Læknablaðið - 15.07.2004, Page 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ORLOFSHÚS / HJARTAVERND
Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ ávarpar gesti við vígslu nýja orlofsbústaðarins en
húsið stendur við götuna Kiðárskóg og ber númerið 5.
Húsameistarinn Eiríkur lngólfsson stendur hér á milli landeigendanna, hjónanna Hrefnu
Sigmarsdóttur og Bergþórs Krislleifssonar.
Sólpallurinn veit uð sjálfsögðu á móti suðri en skammt framan við hann er lítil tjörn.
Bæklíngur frá
Hjartavernd
Sú góða vísa að hreyfing og líkamsrækt sé
besta forvörnin gegn hjarta- og æðasjúkdómum
verður seint of oft kveðin. Rannsóknarstöð
Hjartaverndar hefur um langt árabil stundað
umfangsmiklar hóprannsóknir á fullorðnu fólki
með tillili til þessara sjúkdóma og áhættuþátta
þeirra. Nú hefur Hjartavernd gefið út bækling
sem ætlaður er þeim sem vilja stunda virkar for-
varnir gegn hjarta- og æðasjúkdómum.
Bæklingurinn ber heitið Hreyfðuþig... fyrir
lijartað og fjallar eins og nafnið bendir til um
gildi hreyfingar fyrir heilbrigt hjarta. Þar er
að finna margvíslegan fróðleik urn hjarta- og
æðasjúkdóma sem að verulegu leyti er fenginn
úr rannsóknum Hjartaverndar. Þar kemur til
dæmis fram að þeim hefur fjölgað verulega á
síðustu 30 árum sem stunda reglulega hreyfingu
utan vinnu. í aldurshópnum 40-60 ára hefur
hlutfall kvenna sem það gerir aukist úr 4% í
40% og meðal karla er aukningin úr 8% í 34%.
„Þessi þróun á væntanlega sinn þátt í verulegri
lækkun á tíðni kransæðasjúkdóma á íslandi
síðan árið 1980,“ segir í bæklingnum.
Þar er einnig að finna ýmsar ábendingar um
það hvernig fólk getur metið eigið líkamsástand,
svo sem með því að notfæra sér áhættureiknivél
sem sérfræðingar Hjartaverndar hafa þróað og
er á heimasíðu samtakanna, www.hjarta.is
Bæklinginn er hægt að panta hjá Hjarta-
vernd, í afgreiðslunni í Holtasmára 1 í Kópavogi
eða á netfanginu afgreidsla@hjarta.is
Læknablaðið 2004/90 573