Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR / MEÐFÆDD VELINDALOKUN Meðfædd vélindalokun á íslandi 1963-2002 Anna Gunnarsdóttir1,2 SÉRFRÆÐINGUR í ALMENN- UM SKURÐLÆKNINGUM Guðmundur Bjarnason2 SÉRFRÆÐINGUR í ALMENN- UM SKURÐLÆKNINGUM OG BARNASKURÐLÆKNINGUM Ásgeir Haraldsson2,3 SÉRFRÆÐINGUR í BARNA- LÆKNINGUM OG ÓNÆMIS- FRÆÐI BARNA 'Barnaspítali háskólasjúkra- hússins í Lundi, Barnaskurð- deild, 2Barnaspítali Hringsins, Landspítala Hringbraut, 3Læknadeild Háskóla íslands. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Anna Gunnarsdóttir Universitetssjukhuset i Lund Barn- och Ungdomssjukhuset, Barnkirurgiska kliniken, 221 85 Lund, Svíþjóð. Sími: +46-46-17 8000 Anna. Gunnarsdottir @pedi. lu.se Lykilorð: vélindagallar, vélindalokun, meðfœddir gallar, aðgerðir, nýgengi. Ágrip Inngangur: Meðfædd lokun á vélinda er sjaldgæfur galli með nýgengi um 1/3000-1/4500 fæddra barna. Meðferð gallans er skurðaðgerð. Árangur aðgerða fer batnandi og er lifun 80-92% síðustu tvo áratugi. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna nýgengi vélindalokunar á Islandi og meta árangur aðgerða. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturvirk og upplýsingar fengnar úr sjúkraskrám þeirra sem greindust með meðfædda vélindalokun á Barnaspít- ala Hringsins 1963-2002. Fengnar voru upplýsingar meðal annars um meðgöngulengd, fæðingarþyngd, tegund galla og hvort aðrir fæðingargallar væru til staðar. Einnig var lagt mat á árangur aðgerða. Upp- lýsingar um fjölda lifandi fæddra á tímabilinu fengust frá Hagstofu íslands. Niðurstöður: 37 börn greindust með meðfædda vél- indalokun á tímabilinu. Meðalfæðingarþyngd var 2626 grömm, þar af voru 14 börn (38%) léttburar (<2500 grömm). Fimmtán börn (41%) voru fyrirburar (<38 vikur). Þrjátíu og fjögur börn (92%) höfðu algengustu tegund vélindalokunar með blindan nærenda á vélinda og fistil milli fjærenda og barka. Þrjátíu og fjögur börn gengust undir aðgerð með lokun á fistli og sammynningu á vélinda, þar af eitt erlendis. Níu börn létust eftir vélindaaðgerð. Algengasta dánaror- sök var lungnabólga (n=7, 78%). Lifun eftir aðgerð hérlendis var 73% á tímabilinu. Aðrir meðfæddir gallar voru algengir þar sem hjartagallar reyndust algengastir (n=12, 32%). Nýgengi sjúkdómsins fór lækkandi á tímabilinu, frá 1/3737 á fyrstu tíu árunum í 1/10639 á síðasta áratug sem er þó án tölfræðilegrar marktækni. Ályktanir: Athyglisvert er hversu nýgengi sjúkdóms- ins virðist hafa lækkað síðasta áratug og eru þetta lægstu tölur sem okkur er kunnugt um. Árangur að- gerða hefur batnað frá fyrri rannsókn en er þó heldur lakari en í nágrannalöndum okkar. Aðrir fæðingar- gallar eru algengir hjá þessum sjúklingahópi. Inngangur Meðfædd lokun á vélinda atresia oesophagealis er sjaldgæfur galli sem var fyrst lýst af William Durston árið 1670 (1, 2). Rannsóknir erlendis hafa sýnt ný- gengi 1/2500-1/4500 fæddra barna og virðist nýgengi heldur fara lækkandi hin síðustu ár, að minnsta kosti í Evrópu (1-3). Þannig hefur stór evrópsk samantekt sýnt lækkun á nýgengi frá 1/2857 á tímabilinu 1980- ENGLISH SUMMARY Gunnarsdóttir A, Bjarnason G, Haraldsson Á Oesophageal atresia in lceland 1963-2002; Incidence & outcome Læknablaðið 2004; 90: 629-33 Objective: Oesophageal atresia is an congenital anomali with incidence of 1/3000-1/4500 live births. The results of reconstructive surgery has improved greatly, to 80-92% survival reported in the last two decades. The aim of this study was to determine the incidence of oesophageal atresia in lceland and to evaluate the results of operations at the Department of Pediatric surgery at The Children’s Hospital, Landspítal- inn - University Hospital in lceland. Material and methods: This retrospective study in- cluded all children diagnosed with oesophageal atresia in lceland between 1963 and 2002. Information was gathered from hospital records, including birth-weight, gestational age, the type of atresia and the presence of other congenital anomalies. The results of operation were determined including post operative complica- tions. Information on life births in lceland for the same period was gathered from the lcelandic National Register. Results: Thirtyseven children were diagnosed with oe- sophageal atresia in these 40 years. The average birth- weight was 2626g, including 14 children (38%) with low birth-weight (<2500g). Fifteen children (41 %) were prematurely born (<38 weeks). Thirtyfour children (92%) had the most common type of oesophageal atresia with proximal blind loop and distal tracheooesophageal fistula. Thirtyfour children were operated on, including one in Denmark. Nine children died within 60 days after surgery. The most common cause of death was lung inflammation (n=7, 78%). The survival after surgery in lceland was 73% in the study period. Other congenital defects were common in this patient group with con- genital heart defects as the most common ones (n=12, 32%). The incidence decresead in the study period from 1/3737 in the first ten years to 1/10639 in the last decade, this did not reach statistical signifiquance. Conclusion: It is interesting to see this decrease in incidence in the study period and this is the lowest incidence known to us. The survival has improved from previous study but is however still lower compared to our neighbouring countries. Other congenital anomalies are common in this patient group. Keywords: oesophageal atresia, congenital anomali, surgery, incidence. Correspondence: Anna Gunnarsdóttir, Anna. Gunnarsdottir<8pedi.Iu.se Læknablaðið 2004/90 629
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.