Læknablaðið - 15.02.2004, Page 7
RITST JQRIUARGREIfUAR
Læknablaðið á netinu
Læknablaðið hefur vaxið, eflst og dafnað að visku,
þroska og getu einsog vera ber á þeim 90 árum sem
það hefur verið gefið út. Þessi aldur er sannarlega
virðulegur en blaðið hefur líka kappkostað að fylgja
tíðarandanum hverju sinni og árið 2004 er blaðið
sterkur fjölmiðill sem dagblöð og ljósvakafjölmiðlar
vitna til, einkum hvað varðar nýjar íslenskar rann-
sóknir og fræðilegt efni. Þar eru meðal annars til um-
fjöllunar sjúkdómar sem áður voru taldir afar sjald-
gæfir en sem nú er hægt að meðhöndla á nýjan og ár-
angursríkan hátt, og er hér í þessu tilviki átt við
lungnaslagæðaháþrýsting. Nýgengi sjúkdómsins er
mjög lágt, um eitt til tvö tilfelli á milljón íbúa á ári, en
í síðasta tölublaði Læknablaðsins á árinu 2003 var
sagt frá þremur mjög nýlegum tilfellum sjúkdómsins
á Islandi. Skýringanna getur verið að leita í meiri
þekkingu lækna, betri greiningartækni og nýjum
meðferðarúrræðum, og eru þetta ánægjulegar fréttir
þótt sumir myndu kalla þetta sjúkdómsvæðingu.
Utgáfa Læknablaðsins á netinu www.laeknablad-
id.is er um það bil tveggja ára um þessar mundir. Þar
birtist nýtt tölublað um hver mánaðamót og er alla
jafna nokkrum dögum fyrr á ferðinni en pappírsútgáf-
an. AUir árgangar blaðsins frá og með árinu 2000 eru
nú á netinu ásamt þeim fylgiritum sem gefin hafa ver-
ið út á árabilinu 2000-2003. Lestur og heimsóknir í
netútgáfuna hafa aukist jafnt og þétt allt frá upphafi
en þó má greina árstíðasveiflu í því sem öðru. í hverj-
um mánuði líta fleiri í Læknablaðið á netinu heldur en
nemur áskrifendum að pappírsútgáfunni og margir
glugga í netútgáfuna oftar en einu sinni á mánuðinum.
Svo virðist sem fylgirit með ráðstefnum og dagskrá
Læknadaganna dragi fleiri lesendur á netið og fylgja
þessu toppar þar sem nær þrjú þúsund gestir með yfir
fjögur þúsund heimsóknir eru í ákveðnum mánuðum.
Minnst er netútgáfan lesin á laugardögum en mest á
mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Mest
er netblaðið heimsótt af íslendingum og umfangið af
því sem gestir vilja opna er langmest hjá íslenskum
gestum. Erlendir gestir eru hvaðanæva úr heiminum
en flestir frá Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu.
Leitarvélin sem fylgir netútgáfunni er bæði öflug
og þægileg. Hægt er að leita eftir höfundum, titlum
greina, lykilorðum eða hvaða orði sem er en að sjálf-
sögðu einungis í þeim árgöngum sem birst hafa á net-
inu eða frá árinu 2000. Einnig er hægt að slá upp efn-
isyfirlitum í eldri tölublöðum. Oft er leitað til rit-
stjórnar Læknablaðsins eftir upplýsingum um efni og
skrif í eldri blöð og árganga og er þá flett upp í papp-
írseintökum af efnisyfirlitum en einnig er hægt að
leita í www.gegnir.is sem er bókasafnskerfi Lands-
bókasafns. Þar er hægt að leita eftir höfundum, titlum
og efnisorðum.
Þótt Læknablaðið sé nú búið að koma sér vel fyrir
á netinu þýðir það ekki að pappírsútgáfan hætti að
koma í nánustu framtíð. Það eru enn margir áskrif-
endur Læknablaðsins sem aldrei hafa farið inn á net-
útgáfuna. Þannig að pappírsútgáfan er alls ekki á út-
leið og sennilegt er að þessi tvö útgáfuform munu lifa
hlið við hlið um langan aldur. Utgáfurnar bæta hvor
aðra og henta mismunandi allt eftir aðstæðum og til-
gangi notkunar. Pappírsútgáfan gefur betri yfirsýn
yfir efni og umfang blaðsins, hún er alltaf til staðar,
hvorki rafmagnsleysi né vírusar geta hamlað lestri
hennar. Netútgáfan er afar heppileg til leitar og upp
munu vaxa kynslóðir lækna og annarra lesenda sem
nær eingöngu lesa texta af tölvuskjám.
A afmælisári blaðsins þótti rétt að yfirfara viðmót
blaðsins á netinu einsog það heitir á tölvumáli, leysa
úr hnökrum og stytta aðgerðaleiðir og bæta við nýj-
um efnisatriðum. Eftir þessa tiltekt mun möguleikinn
til að leita í blaðinu birtast á hverri síðu, jafnframt
verður upphafssíða blaðsins, með efnisyfirliti nýjasta
blaðsins, enn meira efnislega sundurgreind en áður
var. Hægt verður að senda efni beint úr blaðinu á net-
fang einhvers væntanlegs lesanda, hægt verður að
skrifa athugasemd við hverja grein og fá að Iesa þær
athugasemdir sem aðrir lesendur hafa gert við grein-
ar. Það síðastnefnda er liður í því sjálfsagða markmiði
Læknablaðsins sem það hefur fylgt frá 1915 og allt
fram á tíræðisaldurinn, - en það er að ná til lesenda
sinna.
Vilhjálmur
Rafnsson
Védís Skarp-
héðinsdóttir
Vilhjálmur er prófessor í
heilbrigðisfræði við Háskóla
íslands og ábyrgðarmaður
Læknablaðsins.
Védís er ritstjórnarfulltrúi
Læknablaðsins.
Læknablaöiö á netinu. Á árinu 2002 var hafist handa um að koma öllu efni
Lœknablaðsins frá því í ársbyrjun 2000 á heimasíðu blaðsins. í lok janúar
2003 var byrjað að mœla heimsóknir á síojina og má sjá þróun þeirra alltfram
til 28. janúar á þessu ári í súluritinu.
Læknablaðið 2004/90 103