Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2004, Side 46

Læknablaðið - 15.07.2004, Side 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NORRÆNT SAMSTARF Samstarf norrænu læknablaðanna Védís í JúnÍbyrjun fóru ábyrgðarmaður og ritstjórnarfull- Skarphéðinsdóttir trúi Læknablaðsins á fund til Finnlands að hitta rit- stjórnir og starfsmenn norrænu læknablaðanna. Slíkir fundir hafa verið haldnir annað hvert ár um þriggja áratuga skeið. Yfirskriftin í ár var: Nordiskt samar- bete: Status idag och framtiden - klassísk pæling sem allir vita svarið við, samstarfi skal haldið áfram, en það er hollt og gott að velta því fyrir sér öðru hveiju. Eva Oldinger sem áður leiddi tímaritið Nordisk medisin fór yfir stöðuna. Magne Nylenna renndi sér í gegnum nýtt landslag fjölmiðlanna einsog það er kallað og stappaði stálinu í menn með því að benda til dæmis á evrópsk samtök ritstjóra vísindatímarita þangað sem hægt væri að sækja visku og styrk og holl ráð. Á dagskrá voru einnig spursmál um birtingar- rétt, tengsl læknablaða og lyfjafyrirtækja, fjármál blaðanna, samband blaðanna við læknafélögin sem margir vildu meina að minnti oft á tíðum óþægilega á gömlu söguna um upphaf hænunnar og eggsins. Norrænu blöðin eru öll ámóta gömul og afar margt skylt með þeim, bæði að innihaldi og útliti, þótt þau búi hvert um sig við sérstöðu að einhverju leyti. Hluti hópsins að virða fyrir sér sumarhöll fmnska forsetans, Gullranda, í skerjagarðinum við Ábo. Frá vinstri Josef Mileradfrá sœnska blaðinu, Charlotte Haug ritstjóri norska blaðsins, Álfheiður Steinþórsdóttir eiginkona ábyrgðarmanns íslenska lœknablaðsins, Maud Kaino auglýsingarstýra norska blaðsins, Pia Gelhaar auglýsingastýra og Bo Lennholm bœði hjá sœnska blaðinu. Tlie grand old lady úr heimi norrœnu lœknablaðanna, Eva Oldinger, syngur til kollega sinna magnaðan blús. Taito Pekkarinen ábyrgðarmaður finnska lœknablaðsins ásamt Aagot Somdalen sem hefur lengi gegnt stöðu ritstjórnarfulltrúa hjá norska blaðinu en hcettir á þessu ári. 574 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.