neurology 2001; 57:1467-73. 11. Saliba D, Schnelle JF. Indicators of the quality of nursing home residential care. J Am Geriatr Soc 2002; 50:1421-30. 12. Ólafsson L, Ólafsdóttir, Hjaltadóttir I, Jónsson PV, Þórhalls- dóttir L. Sérhæfð heimaþjónusta Heilsugæslu í Reykjavík, Fé- lagsþjónustunnar í Reykjavík og öldrunarsviðs LSH, handrit, 2002:1-6. 13. Corrado OJ. Hospital-at-home. Age Ageing 2001; 30 Suppl 3: 11-4 14. Burton LC, Leff B, Harper M, Ghoshtagore I, Steinwachs DA, Greenough WB, 3rd, al e. Acceptability to patients of a home hospital. J Am Geriatr Soc 1998; 46: 605-9. 15. Guðmundsdóttir H. Óformlegur og formlegur stuðningur sem langlífir íslendingar sem búa á eigin heimilum njóta með hlið- sjón af fæmi. Hjúkrunarfræðideild 2003:107. 16. Sletvold O, Tilvis R, Jonsson A, Schroll M, Snaedal J, Engedal K, et. al. Geriatric work-up in the nordic countries. The nordic approach to comprehensive geriatric assessment. Dan Med Bull 1996; 43: 350-9. 17. Weissert W, Chemew M, Hirth R. Titrating versus targeting home care services to frail elderly clients: An application of agency theory and cost-benefít analysis to home care policy. J Aging Health 2003; 15: 99-123. 18. Weissert WG, Cready CM, Pawelak JE. The past and future of home- and community-based long-term care. Milbank Q 1988; 66: 30988. 19. Weissert WG, Hedrick SC. Lessons learned from research on effects of community-based long-term care. J Am Geriatr Soc 1994; 42: 348-53. 20. Jónsson PV, Guðmundsdóttir H, Friðbjörnsdóttir F, Haralds- dóttir M, Ólafsdóttir, Jensdóttir AB, et al. Heilsufar, hjúkrun- arþörf og lífsgæði aldraðra sem nutu heimaþjónustu heilsu- gæslunnar 1997. Læknablaðið 2003; 89: 313-8. Læknablaðið 2004/90 129
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.