Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT NÝRRA LÆKNA 34 læknar útskrifaðir frá Háskóla íslands Nýir læknar Andri Valur Sigurðsson Agúst Ingi Ágústsson Árni Grímur Sigurðsson Áskell Yngvi Löve Berglind Þóra Árnadóttir Björn Logi Þórarinsson Davíð Björn Þórisson Dögg Hauksdóttir Ernil Árni Vilbergsson Friðný Heimisdóttir Gísli Björn Bergmann Guðrún Dóra Clarke Gunnþórunn Sigurðardóttir Haraldur Már Guðnason Hjördís Sunna Skírnisdóttir Hólmfríður Lydía Ellertsdóttir Jakob Pétur Jóhannesson Jóhann Páll Ingimarsson Jóhann Davíð Isaksson Jón Þorkell Einarsson Jónas Geir Einarsson Kolbrún Pálsdóttir Lýður Ólafsson Margrét Kristín Guðjónsdóttir Ólöf Viktorsdóttir Pétur Snæbjörnsson Ragnar Freyr Ingvarsson Rakel Sif Guðmundsdóttir Sigurdís Haraldsdóttir Steinunn Þórðardóttir Þorgeir Gestsson Þóra Sif Ólafsdóttir Þórður Guðmundsson Þurý Ósk Axelsdóttir Á kvenrÉttindadaginn 19. júní útskrifaði lækna- deild Háskóla Islands 34 nýja lækna og að vanda var þeim boðið til teitis í húsakynnum Læknafélags íslands daginn áður. Þar undirrituðu þeir heitstaf lækna, hlýddu á hollráð sér eldri lækna og nutu veit- inga í boði félagsins. Allt var þetta með hefðbundnu sniði, að því frá- töldu að formaður LÍ, Sigurbjörn Sveinsson, var fjarri góðu gamni svo það kom í hlut Jóns Snædal varaformanns að bjóða gestina velkomna. Hann lýsti fyrir þeim kostum þess að ganga í LÍ og önnur félög lækna sem væru mörg enda væri það þannig að þegar undirsérgrein teldi þrjá sérfræðinga væri stofnað félag um hana. Stefán B. Sigurðsson deildarforseti læknadeildar tók örlítið forskot á útskriftina og ávarpaði nýju læknana og svo tók Sigurður Guðmundsson landlækn- ir til máls og sagði meðal annars að þessi nýju læknar væru örugglega betri en hann og hans jafnaldrar því ef svo væri ekki hefði þeim eldri mistekist eitthvað. Lestina rak svo Óskar Einarsson formaður LR sem bauð nýju læknunum að setjast við borð, undirrita heitorð lækna og þiggja eintök af lögum LI og kjara- samningum félagsins sem þar lágu frammi. Eftir að menn höfðu undirritað og gert veiting- unum skil voru veittar viðurkenningar úr Minn- ingarsjóði læknanema en hann var stofnaður í fyrra í minningu Sigríðar Reynisdóttur læknanema sem hefði að réttu átt að útskrifast vorið 2003 en lést áður en að því kom. Sjóðnum er ætlað það hlutverk að efla rannsóknarstörf unglækna og er þetta í annað sinn sem hann veitir læknanemum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á skriflegu prófi í lyflæknisfræði. Að þessu sinni hlutu viðurkenninguna Ragnar Freyr Ingvarsson og Berg- lind Þóra Árnadóttir. Helga Eyjólfsdóttir læknakandídat afhenti viður- kenningarnar og skýrði hún blaðamanni frá því að enn hefði enginn hlotið úthlutun úr sjóðnum og staf- aði það af því að enginn hefði enn sótt um. Það er því greinilega þörf á að vekja athygli þeirra unglækna sem stunda rannsóknir á tilveru þessa sjóðs og hvetja þá til að sækja um styrk úr honum. -ÞH Á efstu myndinni má sjá splunkunýjan lœkni undirrita heitorð lœkna en á borðinu eru staflar af kjarasamningum LR og lögum LÍ. Til vinstri er Stefán B. Sigurðsson deildarforseti að ávarpa hópinn og neðst gœða gestir sér á krœsingunum sem Lœknafélag íslands bauð upp á. 576 Læknablaðið 2004/90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.