Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2004, Side 63

Læknablaðið - 15.02.2004, Side 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / RAFRÆN SKRÁNING tengdar við hana með ljósleiðara. Við erum búin að prófa nýju útgáfuna af Sögu hér á stöðinni í hálft ár og þegar hún kemst í gagnið verður smám saman til ein skrá fyrir Reykjavík þar sem allar stöðvarnar hafa rafrænan aðgang að sömu gögnum. Mín hug- mynd er að tengjast Læknavaktinni og bráðadeildum sjúkrahúsanna svo við getum séð hvað hefur verið gert þar og læknar þar séð hvað við gerum. í þessu nýja Sögu-kerfi verður auðvelt að fá yfirlit yfir grein- ingar, lyfjagjöf, ofnæmi og annað slíkt sem er alger- lega nauðsynlegt.“ Töf vegna gagnagrunnsins Samúel er þeirrar skoðunar að rikið hafi sérstökum skyldum að gegna í því að auðvelda fyrirtækjum og stofnunum að tengjast með rafrænum hætti. Það hef- ur hins vegar gengið of hægt að hans mati og þyrfti að setja í það einhvern kraft til að koma þróuninni almennilega af stað. „Það hefur orðið töf á því að hún kæmist af stað og ástæðan er eflaust tilkoma hugmyndarinnar um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sem íslensk erfðagreining setti fram. Það náðist ekki samstaða um hann innan læknahópsins og nú virðist hann vera dottinn upp fyrir svo fjármagnið sem átti að koma úr einkageiranum til að tölvuvæða og framleiða hug- búnað fyrir heilbrigðiskerfið kemur ekki þaðan. Rík- ið verður því að blása í glæðurnar og koma þessu í gang aftur.“ - Er langt í það að kerfið fari að muna hvað gert hefur verið fyrir sjúklinga? Sérðu fyrir þér að ég geti komið til þín með einhvern kvilla og þú getir flett því upp í tölvunni hvað hafi verið gert við mig á ísafirði og Landspítalanum, hvaða lyf ég hef verið að taka og þar fram eftir götunum? „Það er langt í það að gamlar upplýsingar verði aðgengilegar. Við höfum skráð allt í tölvu hér á stöð- inni frá 1988 og það liggur allt fyrir. Heilsugæslan almennt hefur fært rafræna sjúkraskrá hver á sínum stað amk síðasta áratuginn. Þetta er hins vegar afar misjafnt eftir stofnunum hversu langt aftur skráning- in nær og eldri gögn bíða þess að verða slegin inn. En allar nýrri upplýsingar ættu að geta orðið aðgengileg- ar þegar Heilbrigðisnetið verður komið upp. Mér finnst þetta svo mikilvægt fyrir ríkið (sem borgar brúsann) að það eigi að gera kröfu til þess að allir starfsmenn heilbrigðiskerfisins sem hafa samn- ing við ríkið, hvort sem þeir eru launamenn eða sjálf- stætt starfandi, skrái sjúkraskrá í sameiginlegan gagnabanka og séu beintengdir við hann. Ég er ekki að segja að allt sem skráð er fari þar inn en allar helstu upplýsingar, svo sem greiningar, ofnæmi, bólu- setningar, lyfjanotkun og síðustu rannsóknir. Þetta er nauðsynlegt til þess að tryggja öryggi sjúklingsins. Ég hef ekki hitt einn einasta sjúkling sem er á móti því að kerfið geymi upplýsingar um hann. Það er bæði Þeir Samúel J. Samúelsson og Þorvaldur Ingvarsson eru sammála um að rafrœn skráning muni skila heil- brigðiskerfinu verulegri hagrœðingu og skilvirkni og leiða til sparnaðar á ýmsum sviðum. hagur sjúklingsins og læknisins. Til dæmis ætti það að koma í veg fyrir að sjúklingar geti platað lækna eins og reynt er að gera á hverjum degi til að ávísa vissum lyfjum.“ Margt að gerast á FSA Samúel sagði að samskipti við kollegana væri almennt gott og það ætti bæði við þá sem starfa á sjúkrahúsun- um og á stofum úti í bæ. Það væri ekki vandamál að fá frá þeim upplýsingar um sjúklinga, en þær berast ekki með rafrænum hætti heldur í venjulegum pósti en alloft þarf að hringja eftir þeim. Læknabréf milli stofnanna og lækna og á milli sér- fræðinga og heimilislækna eru mikilvægur þáttur af samskiptum lækna en það er algengt að heyra kvart- að yfir því að þau berist seint og illa. Skömmu fyrir jól var fyrsta rafræna læknabréfið sent frá Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri og töldust það nokkur tíma- mót í rafrænni skráningu hér á landi. Það er ekki erf- itt að sjá sparnaðinn í þessu því að sögn Þorvalds Ingvarssonar framkvæmdastjóra lækninga á FSA eru á hverju ári send um 45.000 læknabréf frá spítalanum. Viðtakendur þurfa að taka bréfin og skanna þau eða slá inn í tölvu hjá sér svo upplýsingarnar séu tiltækar. Þorvaldur segir að ýmislegt fleira sé á döfinni hjá FSA. Þar er verið að innleiða Sögu-kerfið á þremur deildum spítalans og vonast hann til þess að það verði komið um allan spítalann eftir tvö ár eða svo. „Með rafrænni sjúkraskrá er ætlunin að auka öryggi sjúkragagna, auka aðgengi heilbrigðisstarfsmanna að upplýsingum, einfalda verkferla og ná fram hagræð- ingu,“ segir Þorvaldur og bætir því við að hann sé sannfærður um að upplýsingatæknin muni stórauka Læknablaðið 2004/90 159

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.