Læknablaðið - 15.02.2004, Page 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPURÉTTUR
Réttur til læknismeðferðar utan heimalands vegna
óhæfilegrar biðar eftir aðgerð
Þann 1. október síðastliðinn var kveðinn upp dómur
í Bretlandi um ofangreint sem talinn er hafa mikla
þýðingu fyrir sjúklinga á biðlistum í Bretlandi og Evr-
ópusambandinu. Dómstóllinn dæmdi að sjúklingar á
breskum biðlistum sem þyrftu að bíða óhæfilega lengi
ættu að eiga kost á læknismeðferð innan Evrópusam-
bandsins á kostnað heimalandsins. Fjallað var sér-
staklega um hvað væri „óhæfileg bið“. Talið var að við
mat á hvað væri „óhæfileg bið“ ætti að fara eftir lækn-
isfræðilegu mati. í því sambandi þyrfti að meta hvern
sjúkling sérstaklega og taka tillit til allra hans að-
stæðna, svo sem hversu mikill sársauki fylgi ástandi
viðkomandi og eðli og umfangs sjúkleika að öðru
leyti. Heimaland verði að samþykkja meðferð erlend-
is þegar ekki er hægt að veita meðferðina heima.
í málinu reyndi á rétt 72 ára gamallar konu,
Yvonne Watts, til að fara í mjaðmaaðgerð í Frakk-
landi þar sem biðlistinn var mun styttri en í Bretlandi.
Bresk yfirvöld höfnuðu beiðninni þar sem biðtíminn
sem var 15 mánuðir var í samræmi við það markmið
sem bresk stjórnvöld höfðu sett vegna biðlista eftir
mjaðmaaðgerðum. Lögmaður Watts hélt því fram í
málinu að við mat á hvað teldist „óhæfileg bið“ væri
rangt að miða við tiltekin markmið stjórnvalda um
biðtíma. I málinu var vísað til tveggja nýlegra dóma
Evrópudómstólsins, C-157/99 og C-358/99 (frá októ-
ber 2002), þar sem staðfestur var réttur sjúklinga til
að leita sér læknisþjónustu utan heimalands þegar um
væri að ræða „óhæfilega bið“. I þessum málum var
kveðið á um að við mat á hvað teldist „óhæfileg bið“
eftir læknisaðgerð ætti að fara eingöngu eftir læknis-
fræðilegu mati á hvað teldist forsvaranlegt.
I máli Yvonne Watts lá fyrir að hún hafði stöðuga
verki og var bundin hjólastól. Því var ekki talið lækn-
isfræðilega forsvaranlegt að hún þyrfti að bíða í 15
mánuði eftir mjaðmaaðgerð þótt sá tími væri í sam-
ræmi við markmið stjórnvalda.
Gunnar
Ármannsson
Höfundur er
framkvæmdastjóri LÍ.
Fræðslufundur Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
Félag áhugamanna um sögu læknisfræð-
innar heldur fræðslufund miðvikudaginn
11. febrúar2004. Fundurinn hefst klukkan
20:00 og er haldinn í Hringsal á Barnaspít-
ala Hringsins, Landspítala.
Fyrirlesari kvöldsins er Unnur Birna
Karlsdóttir sagnfræðingur. Efni fundarins
er: Ófrjósemisaðgerðir á íslandi árin 1938-
1975 skv. löguni 16/1938 eða eins og í þeim
segir: „Að heimila, í viðeigandi tilfellum,
aðgerðir til að koma í veg fyrir að fólk auki
kyn sitt.“
Unnur Birna hlaut styrk frá Félagi
áhugamanna um sögu læknisfræðinnar og
Þjóðminjasafni íslands við gerð þessarar
rannsóknar. Styrkurinn er kenndur við
prófessor Jón Steffensen og er ætlaður til
að vinna að rannsóknum á sögu læknis-
fræðinnar.
Fyrirlesturinn er opinn öllum áhuga-
mönnum um efnið.
Læknablaðið 2004/90 153