Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 85

Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 85
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGARÁÐUNEYTINU Lyfjamál 122 Átak í lyfjamálum heilbrigðíssto Stýrihópur í lyfjamálum heilbrigðistofnana sem heilbrigðisráðherra skipaði í mars á síðasta ári hefur nú skilað áfangaskýrslu til ráðherra. I áfangaskýrsl- unni er finna ályktanir og tillögur í 25 liðum sem að mati stýrihópsins stuðla að sparnaði og hagræðingu í innkaupum lyfja, lyfjavali og réttri nolkun lyfja. Ráð- herra hefur falið stýrihópnum að semja framkvæmda- áætlun til næstu tveggja ára til að hrinda í fram- kvæmd og fylgja eftir tillögum sínum. Stýrihópurinn kannaði stöðu lyfjamála og þróun lyfjakostnaðar á helstu heilbrigðisstofnunum lands- ins. I Ijós kom meðal annars að aukning lyfjakostnað- ar á tímabilinu 1999-2002 var mjög mismunandi eftir stofnunum eða frá 13% á Heilbrigðisstofnun Akra- ness upp í 102% þar sem hækkunin er mest. Á sama tíma var heildaraukning lyfjakostnaðar í landinu um 49%. Skýringin á minni aukningu lyfjakostnaðar á Sjúkrahúsi Akraness má þakka virku lyfjanefndar- starfi, markvissu og hagkvæmu vali lyfja á lyfjalista sjúkrahússins og faglegu eftirliti. Af þeim svörum að dæma sem borist hafa frá öðrum stofnunum virðist þar ekki vera eins vel staðið að málum. Ýmsar skýringar hafa verið gefnar á aukningu lyfjakostnaðar, svo sem fjölgun erfiðari sjúkdómstil- fella, aukin notkun á nýrri og dýrari lyfjum, minni af- slætli frá apótekum, stórhækkað verð á súrefni og af- skráning eldri lyfja sem leiðir til notkunar nýrri og oftast dýrari lyfja. Mörg lyf sem hafa sömu eða sambærilega verkun eru oft á mjög mismunandi verði. Yfirleitt eru ný lyf dýrari en eldri lyf sem er réttlætt með því að þau séu betri. Það á þó ekki alltaf við eins og ýmis dæmi sýna. Ekkert hefur jafn mikil áhrif á lyfjakostnað og val lyfja. Þegar kemur að vali lyfja eru læknar í lykilhlut- verki og leggja lyfjafyrirtæki því áherslu á að kynna lyf sín fyrir læknum. Til eru þekktar aðferðir, þróaðar af Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni og öðrum alþjóðasamtökum, til að sporna við auknum lyfjakostnaði og ná fram skynsamlegri notkun lyfja. Þessar aðferðir byggjast á gagnreyndri nálgun við val lyfja, klínískum leið- beiningum, lyfjanefndarstarfi og þróun lyfjalista. Meginniðurstaða stýrihópsins er sú að nauðsyn- legt sé að bæta og styrkja stjórn lyfjamála og lyfja- nefndarstarf á heilbrigðisstofnunum til að efla gæði lyfjanotkunar og ná tökum á þeim kostnaðarauka sem af henni stafar. Hvetja þarf heilbrigðisstofnanir til að setja sér stefnu í lyfjamálum í samræmi við starfsemi hverrar stofnunar og þarfir sjúklinga þeirra. Lyfjanefndir þurfa að vera virkari í að velja lyf á lyfja- lista út frá virkni og hagkvæmni. Hvetja þarf til sam- starfs og samráðs milli stofnana um val lyfja, útboð og innkaup. Skynsamleg lyfjanotkun ætti að vera einn af hornsteinum opinberrar stefnu í heilbrigðis- málum. Til að framfylgja þeirri stefnu þarf að fylgjast með lyfjanotkun og nota þær upplýsingar sem þannig fást til að bæta ávísunarvenjur lækna og beita ýmsum aðferðum og aðgerðum eins og nánar er lýst í þessari skýrslu. Það er mat stýrihópsins að fela beri Land- læknisembættinu og þjónustudeild lyfjasviðs Land- spítala aukna ábyrgð og samræmingu þeirra aðgerða er grípa þarf til svo að raunverulegur og merkjanleg- ur árangur náist. Eins og áður segir hefur stýrihópurinn samið tveggja ára framkvæmdaáætlun til að fylgja eftir til- lögum sínum sem ná til heilbrigðisstofnana, Landlækn- isembættisins, háskólans, tryggingastofnunar, sam- taka lækna og ráðuneytisins. Þessir aðilar hafa áður unnið að ýmsum þáttum lyfjamála en ekki með jafn skipulögðum og samræmdum hætti og nú er lagt til. fnana Einar Magnússon Einar Magnússon er yfirlyfjafræðingur í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Læknablaðið 2004/90 181
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.