Læknablaðið - 15.07.2004, Side 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 50
Kvef, sveppir og spakmæ
Munur á læknadeild og hinu neðra
• I hinu neðra sést einstaka maður brosa.
• Maður þarf ekki að læra lífræna efnafræði til að
komast þangað.
• Maður nefnir það ekki einu sinni í æðiskasti að
einhver væri betur kominn í læknadeild.
• Maður þarf ekki að taka námslán til að komast í
hið neðra.
• Það er von til þess að maður geti sofið í hinu
neðra.
Einkennandi fyrir starf lækna á slysadeild
• Algengasta spurningin þegar verið er að taka
sjúkrasögu: „Hvað breyttist í kvöld sem gerði
það að verkum að þú ákvaðst að leita á slysadeild
sex (klukkustundum, dögum, vikum, mánuðum,
árum) eftir að einkennin byrjuðu?“
• Sjúklingi með geðræn vandamál sem telur sig vera
Krist er vísað inn í sama herbergi og annar sjúk-
lingur er í sem telur sig vera Kölska.
• Maður fer að efast um að ruglið í sjúklingi með
ofskynjanir sé vitleysa.
• Blindfullur 140 kílógramma klæðskiptingur í klefa
3 getur ekki hætt að biðja um símanúmerið heima
hjá þér.
Á geðdeildinni
Geðlæknirinn við hjúkrunarfræðinginn sem hafði
nýlega skipt um vinnustað: „Eg bið þig þess lengstra
orða að segja bara að það sé mikið að gera hjá þér en
ekki að þetta sé eins og á geðveikrahæli.“
Lét sig vanta
ímyndunarveikur maður var svo tíður gestur á slysa-
deild að tekið var eftir því sérstaklega eina vikuna að
hann lét ekki sjá sig. Loks kom hann á ný og þá gat
einn af læknunum ekki stillt sig og sagði:
„Maður hefur ekki séð þig lengi. Hvar hefur þú
eiginlega verið?“
„Ég var svo ansans ári slappur í síðustu viku að ég
komst ekki út úr húsi,“ sagði sá ímyndunarveiki.
Eitt og annað um kvef
Ef þú nælir þér í kvef skaltu hringja í góðan lækni.
Hringdu gjarnan í þrjá slíka ef þú vilt spila bridge.
„Guð-hjálpi-þér“ breytir svo sem engu ef maður
er kvefaður og hnerrar, en það er eins gott og hvað
annað úr því læknavísindin hafa ekki fundið ráð sem
dugar.
Framfarir í læknisfræði eru með ólíkindum. Áður fyrr
þegar gömul húsráð voru notuð við öllu var sagt að
kvef gengi yfir á tveimur vikum. Nú á dögum nýjustu
tækni og vísinda með öllum þeim undralyfjum sem til
eru lagast kvefið á hálfum mánuði.
Sveppir í matinn
Sjúklingurinn: „Læknir, læknir, hvað mundir þú gera,
ef einhver hefði borðað eitraða sveppi?"
Lœknirinn: „Ég hefði ráðlagt breytingu á matar-
æði.“
Fleyg orð frægra manna
New England Journal of Medicine greinir frá þvf að
níu af hverjum tíu læknum sé sammála því að einn af
hverjum tíu læknum sé bjáni. -Jay Leno
Það er komið upp nýtt vandamál. Læknar hafa
upplýst að karlar sýni ofnæmisviðbrögð við latexi
í smokkum. Sagt er að viðbrögðin valdi svæsinni
bólgu. Hvert er eiginlega vandamálið? -Jay Leno
Reyndu alltaf að hlæja þegar þú getur. Það er ódýrt
læknisráð. - Byron lávarður
Þar sem læknislistin er dásömuð er mannúðin einnig
dásömuð. - Hippókrates
Ein af fremstu skyldum læknisins er að kenna alþýð-
unni að nota ekki lyf. - Sir William Osler
Ég mundi gera hvað sem er til að verða ungur aftur
nema stunda líkamsrækt, vakna snemma og haga
mér sæmilega. - Oscar Wilde
Ég trúi því að hverjum einasta manni sé ætlaður til-
tekinn fjöldi hjartslátta. Ég hef ekki hugsað mér að
eyða þeim sem mér eru ætlaðir í að stunda líkams-
rækt. - Neil Armstrong
Hlátur er nokkurs konar innra skokk. Hann ýtir
við innri líffærum og eykur öndunartíðnina. Hlátur
vekur miklar vonir. - Norman Cousins
Læknar ávísa lyfjum sem þeir kunna lítil deila á til að
ráða bót á sjúkdómum sem þeir vita enn minna um í
fólki sem þeir þekkja alls ekki neitt. - Voltaire
Trúðu aldrei því sem sjúklingur segir þér að Iæknir
hafi sagt. - Sir William Jenner
Enginn, ekki einu sinni læknir, gefur nokkru sinni
aðra skilgreiningu á því sem hjúkrunarkona á að vera
en „trú og hlýðin“. Þessi skilgreining gæti alveg eins
átt við um húsvörð. Hún gæti jafnvel átt við um hross.
- Florence Nightingale
Bjarni Jónasson
bjarni.jonasson@hg. is
Bjarni er heimilislæknir
í Garðabæ.
Læknablaðið 2004/90 585