Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 15
FRÆÐIGREINAR / KÆLING VEGNA HJARTASTOPPS
Ekki varð vart við alvarlegar aukaverkanir við kæl-
inguna, hvorki blæðingar, hjartsláttaróreglu né óvið-
ráðanlegar breytingar í blóð-, sýru/basa- og salthag
sjúklinganna. Fylgst var með pH-gildi, laktat-gildi,
blóðsykri, kalíumstyrk og blóðflögum í blóði sjúk-
linganna í báðum hópum. Ekki var munur á þessum
mæligildum milli hópa.
Kœlingin
í hópnum sem var kældur var meðaltal þess tíma
sem leið frá því að blóðflæði komst á aftur (return of
spontaneous circulation) þar til að kæling hófst 132
mínútur. Meðaltími frá því að kæling hófst þar til að
lægsta hitastigi, eða 34° C, var náð var 420 mínútur.
Það tók því að meðaltali 550 mínútur að koma sjúk-
lingunum undir 34° C frá því að sjálfvirkt blóðflæði
komst á aftur. Markhitastig (<34° C) náðist ekki hjá
átta sjúklingum af þeim 20 sem voru kældir (40%).
Tafla II. Tímamælingar viðkomandi kælingunni.
Kældir
Tími frá áfalli þar til kæling
er hafin — (klukkustundir)
meðaltal (bil) 2,8’ (1-5)
Tími frá áfalli þar til lægsta
hitastigi er náð - (klukku-
stundir)
meðaltal (bil) 9.8‘ (3-24)
Þegar talað er um lægsta hitastig hér þá er átt við þegar sjúklingur
kemst niður í 34° C, en nái sjúklingur því hitastigi ekki þá er skráður
tíminn að la^gsta hitastigi sem hann nasr.
* Upplýsingar voru ekki til fyrir alla sjúklingana.
í töflu II sést tími sem leið frá því hjartastopp átti
sér stað og þar til kæling hófst og þar til lægsta hita-
stigi var náð. Upplýsingar vantaði hjá sex af 20 í báð-
um mælingunum.
Á mynd 1 má sjá þróun hitastigsins bæði hjá hópn-
um sem var kældur sem og hópnum sem ekki var
kældur. Kælingarhraðinn var 1° C á fyrstu sex klukku-
stundunum (0,17° C/klst.) en næstu sex klukkustundir
þar á eftir var hraðinn 0,2° C (0,03° C/klst.). Kæling-
arhraðinn þar til lægsta hitastigi var náð var því 1,2°
C á 12 klukkustundum (0,1° C/klst).
Afdrif
Afdrif sjúklinganna við útskrift frá sjúkrahúsinu er
sýnd í töflu III. Átta af þeim 20 sjúklingum sem voru
í hópnum sem var kældur (40%) höfðu góða útkomu
(útskrifast heim eða á endurhæfingardeild), en níu af
þeim 32 sjúklingum sem voru í hópnum sem ekki var
kældur (28%).
Umræóa
Nýlegar erlendar rannsóknir (13, 14) hafa sýnt að
kæling dregur úr einkennum frá heila eftir hjarta-
stopp hjá mjög völdum sjúklingahópi. Niðurstöður
þessarar afturvirku rannsóknar á öllum meðvitund-
Tafla 1. Klínísk kennileiti þeirra sjúklinga sem voru með t rannsókninni.
Kennileiti Kældir (N=20) Ekki kældir (N=32)
Aldur - meöaltal (bil) 63 (43-83) 66 (43-88)
Karlar - fjöldi/heild (%) 14/20 (70) 23/32 (72)
Vitni að hjartastoppi - (%) 16/18 (89)’ 16/22 (73)* *
Endurlífgun viðstaddra -(%) 9/18 (50)’ 9/20 (45)'
Tími frá áfalli að upphafi endurllfgunar - mlnútur meðaltal 3,2' (0-10) 3,3’ (0-13)
Tími frá áfalli þar til blóðrás er komin á - mínútur meðaltal 35,4’ (7-65) 29,3' (3-90)
* Upplýsingar voru ekki til fyrir alla sjúklingana.
Biöðruhitastig (°C) Samanburður á hitastigi hópanna
39,0
38,0
37,0
36,0
35,0
34,0
33,0
32,0
— Ekki kældir
r
N,
Kasldir
GG
6 12 18 24
Klukkustundir eftir innlögn ð gjörgæslu
Mynd 1. Hitaslig mœlt íþvagblöðru hjá báðttm hópum.
Neðri línan sýnir hitastig kælda hópsins á meðan efri línan
sýnir hitastig viðmiðunarhópsins. Markmiðið var að ná
kœlda hópnum niðurfyrir 34° C og helst sem nœst 32° C.
GG = koma á gjörgœslu.
Tafla III. Afdrif sjúklinga við útskrift af sjúkrahúsi.
Útkoma Kældir (N=20) Ekki kældir (N=32)
Eðlilegir eða mjög lítil van- hæfni (geta hugsað um sig sjálfir, útskrift beint heim) 5 (25%) 5 (15,6%)
Hófleg vanhæfni (útskrifast á endurhæfingardeild) 3(15%) 4(12,5%)
Mikil vanhæfni, gjörsam- lega háður öðrum eða meðvitundarlaus (útskrifast á langlegudeild) 0 1 (3,1%)
Dánir 12 (60%) 22(68,8%)
Munurinn milli hópanna hvaö góóa útkomu varöar (eðlilegur eða með hóflega vanhæfni) var 12% (kældir með 40% en ekki kældir með 28%).
arlausum sjúklingum eftir hjartastopp sýndi að 40%
kældra sjúklinga farnaðist vel en 28% sjúklinganna
sem ekki voru kældir farnaðist vel. Einnig sýndi rann-
sóknin fram á að kælingaraðferðin (ytri kæling með
köldum blæstri og ísbökstrum) er hægvirk og einungis
náðist að kæla 60% sjúklinganna niður í 34° C sem þó
var markmiðið.
Rannsakendur (13, 14) eru sammála um gildi
þess að kæla hratt og fljótt. Markmið okkar var að
Læknablaðið 2004/90 611