Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 26
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA / ACTAVIS Í05062
Hjartamagnýl, Töflur: BOl AC06 L/0
Virk innihaldsefni: Asetýlsalisýlsýra 75 mg og magnesíum oxíö 10,5 mg.
Abendingar: Segavarnandi lyf: Fyrirbyggjandi gegn blóðtappamyndun.
Fyrirbyggjandi hjá sjúklingum með hjartaöng og hjartadrep. Minnka
líkur á heilablóöfalli og tímabundnum blóðþurrðareinkennum frá heila
(transient ischemic attacks). Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastæröir
handa fullorönum: 75-150 mg daglega. Lyfiö er ekki ætlað börnum.
Frábendingar: Ofnæmi gegn salisýlötum og virkt magasár. Blæðinga-
sjúkdómar. Astmi. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun:
Líkur benda til að tengsl geti veriö milli Reyes syndrome og asetýlsalisýl-
sýrugjafar hjá börnum með veirusjúkdóm. Lyfið er ekki ætlað börnum.
Milliverkanir: Lyfið eykur virkni díkúmaróls og annarra blóðþynningar-
lyfja. Lyfið dregur úr virkni próbenesíðs. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið
fer yfir fylgju.Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum
konum og er því ekki mælt með notkun á meðgöngu. Hjartamagnýl
skal alls ekki nota síðustu 3 mánuði meögöngunnar nema læknir hafi
ráðlagt það. Ekki skal nota Hjartamagnýl síðustu 5 dagana fyrir væntan-
lega fæðingu. Lyfið berst í brjóstamjólk en verkun á barnið er ekki talin
líkleg. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Lyfið hefur ekki áhrif
á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Ofnæmi. Astmi.
Einkenni frá meltingarvegi, jafnvel sárá magaslímhúð. Ofskömmtun:
Einkenni ofskömmtunar eru suö fyrir eyrum, heyrnardeyfð, höfuðverkur,
svimi, órói og hraður andardráttur eins og af öðrum asetýlsalisýlsýru-
lyfjum. Lyfhrif: Asetýlsalisýlsýra hefur verkjastillandi, hitalækkandi og
bólgueyðandi áhrif. Verkanir lyfsins byggjast að talsverðu leyti á minnkaðri
myndun ákveðinna prostaglandína. Asetýlsalisýlsýra blokkar einnig
myndun efnisins tromboxan í blóðflögum, veldur þannig minnkaðri
samloðun þeirra og lengir blæðingartíma. Lyfjahvörf: Lyfið frásogast
frá maga og smágörnum og nær blóðþéttni hámarki eftir 40-60 mínútur.
Asetýlsalisýlsýra klofnar hratt í salisýlsýru og er helmingunartími í blóði
um 30 mínútur. Við venjulega skammta er próteinbinding salisýlsýru
80% og helmingunartími í blóði 2-4 klst. Ef dagsskammtar eru stærri
en 3 g, lengist helmingunartíminn verulega. Salisýlsýra og umbrotsefni
hennar skiljast að mestu út um nýru. Pakkningar: Hjartamagnýl 75 mg,
50töflur. (23.12.03)
hagur i heilsu