Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2004, Qupperneq 26

Læknablaðið - 15.09.2004, Qupperneq 26
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA / ACTAVIS Í05062 Hjartamagnýl, Töflur: BOl AC06 L/0 Virk innihaldsefni: Asetýlsalisýlsýra 75 mg og magnesíum oxíö 10,5 mg. Abendingar: Segavarnandi lyf: Fyrirbyggjandi gegn blóðtappamyndun. Fyrirbyggjandi hjá sjúklingum með hjartaöng og hjartadrep. Minnka líkur á heilablóöfalli og tímabundnum blóðþurrðareinkennum frá heila (transient ischemic attacks). Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastæröir handa fullorönum: 75-150 mg daglega. Lyfiö er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Ofnæmi gegn salisýlötum og virkt magasár. Blæðinga- sjúkdómar. Astmi. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Líkur benda til að tengsl geti veriö milli Reyes syndrome og asetýlsalisýl- sýrugjafar hjá börnum með veirusjúkdóm. Lyfið er ekki ætlað börnum. Milliverkanir: Lyfið eykur virkni díkúmaróls og annarra blóðþynningar- lyfja. Lyfið dregur úr virkni próbenesíðs. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið fer yfir fylgju.Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum og er því ekki mælt með notkun á meðgöngu. Hjartamagnýl skal alls ekki nota síðustu 3 mánuði meögöngunnar nema læknir hafi ráðlagt það. Ekki skal nota Hjartamagnýl síðustu 5 dagana fyrir væntan- lega fæðingu. Lyfið berst í brjóstamjólk en verkun á barnið er ekki talin líkleg. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Lyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Ofnæmi. Astmi. Einkenni frá meltingarvegi, jafnvel sárá magaslímhúð. Ofskömmtun: Einkenni ofskömmtunar eru suö fyrir eyrum, heyrnardeyfð, höfuðverkur, svimi, órói og hraður andardráttur eins og af öðrum asetýlsalisýlsýru- lyfjum. Lyfhrif: Asetýlsalisýlsýra hefur verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyðandi áhrif. Verkanir lyfsins byggjast að talsverðu leyti á minnkaðri myndun ákveðinna prostaglandína. Asetýlsalisýlsýra blokkar einnig myndun efnisins tromboxan í blóðflögum, veldur þannig minnkaðri samloðun þeirra og lengir blæðingartíma. Lyfjahvörf: Lyfið frásogast frá maga og smágörnum og nær blóðþéttni hámarki eftir 40-60 mínútur. Asetýlsalisýlsýra klofnar hratt í salisýlsýru og er helmingunartími í blóði um 30 mínútur. Við venjulega skammta er próteinbinding salisýlsýru 80% og helmingunartími í blóði 2-4 klst. Ef dagsskammtar eru stærri en 3 g, lengist helmingunartíminn verulega. Salisýlsýra og umbrotsefni hennar skiljast að mestu út um nýru. Pakkningar: Hjartamagnýl 75 mg, 50töflur. (23.12.03) hagur i heilsu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.