Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Nútímafórnir Sigurður E. Sigurðsson Höfundur er meðstjórnandi í stjórn LÍ. í pistlunum Af sjúnarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Nú pegar verslunarmannahelgin er liðin hjá og „staðl- aðar“ fréttir af umferð sem hefur gengið vel, ef frá eru skilin nokkur umferðarslys, og útihátíðir sem hafa farið vel fram, ef frá er skilin mikil ölvun, nokkr- ar nauðganir og metár í fíkniefnum, þá veltir mað- ur fyrir sér hvort þjóðfélagið sé einfaldlega farið að reikna með því að svona skemmtunum fylgi ákveðinn fórnarkostnaður í lífi og limum og meðan hann er ekki óhóflegur þá reiknast allt fara vel fram. Vissu- lega er rekinn áróður fyrir svona helgar bæði hvað varðar umferðina, gegn kynferðislegu ofbeldi og fíkni- efnum. Eiga lögreglan, umferðarstofa, hjálparsveitir og fleiri sem koma þar að þakkir skildar. Petta virðist þó ekki duga og við sem vinnum á sjúkrahúsum og við heilsugæslu þurfum á hverju ári að horfa á hinar dökku hliðar þessa skemmtanahalds. Við þekkjum harmsögurnar á bak við tölurnar og sjáum afleiðing- ar ofbeldis og slysa löngu eftir að fréttin í blaðinu er gleymd. Eigum við þá að segja að allt sé reynt og þetta sé og verði svona? Sem læknir, faðir og þegn í þessu landi þá get ég ekki sætt mig við það. Hvað er þá til ráða? Það væri gott ef einhver töfra- lausn væri til en ég ætla mér ekki að vita betur en fólkið sem vinnur við þetta og áróðursherferðir sem farnar eru vonar maður að skili einhverju þannig að ástandið væri enn verra ef ekki væri til staðar. Það er hins vegar í mínum huga nokkuð ljóst að fleira verð- ur að koma til. Þetta er ekki nóg. Hvað umferðina varðar þá er það fyrst og fremst hugarfarsbreyting. Það er eins og áróðurinn skili sér ekki til ákveðinna hópa, til dæmis ungra ökumanna. Maður þarf ekki nema að keyra einu sinni milli Akureyrar og Reykja- víkur til að sjá það. Þurfum við að horfa á nýjar leið- ir? Erum við sem setjum reglurnar nægilega vakandi fyrir því hvernig á að ná til ungra ökumanna? Hlust- um við nægilega vel á þá og tryggjum við þá að þeir hlusti á okkur? Erum við að refsa þegar við eigum að leiðbeina? Hvernig væri til dæmis að taka upp þá ný- breytni að við sum umferðarlagabrot gæti ökumaður sloppið við greiðslu sektar gegn því að skrá sig í svo sem fimm ár sem líffæragjafa. Það myndi eflaust vekja hugsanir sem væru líklegri til að menn færu með meiri gát í umferðinni en pirrandi aukaútgjöld sem ég held að flestum finnist umferðarsektir vera. Hvað varðar ofbeldisbrotin þá held ég að eins og með svo margt annað þá þurfi foreldrar að axla ábyrgð. Að mínu viti fer alltof mikill tími og orka í að leita að blórabögglum, svo sem tölvuleikjum, bíó- myndum og þvíumlíku. Förum á undan með góðu fordæmi og kennum börnum okkar að við búum í þjóðfélagi sem sættir sig ekki við ofbeldi í hvaða mynd sem það birtist. Engar afsakanir. Ef við þurf- um hjálp þá leitum við eftir henni. Ef okkur tekst að verða eitthvað ágengt með að leggja niður þessar nú- tímafórnir þá verður kannski verslunarmannahelgin í framtíðinni ánægjuleg fyrir alla. Ll ræður hagfræðíng til starfa Að undanförnu hafa farið fram umræður innan læknasamtakanna um nauðsyn þess að Læknafélag Islands komi sér upp staðgóðum hagtölum á sviði heilbrigðis- og kjaramála. Hefur í því sambandi ver- ið rætt um að stofna hagdeild LÍ. Á formannafundi í vor lagði stjórn LI fram tillögu um að gera tilraun til þriggja ára með að ráða hagfræðing til starfa sem fyrst og var hún samþykkt með fyrirvara um samþykki aðalfundar LÍ í haust. Nú hefur Vilborg H. Júlíusdóttir hagfræðing- ur verið ráðin til starfa á skrifstofu LÍ frá og með 15. september. Vilborg er cand oecon frá Háskóla íslands og starfaði hjá Þjóðhagsstofnun á árunum 1987 til 2002. Á árunum 2002 til 2003 var hún for- stöðumaður hagdeildar Tryggingastofnunar en hefur frá árinu 2003 verið hagfræðingur hjá Sam- tökum atvinnulífsins. Vilborg er boðin velkomin til starfa. Vilborg H. Júlíusdóttir. 638 Læknablaðið 2004/90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.