Læknablaðið - 15.07.2004, Page 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT NÝRRA LÆKNA
34 læknar útskrifaðir frá Háskóla íslands
Nýir læknar
Andri Valur Sigurðsson
Agúst Ingi Ágústsson
Árni Grímur Sigurðsson
Áskell Yngvi Löve
Berglind Þóra Árnadóttir
Björn Logi Þórarinsson
Davíð Björn Þórisson
Dögg Hauksdóttir
Ernil Árni Vilbergsson
Friðný Heimisdóttir
Gísli Björn Bergmann
Guðrún Dóra Clarke
Gunnþórunn Sigurðardóttir
Haraldur Már Guðnason
Hjördís Sunna Skírnisdóttir
Hólmfríður Lydía Ellertsdóttir
Jakob Pétur Jóhannesson
Jóhann Páll Ingimarsson
Jóhann Davíð Isaksson
Jón Þorkell Einarsson
Jónas Geir Einarsson
Kolbrún Pálsdóttir
Lýður Ólafsson
Margrét Kristín Guðjónsdóttir
Ólöf Viktorsdóttir
Pétur Snæbjörnsson
Ragnar Freyr Ingvarsson
Rakel Sif Guðmundsdóttir
Sigurdís Haraldsdóttir
Steinunn Þórðardóttir
Þorgeir Gestsson
Þóra Sif Ólafsdóttir
Þórður Guðmundsson
Þurý Ósk Axelsdóttir
Á kvenrÉttindadaginn 19. júní útskrifaði lækna-
deild Háskóla Islands 34 nýja lækna og að vanda
var þeim boðið til teitis í húsakynnum Læknafélags
íslands daginn áður. Þar undirrituðu þeir heitstaf
lækna, hlýddu á hollráð sér eldri lækna og nutu veit-
inga í boði félagsins.
Allt var þetta með hefðbundnu sniði, að því frá-
töldu að formaður LÍ, Sigurbjörn Sveinsson, var
fjarri góðu gamni svo það kom í hlut Jóns Snædal
varaformanns að bjóða gestina velkomna. Hann lýsti
fyrir þeim kostum þess að ganga í LÍ og önnur félög
lækna sem væru mörg enda væri það þannig að þegar
undirsérgrein teldi þrjá sérfræðinga væri stofnað
félag um hana.
Stefán B. Sigurðsson deildarforseti læknadeildar
tók örlítið forskot á útskriftina og ávarpaði nýju
læknana og svo tók Sigurður Guðmundsson landlækn-
ir til máls og sagði meðal annars að þessi nýju læknar
væru örugglega betri en hann og hans jafnaldrar því
ef svo væri ekki hefði þeim eldri mistekist eitthvað.
Lestina rak svo Óskar Einarsson formaður LR sem
bauð nýju læknunum að setjast við borð, undirrita
heitorð lækna og þiggja eintök af lögum LI og kjara-
samningum félagsins sem þar lágu frammi.
Eftir að menn höfðu undirritað og gert veiting-
unum skil voru veittar viðurkenningar úr Minn-
ingarsjóði læknanema en hann var stofnaður í
fyrra í minningu Sigríðar Reynisdóttur læknanema
sem hefði að réttu átt að útskrifast vorið 2003 en
lést áður en að því kom. Sjóðnum er ætlað það
hlutverk að efla rannsóknarstörf unglækna og er
þetta í annað sinn sem hann veitir læknanemum
viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á
skriflegu prófi í lyflæknisfræði. Að þessu sinni hlutu
viðurkenninguna Ragnar Freyr Ingvarsson og Berg-
lind Þóra Árnadóttir.
Helga Eyjólfsdóttir læknakandídat afhenti viður-
kenningarnar og skýrði hún blaðamanni frá því að
enn hefði enginn hlotið úthlutun úr sjóðnum og staf-
aði það af því að enginn hefði enn sótt um. Það er því
greinilega þörf á að vekja athygli þeirra unglækna
sem stunda rannsóknir á tilveru þessa sjóðs og hvetja
þá til að sækja um styrk úr honum.
-ÞH
Á efstu myndinni má sjá splunkunýjan lœkni undirrita
heitorð lœkna en á borðinu eru staflar af kjarasamningum
LR og lögum LÍ. Til vinstri er Stefán B. Sigurðsson
deildarforseti að ávarpa hópinn og neðst gœða gestir sér á
krœsingunum sem Lœknafélag íslands bauð upp á.
576 Læknablaðið 2004/90