Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 7
RITST JQRIUARGREIfUAR Læknablaðið á netinu Læknablaðið hefur vaxið, eflst og dafnað að visku, þroska og getu einsog vera ber á þeim 90 árum sem það hefur verið gefið út. Þessi aldur er sannarlega virðulegur en blaðið hefur líka kappkostað að fylgja tíðarandanum hverju sinni og árið 2004 er blaðið sterkur fjölmiðill sem dagblöð og ljósvakafjölmiðlar vitna til, einkum hvað varðar nýjar íslenskar rann- sóknir og fræðilegt efni. Þar eru meðal annars til um- fjöllunar sjúkdómar sem áður voru taldir afar sjald- gæfir en sem nú er hægt að meðhöndla á nýjan og ár- angursríkan hátt, og er hér í þessu tilviki átt við lungnaslagæðaháþrýsting. Nýgengi sjúkdómsins er mjög lágt, um eitt til tvö tilfelli á milljón íbúa á ári, en í síðasta tölublaði Læknablaðsins á árinu 2003 var sagt frá þremur mjög nýlegum tilfellum sjúkdómsins á Islandi. Skýringanna getur verið að leita í meiri þekkingu lækna, betri greiningartækni og nýjum meðferðarúrræðum, og eru þetta ánægjulegar fréttir þótt sumir myndu kalla þetta sjúkdómsvæðingu. Utgáfa Læknablaðsins á netinu www.laeknablad- id.is er um það bil tveggja ára um þessar mundir. Þar birtist nýtt tölublað um hver mánaðamót og er alla jafna nokkrum dögum fyrr á ferðinni en pappírsútgáf- an. AUir árgangar blaðsins frá og með árinu 2000 eru nú á netinu ásamt þeim fylgiritum sem gefin hafa ver- ið út á árabilinu 2000-2003. Lestur og heimsóknir í netútgáfuna hafa aukist jafnt og þétt allt frá upphafi en þó má greina árstíðasveiflu í því sem öðru. í hverj- um mánuði líta fleiri í Læknablaðið á netinu heldur en nemur áskrifendum að pappírsútgáfunni og margir glugga í netútgáfuna oftar en einu sinni á mánuðinum. Svo virðist sem fylgirit með ráðstefnum og dagskrá Læknadaganna dragi fleiri lesendur á netið og fylgja þessu toppar þar sem nær þrjú þúsund gestir með yfir fjögur þúsund heimsóknir eru í ákveðnum mánuðum. Minnst er netútgáfan lesin á laugardögum en mest á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Mest er netblaðið heimsótt af íslendingum og umfangið af því sem gestir vilja opna er langmest hjá íslenskum gestum. Erlendir gestir eru hvaðanæva úr heiminum en flestir frá Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu. Leitarvélin sem fylgir netútgáfunni er bæði öflug og þægileg. Hægt er að leita eftir höfundum, titlum greina, lykilorðum eða hvaða orði sem er en að sjálf- sögðu einungis í þeim árgöngum sem birst hafa á net- inu eða frá árinu 2000. Einnig er hægt að slá upp efn- isyfirlitum í eldri tölublöðum. Oft er leitað til rit- stjórnar Læknablaðsins eftir upplýsingum um efni og skrif í eldri blöð og árganga og er þá flett upp í papp- írseintökum af efnisyfirlitum en einnig er hægt að leita í www.gegnir.is sem er bókasafnskerfi Lands- bókasafns. Þar er hægt að leita eftir höfundum, titlum og efnisorðum. Þótt Læknablaðið sé nú búið að koma sér vel fyrir á netinu þýðir það ekki að pappírsútgáfan hætti að koma í nánustu framtíð. Það eru enn margir áskrif- endur Læknablaðsins sem aldrei hafa farið inn á net- útgáfuna. Þannig að pappírsútgáfan er alls ekki á út- leið og sennilegt er að þessi tvö útgáfuform munu lifa hlið við hlið um langan aldur. Utgáfurnar bæta hvor aðra og henta mismunandi allt eftir aðstæðum og til- gangi notkunar. Pappírsútgáfan gefur betri yfirsýn yfir efni og umfang blaðsins, hún er alltaf til staðar, hvorki rafmagnsleysi né vírusar geta hamlað lestri hennar. Netútgáfan er afar heppileg til leitar og upp munu vaxa kynslóðir lækna og annarra lesenda sem nær eingöngu lesa texta af tölvuskjám. A afmælisári blaðsins þótti rétt að yfirfara viðmót blaðsins á netinu einsog það heitir á tölvumáli, leysa úr hnökrum og stytta aðgerðaleiðir og bæta við nýj- um efnisatriðum. Eftir þessa tiltekt mun möguleikinn til að leita í blaðinu birtast á hverri síðu, jafnframt verður upphafssíða blaðsins, með efnisyfirliti nýjasta blaðsins, enn meira efnislega sundurgreind en áður var. Hægt verður að senda efni beint úr blaðinu á net- fang einhvers væntanlegs lesanda, hægt verður að skrifa athugasemd við hverja grein og fá að Iesa þær athugasemdir sem aðrir lesendur hafa gert við grein- ar. Það síðastnefnda er liður í því sjálfsagða markmiði Læknablaðsins sem það hefur fylgt frá 1915 og allt fram á tíræðisaldurinn, - en það er að ná til lesenda sinna. Vilhjálmur Rafnsson Védís Skarp- héðinsdóttir Vilhjálmur er prófessor í heilbrigðisfræði við Háskóla íslands og ábyrgðarmaður Læknablaðsins. Védís er ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins. Læknablaöiö á netinu. Á árinu 2002 var hafist handa um að koma öllu efni Lœknablaðsins frá því í ársbyrjun 2000 á heimasíðu blaðsins. í lok janúar 2003 var byrjað að mœla heimsóknir á síojina og má sjá þróun þeirra alltfram til 28. janúar á þessu ári í súluritinu. Læknablaðið 2004/90 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.