Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2004, Side 28

Læknablaðið - 15.09.2004, Side 28
FRÆÐIGREINAR / SYKURSÝKI TEGUND 2 andi hér eins og í öðrum vestrænum löndum. Með- al HbA,c var um eða undir 7,0% sem er lægra en í svipuðum rannsóknum í öðrum Evrópulöndum og bendir til betri blóðsykurstjórnunar hér. Fleiri ná settum blóðþrýstingsgildum árið 2002 en bæta má blóðþrýstingsstjórnun enn betur. Rannsókn okkar svo og erlendar rannsóknir sýna að blóðfitur eru van- meðhöndlaðar hjá sykursjúkum. Inngangur Sykursýki og fylgikvillar hennar eru vaxandi heilsufars- vandamál um allan heim. Sjúkdómurinn orsakar lang- varandi heilsuleysi og ótímabæran dauða fjölda fólks. Tíðni sykursýki tegund 2 hefur aukist gífurlega undanfama áratugi (1). Utreikningar hafa sýnt að fjöldi sykursjúkra í heiminum mun aukast úr 135 millj- ónum árið 1995 í 300 milljónir árið 2025 (1). Stærsti hluti eða meira en 90% er sykursýki tegund 2(1). Kostnaður vegna sykursýki fer ört vaxandi í vest- rænum löndum. í Bretlandi er talið að 9% af öllum kostnaði við heilbrigðisþjónustu fari í meðhöndlun á sykursýki og fylgikvillum hennar (2) og í Bandaríkj- unum er sambærileg tala 15% (3,4). Talið er að 50-70% af kostnaði sjúkdómsins sé vegna fylgikvillanna (4). Ef hægt er að koma í veg fyrir eða seinka fylgikvillum sykursýki er mikið fé sparað ásamt því mikilvægasta að bæta heilsu og líð- an sjúklinganna. Stórar rannsóknir undanfarin ár hafa tekið af allan vafa um að með góðri blóðsykurstjórnun ásamt góðri blóðþrýstings- og blóðfitumeðferð er hægt að ná slík- um árangri (5-9). Árið 1989 samþykktu aðildarríki alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar svokallaða Saint Vinc- ent yfirlýsingu sem fól í sér reglulega úttekt á stöðu sykursýkismála og viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir kostnaðarsama fylgikvilla (10). I kjölfarið hófu nokkrar þjóðir að skrá upplýsingar um meðferð og fylgikvilla sykursjúkra (10). Rannsóknir á sykursýki á Islandi seinustu tvo ára- tugi hafa sýnt lægri tíðni vissra fylgikvilla, svo sem blindu og nýrnabilunar, en í öðrum vestrænum lönd- um (11, 12). Minna er vitað um aðra fylgikvilla, svo sem hjarta- og æðasjúkdóma. Tilgangurinn með rann- sókn þessari var að gera úttekt á stöðu mála hvað varðar meðferðarform og árangur meðferðar hjá hópi Tafla 1. Kynja- og aldursskipting. Island 2001 GSS LSH * n=906 Island 2002 GSS LSH n=501 Svíþjóð 2002 Heilsugæsla n=33.666 Svíþjóð 2002 Göngudeild n=14.169 Karlar/konur (%) 60/40 60/40 54/46 62/38 Meðalaldur (ár) 66 65,76 (13,14) 68,5(11,4) 60,4 (11,7) Meðalaldur við greiningu (ár) 58 56,7 (13,1) 60,4 (11,7) 47,7 (11,1) * Göngudeild sykursjúkra á Landspítala Hringbraut. fólks með sykursýki tegund 2 sem kemur til eftirlits á stærstu sykursýkismóttöku landsins, Göngudeild syk- ursjúkra, Landspítala Hringbraut og bera niðurstöður saman við tölur erlendis frá eftir því sem hægt er. Efniviður og aðferðir Árlega koma 1600-1700 einstaklingar (tegund 1 og 2, meðgöngusykursýki og fleira) í rannsókn eða eftirlit á Göngudeild sykursjúkra Landspítala Hringbraut. Flestir koma þrisvar til fjórum sinnum á ári og er heild- arfjöldi læknisviðtala og -skoðana um 5000 á ári. Rannsóknin var tvískipt. Annars vegar voru sjúkra- skrár allra sjúklinga með sykursýki tegund 2 (906 sjúklingar) sem komu í eftirlit, greiningu eða meðferð á árinu 2001 á Göngudeild sykursjúkra skoðaðar og skráðar upplýsingar um eftirfarandi atriði: greining- arár, aldur við greiningu, þyngdarstuðul (BMI), syk- urbundinn blóðrauða (HbA^c), blóðfitugildi, blóð- þrýsting, notkun blóðfitu- og blóðþrýstingslækkandi lyfja, ásamt sykursýkismeðferð. Upplýsingarnar voru skráðar úr seinasta eftirliti á árinu 2001. Hins vegar voru skráðar framvirkt upplýsingar frá apríl 2002 fyrir 501 sjúkling í eftirliti það árið. Skráð voru sömu ofannefnd atriði eins og fyrir árið 2001 en auk þess voru skráðar upplýsingar um tegund og fjölda blóðþrýstings- og sykursýkislyfja, reykingar og sykursýkisbreytingar í augnbotnum. Einnig var skoð- að hversu margir sjúklingar ná viðmiðunarmarkmið- um (13). Árið 2001 voru 94 (10,4%) nýgreindir en 121 (24,2%) á árinu 2002. Upplýsingar um 380 sjúklinga voru skráðar bæði árin. Sykursýki tegund 2 var skilgreind samkvæmt skil- merkjum alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (14). Niðurstöður augnskoðana fengust frá augnlækn- um sjúklinganna en langflestir sjúklinga með sykur- sýki tegund 2 eru í reglubundnu eftirliti hjá augn- læknum. Sykurbundinn blóðrauði (HbAlC) er mældur með DCA-2000 (Bayer) aðferð (eðlileg mörk:4,2-6,2%). í Svíþjóð er notuð önnur mælitækni við HbA,c mæl- ingar (mono-S). Sú tækni mælir HbA,c um einum lægra en tæknin sem notuð er hér á landi og víðast hvar (15). Skráning fór fram í Access og tölfræðileg úrvinnsla fór fram í SPSS. Tölfræðileg marktækni; p<0,05 reikn- að með einhliða Kí kvaðrat prófi. Rannsóknin var samþykkt af Persónuvernd og Vísindasiðanefnd. Til hliðsjónar voru hafðar niðurstöður úr sænska sykursýkisgagnagrunninum (Nationella Diabetes Registret=NDR) (16) fyrir árið 2002. í þennan net- tengda gagnagrunn hafa bæði sérfræðingar í sykur- 624 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.