Læknablaðið - 15.07.2004, Page 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NORRÆNT SAMSTARF
Samstarf norrænu læknablaðanna
Védís í JúnÍbyrjun fóru ábyrgðarmaður og ritstjórnarfull-
Skarphéðinsdóttir trúi Læknablaðsins á fund til Finnlands að hitta rit-
stjórnir og starfsmenn norrænu læknablaðanna. Slíkir
fundir hafa verið haldnir annað hvert ár um þriggja
áratuga skeið. Yfirskriftin í ár var: Nordiskt samar-
bete: Status idag och framtiden - klassísk pæling sem
allir vita svarið við, samstarfi skal haldið áfram, en
það er hollt og gott að velta því fyrir sér öðru hveiju.
Eva Oldinger sem áður leiddi tímaritið Nordisk
medisin fór yfir stöðuna. Magne Nylenna renndi sér
í gegnum nýtt landslag fjölmiðlanna einsog það er
kallað og stappaði stálinu í menn með því að benda
til dæmis á evrópsk samtök ritstjóra vísindatímarita
þangað sem hægt væri að sækja visku og styrk og holl
ráð. Á dagskrá voru einnig spursmál um birtingar-
rétt, tengsl læknablaða og lyfjafyrirtækja, fjármál
blaðanna, samband blaðanna við læknafélögin sem
margir vildu meina að minnti oft á tíðum óþægilega á
gömlu söguna um upphaf hænunnar og eggsins.
Norrænu blöðin eru öll ámóta gömul og afar
margt skylt með þeim, bæði að innihaldi og útliti, þótt
þau búi hvert um sig við sérstöðu að einhverju leyti.
Hluti hópsins að virða fyrir sér sumarhöll fmnska forsetans, Gullranda, í skerjagarðinum
við Ábo. Frá vinstri Josef Mileradfrá sœnska blaðinu, Charlotte Haug ritstjóri norska
blaðsins, Álfheiður Steinþórsdóttir eiginkona ábyrgðarmanns íslenska lœknablaðsins,
Maud Kaino auglýsingarstýra norska blaðsins, Pia Gelhaar auglýsingastýra og Bo
Lennholm bœði hjá sœnska blaðinu.
Tlie grand old lady úr heimi norrœnu lœknablaðanna, Eva
Oldinger, syngur til kollega sinna magnaðan blús.
Taito Pekkarinen ábyrgðarmaður finnska lœknablaðsins
ásamt Aagot Somdalen sem hefur lengi gegnt stöðu
ritstjórnarfulltrúa hjá norska blaðinu en hcettir á þessu ári.
574 Læknablaðið 2004/90