Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LANDSPÍTALI Spillingarhætta? Nýlega var hrundið atlögu framkvæmdastjórnar að Læknaráðinu þegar átti að svipta það stöðugildum sem hefði gert það nær óvirkt! En hvers vegna þessi afstaða? Telja einhverjir að Læknaráðið ógni völdum sínum? Völd á röngum stöðum eru hættuleg eins og mannskynssagan vitnar um og mega ekki verða leik- tæki starfsmanna í kerfinu. Einhverjir verða einatt til að freistast meir af valdinu heldur en starfi sínu, fara jafnvel að leggja meira upp úr „samböndum" sem boðið er uppá. Menn þykjast sjá að þeir geti flýtt „frama“ sínum með erindisgjörðum á einhverja skrif- stofu frekar en að ná árangri í starfi. Það gæti jafnvel verið óhagstætt að verja fræðigrein sína og starf og stunda frekar viðskipti með ósýnilega hluti, t.d. vinar- greiða, gott umtal og atkvæði. Embættaðir menn úr öðrum greinum hafa að von- um takmarkaða innsýn í störf lækna, halda jafnvel sumir hverjir að þeir verði að stýra þeim, skynja ekki að læknar verða að hafa víðtækt fjárhagslegt sjálfræði (vald) svo þeir geti tekið faglega ábyrgð á starfsemi sinni Ef skriffinnar fá að þrengja sér inní vinnuferli og mönnun sérlærðra heilbrigðisstétta, er spilling til staðar sem bitnar á sjúklingum. Ur annarri átt og með ólíkum hætti kemur Stjórn- arnefnd spítalans að málum. Mönnuð aðkomufólki að mestu með takmarkaða þekkingu á spítalaþjónustu, skipuð af alþingi, er hún í raun einhvers konar póli- tísk eftirlitssveit. Hún er álitin hafa ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis í fjárhagslegum rekstri, en er vanbúin og ósjálfstæð ef verja þarf spítalann gegn gagnrýni og íhlutun valdhafa (sjá þó grein í Mbl. 15. febrúar 2004 eftir P. Pálmason). Millilagið stjórnar hins vegar, tekur við skipunum, leggur niður stöður og lokar deildum, en ber hvorkifaglega né rekstrarlega ábyrgð. Þjónustu- stiginu, vaxandi framþróun læknisþjónustunnar og kennslu og vísindum skal með öðrum orðum miðstýrt með valdi, án afskipta almennings eða sérlærðra heil- brigðisstétta. Voru ekki svona stjórnarhættir kenndir við bananalýðveldi? Vísindasamstarf? Fátt bendir til þess að fólk almennt átti sig á hversu þessi þróun er varasöm fyrir háskólasjúkrahús lands- ins. Árásin á líftölfræðingsstöðuna er bein afieiðing af fyrrgreindri þróun mála. Þrátt fyrir nafngiftina, Land- spítali - háskólasjúkrahús, og háleitar samþykktir um vísindasamstarf milli Landspítala og háskólans - „Frœðilegt starf þarf að standast samanburð á al- þjóðlegum vettvangi... - Spítalinn skal leitast við að tryggja starfsfólki sínu tíma, aðstöðu og frjótt starfs- umhverfi ...“ - afgreiddi Stjórnarnefnd með fram- kvæmdastjórn sinni fyrrgreind mótmæli án minnstu viðbragða. Árangri í klukkustimplun var hins vegar fagnað mjög. Alvöruháskólasjúkrahús? Við alla háskólaspítala í nágrannalöndum okkar eru líftölfræðingar til að hjálpa nemum og starfsmönnum við rannsóknarvinnu og leysa þannig starfskrafta úr læðingi. Þrátt fyrir það samþykkti fundur í stjórn lækna- deildar ekki nein mótmæli út af þessu stefnumarkandi máli. Harmaði ekki einu sinni þessa gjörð sem beind- ist gegn rannsóknum og kennslu, viðfangsefnum sem standa undir tilvist háskóla. Skeytingarleysi lækna- deildar í þessu máli er sérkennilegt, gefur til kynna metnaðarleysi ef ekki getuleysi. Háskólakennarar ættu þó að vita að kennsla og þekkingaröflun ganga þeim mun betur því minna sem þeim er miðstýrt. Stjórnvöld geta hins vegar ýtt undir viðleitnina og aukið líkur á árangri, en hið gagnstæða virðist ætla að gerast hér. Hér hefur eitt mál verið rætt. Önnur mætti nefna. í gangi virðist vera embættisfærslulegt vinnulag þar sem læknum Landspítalans og kennurum læknadeild- ar svo og öðru sérmenntuðu starfsfólki er meinað að sinna skipulagi og mótun eigin starfa í þágu sjúklinga og fræðslu, en er samt ætlað að axla faglega ábyrgð. Ef nýir stjórnarhættir verða teknir upp og framan- greindur vandi fjarlægður mun rekstur og hlutverk háskólaspítalans standa traustari fótum. Læknablaðið 2004/90 645
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.