Læknablaðið - 15.07.2004, Page 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
að tilfærsla af þessu tagi myndi leiða til enn meiri
kostnaðar í heilbrigðiskerfinu. ... Það sjónarmið er
ekki raunhæft, að nauðsynlegt sé að færa tiltekna
starfsemi inná sjúkrahúsin til að tryggja gæði. Þróun
heilbrigðisþjónustu utan spítala er í samræmi við fag-
lega þróun í læknisfræði og því er mögulegt í stöðugt
vaxandi mæli að framkvæma vandasama læknismeð-
ferð án þess að til innlagnar sjúklings þurfi að koma.
Fagleg rök eiga að ráða því, hvar aðgerðir eru gerðar.
Eðlilegt er að læknar beri þá ábyrgð áfram og óskyn-
samlegt að ráðherra fari með slíkt vald.“
Ennfremur sagði í tilvitnaðri umsögn: „Læknafé-
lögin telja að nauðsyn beri til að eftirfarandi ákvæði
verði bætt inn í frumvarpið: „Við mat á hagkvœmni
þjónustu skal þess gœtt, að tryggt sé að tekið sé tillit
til alls þess kostnaðar sem til fellur vegna verka sem
unnin eru á ríkisstofnunum.“ Vísast hér m.a. til ...
umíjöllunar um nauðsyn aðskilnaðar á milli hlut-
verks ríkisins, sem kaupanda þjónustu annars vegar
og veitanda þjónustu hins vegar. Tilgangur þess að
slíkt ákvæði kæmi inn í lögin, er að tryggja jafnræði
viðsemjenda nefndarinnar. f greinargerð ber að fjalla
nánar um þann tilgang og jafnframt vísa til þeirra laga-
sjónarmiða, sem 14. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993 um
fjárhagslegan aðskilnað byggir á, en þar segir: „Þegar
um er að rœða opinbert fyrirtœki eða fyrirtœki sem
starfar að einhverju leyti í skjóli opinbers einkaleyfis
eða verndar er samkeppnisráði heimilt að mœla fyrir
um fjárhagslegan aðskilnað, annars vegar á milli þess
hluta rekstrar fyrirtœkisins sem nýtur einkaleyfis eða
verndar og hins vegar þess hluta rekstrar sem er í
frjálsri samkeppni við aðra aðila. Skal þess gœtt að
samkeppnisrekstur sé ekki niðurgreiddur af einka-
leyfis- eða verndaðristarfsemi.““
Málflutningur læknafélaganna hefur því snúist
um að jafnræðis og sanngirni sé gætt og að aðilar
séu jafnsettir í samkeppnislegu lilliti þegar kemur að
rekstri sem er í l'rjálsri samkeppni við aðra aðila. Til
að læknafélögin haldi trúverðugleika sínum verða
þau að vera sjálfum sér samkvæm og viðurkenna að
jafnræðiskrafan gildi í báðar áttir.
Sumarlokun á skrifstofu 0
læknafélaganna o
Lokað frá 26. júlí til 9. ágúst
vegna sumarleyfa starfsfólks.
Læknablaðið 2004/90 569