Læknablaðið - 15.02.2004, Page 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
mynd
lækna og fagmennska
Elínborg
Bárðardóttir
Sérgreinalæknar voru talsvert í fjölmiðlaumræðu
í síðastliðnum mánuði og tilefnið var kjaradeila
Læknafélags Reykjavíkur og Tryggingastofnunar rík-
isins. Heimilislæknar voru einnig talsvert í umræð-
unni fyrir nokkrum misserum vegna kjaradeilu. Það
er umhugsunarefni að læknar virðast helst komast í
fjölmiðla í sambandi við kjaradeilur og ekki úr vegi
að fjalla um ímynd lækna í því sambandi og fag-
mennsku sem er nátengd ímyndinni.
ímynd lækna er hægt að hugsa frá sjónarhorni
læknanna sjálfra, skjólstæðinga þeirra, almennings,
yfirvalda og stjórnmálamanna og frá sjónarhorni
annarra lækna eða faghópa. ímyndin skapast vænt-
anlega í beinum samskiptum sent læknar hafa við
ofangreinda hópa og einnig í umræðu um Iækna. Um-
ræðan getur verið óopinber, á kaffistofum, í sauma-
klúbbum og víðar, eða opinber eins og í fjölmiðlum
og á síðum spjallþráða sem er tiltölulega nýr um-
ræðuvettvangur. Velta má fyrir sér vægi þessarar um-
ræðu og hvernig læknar geta haft áhrif á hana.
Það er örugglega gagnlegt að leita til sérfræðinga í
almannatengslum, fá leiðsögn um frumskóg fjölmiðl-
unar og aðstoð við að kynna málstað lækna. Við þurf-
um samt sjálf að átta okkur á hver staða okkar er og
hvernig best er að styrkja hana. í því sambandi held
ég að fagmennska og aftur fagmennska sé lykilalriði.
Fagmennskan upphefur okkur að sumu leyti yfir
deilur og gefur okkur stöðu sem verður ekki frá okk-
ur tekin. Fagmennskan felur það í sér að búa yfir
góðri traustri þekkingu og færni sem nýtist
skjólstæðingum okkar og samfélaginu. Fagmennska
er ferill þroska sem leiðir til ábyrgðar og skilnings í
samskiptum þar sem traust og öryggi eru í
lykilhlutverkum. Langflestum íslenskum læknum er
mjög annt um fagmennsku sína og læknar hafa
ágætar reglur til leiðbeiningar í fagmennsku sem eru
siðareglur lækna (codex eticus). Einnig hefur
Læknafélag íslands fjallað um fagmennsku og
almannatengsl í ítarlegri skýrslu um stefnu-
mótunarvinnu LÍ 1996-1997.
En það er alltaf gott að líta sér nær og endurskoða
í sífellu vinnubrögð og hugmyndir. Meiri miðstýring á
heilbrigðismálunt sem og markaðsöfl og hugsanlegir
hagsmunaárekstrar geta ógnað sjálfstæði lækna og
virðingu og trausti í samfélaginu. Nýleg dæmi eru til
um það hvernig stjórnmálamenn hafa gengið fram í
málum Landspítala undanfarnar vikur. Við lifum
einnig í breytilegu þjóðfélagi sem er gagnrýnna á
lækna en áður og það m.a. krefst þess að læknar hugi
betur að fagmennskunni og ímyndinni og velti fyrir
sér svigrúmi og sóknarfærum á því sviði. I fyrrnefndri
stefnumótunarvinnu LI er meðal annars talað um að
læknar skuli fjalla um heilbrigðismál og velferðarmál
almennt á opinberum vettvangi og vera þátttakendur
í almennri fræðslu jafnt um heilbrigðismál og önnur
velferðarmál. Eru þetta orðin tóm? Eru læknar nógu
virkir í þjóðfélagsumræðunni þegar kjaramál eru
ekki annars vegar? Og hvað með innri vinnu? Er
ekki þörf á að vinna heimavinnuna aðeins betur og
reyna að skilgreina frekar og fylgja faglegum stöðlum
innan hverrar greinar og konta upp innra eftirliti?
Þurfum við ekki að líta í eigin barm og standa vörð
um fagmennsku og ímynd með vönduðum sam-
ræmdum vinnubrögðum þar sem sérhagsmunir ráða
ekki ferð? Verða sérgreinalæknar og heimilislæknar
ekki að auka með sér samvinnu og skilning sem leiðir
til meiri virðingar sem endurspeglast í samfélaginu
okkur öllum í hag?
Að lokum langar mig að leggja til að íslenskir
læknar fari reglulega í endurmenntun í siðareglum,
samskiptum og almannatengslum. Flestir læknar við-
halda læknisfræðilegri þekkingu og færni með því að
sækja námskeið í sínu fagi. Af hverju ekki að við-
halda einnig þjálfun í viðfangsefninu manneskjunni,
það er í góðum samskiptum, samhygð, heilindum,
trúnaði, virðingu, skyldurækni, samviskusemi, trausti
og ábyrgð? Þarf ekki umræðu til að varast að detta í
fúlan pytt ekki-fagmennskunnar sem getur verið hroki,
misbeiting valds, trúnaðarbrestur, græðgi, vanhæfni
eða hagsmunaárekstrar?
Eru það ekki einmitt þessi atriði sem skapa oft
neikvæða umræðu opinberlega eða óopinberlega?
Höfundur er formaður Félags
íslenskra heimilislækna og
fulltrúi þess í stjórn LÍ.
í pistlunum Af sjúnurhóli
stjórnar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
148 Læknablaðið 2004/90