Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2004, Page 83

Læknablaðið - 15.02.2004, Page 83
UMRÆÐA & FRÉTTIR / Eins og hjón og ormar í áfengi Áttatíu Sigurður læknir: „Þú ert við mjög góða heilsu, Lára mín. Þú nærð því örugglega að verða áttatíu ára.“ Lára: „En, ég er orðin áttatíu ára.“ Sigurður: „Sko, hvað sagði ég?“ Eins og hjón Eldri heimilislæknir og föngulegur hjúkrunarfræð- ingur á frjósömum aldri komu á hótel þar sem þau ætluðu að dvelja meðan þau tækju þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um bólusetningar. Parið sem var ekki par þekktist vel enda samverkafólk til margra ára af sömu læknastöðinni. Við innritun á hótelið varð Ijóst að mistök höfðu orðið við bókun þeirra. í stað þess að fá tvö eins manns herbergi fengu þau úthlutað hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi. Hótelið var full- bókað og því ekki um annað að ræða fyrir ferðalang- ana en gera sér hjónaherbergið að góðu. Seint um kvöldið þegar gamli læknirinn gekk til náða galopnaði hann gluggann á herberginu og skellti sér svo undir sæng. Eftir stutta stund tilkynnti hjúkk- an að henni væri kalt og bað herrann um að loka glugganum. Þá sagði læknirinn: „Ef þér er svona kalt viltu þá kannski að við þykjumst vera hjón?“ Það tísti í hjúkkunni og hún sagði: „Þú segir nokkuð. Ef þú ert til þá er ég alveg til.“ Þá rumdi í þeim gamla: „Allt í lagi, þá skalt ÞÚ fara fram úr og loka fjandans glugg- anum.“ Ormar og áfengi Nokkrir læknanemar sátu í fyrirlestri hjá dósenl í læknadeild sem fræddi þá um skaðsemi áfengis. Til þess að leggja áherslu á orð sín tók hann nokkra orma og setti þá ofan í krukku sem var hálffull af spíra. Eftir stutta stund voru ormarnir steindauðir. „Jæja, dömur mínar og herrar. Hérna sjáið þið greinilega hvaða áhrif áfengi hefur á óæðri lífverur,“ sagði dósentinn. „Hvað haldið þið að þetta segi okk- ur um áhrif áfengis á manneskjuna?" Læknanemi í öftustu röð rétti upp hendina og sagði: „Sá sem drekkur áfengi fær ekki ormaveiki.“ Grátandi nunna Gamall maður sem beið í biðstofunni á heilsugæslu- stöðinni varð alveg miður sín þegar grátandi nunna skundaði út frá lækninum. Þegar röðin kom að þeim gamla gat hann ekki á sér setið og skammaði lækninn fyrir að hafa komið nunnunni til að gráta. „Slakaðu á, vinur minn,“ sagði læknirinn. „Hún var með versta hiksta sem ég hef á ævinni kynnst. Eina leiðin til að lækna hana var að gera henni eins bilt við og hugsast gat. Ég tilkynnti henni einfaldlega að hún væri ófrísk." Minnimáttarkennd Kona á miðjum aldri hafði gengið til geðlæknis tvisvar í viku árum saman enda kunni hún ekki aura sinna tal og hafði áhyggjur af flestum hlutum. Fram- farir konunnar voru engar og læknirinn var nánast viss um að þær yrðu aldrei neinar. „Ragnheiður Tjúlla,“ sagði læknirinn í lok eins viðtals, „heldur þú að þessar heimsóknir þínar til mín geri þér eitthvert gagn?“ „Nei, í rauninni ekki,“ sagði Ragnheiður. „Minni- máttarkennd mín er alveg eins svakaleg og hún hefur alltaf verið.“ „Ragnheiður Tjúlla," sagði læknirinn, „ég verð í fullri einlægni að segja þér svolítið. Þú ert ekki með neina minnimáttarkennd. Þú ert í raun og veru minnimáttar." Umbúöaskipti Maður mætti í endurkomu á slysadeild. Læknirinn sá að umbúðirnar um sárið á handleggnum voru losara- legar og spurði manninn hverju þetta sætti. „Sko, þú sagðir að ég mætti aldrei bleyta umbúð- irnar þannig að ég varð að taka þær af í hvert skipti sem ég fór í sturtu.“ Engin ávanahætta Kona um sextugt þurfti að skipta um heimilislækni þegar hún flutti úr Kópavogi í Grafarvog. Hún var alveg á nálum þegar hún fór í fyrsta skipti til Ara læknis á Heilsugæslustöðinni í Grafarvogi, sveitt í lóf- um, með höfuðverk og hjartslátt svo fátt eitt sé upp- talið af því sem amaði að henni. „En þetta er ekki neitt sem svona litlar kringlóttar pillur með skoru geta ekki lagað,“ sagði konan og sýndi lækninum gamalt pilluglas. „Nei, svona pillur færðu ekki hjá mér því þær eru svo ávanabindandi,“ sagði Ari læknir. „Ég held nú síður,“ sagði konan hin önugasta. „Ég veit nú betur en það, enda búin að taka töflurnar í fimmtán ár.“ BROSHORNIÐ 45 ■ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@gb.hgst.is Læknablaðið 2004/90 179

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.