Læknablaðið - 15.09.2004, Síða 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / DRG Á LANDSPÍTALA
„Mér líst nokkuð vel á DRG sem stjórntæki
íí
- segir Jón Hilmar Alfreðsson sviðsstjóri kvennasviðs Landspítala en það var fyrst til að
innleiða DRG-greiðslukerfi sem á að bæta reksturinn
Að undanförnu hefur hljóðið sem heyrist frá Land-
spítala heldur verið að breytast. Örvæntingaróp
þeirra sem lentu undir niðurskurðarhnífnum eru
ekki eins hávær og áður þótt vissulega sé enn verið
að brýna þann kuta. En í sumar fóru að koma öllu
jákvæðari fréttir af rekstri spítalans. Fyrirsjáanlegur
halli virðist ætla að verða minni en menn óttuðust og
svo virðist vera sem ýmsar aðhaldsaðgerðir séu farnar
að skila árangri. Eflaust á innleiðing svonefnds DRG-
greiðslukerfis sinn þátt í því en þetta kerfi breiðist nú
ört út um deildir og svið hins mikla sjúkrahúss.
DRG er skammstöfun á heitinu Diagnosis Related
Groups og merkir eiginlega Sjúkdómamiðuð flokkun.
Jón Hilmar Alfreðsson sviðsstjóri kvennasviðs spítal-
ans lýsir því svo að það sé millivegur á milli tveggja
kerfa. Annars vegar daggjaldakerfisins sem byggðist
á föstu frantlagi á hvert sjúkrarúm, óháð því hvað var
verið að gera við þann sem í því lá. Hins vegar var sú
aðferð að kostnaðargreina hvern einasta sjúkling og
telja alla plástra, sprautur og nálar sem í hann fara.
Fyrrnefnda kerfið er alltof ónákvæmt og óskilvirkt og
það síðarnefnda ailtof flókið og erfitt í framkvæmd.
I DRG-kerfinu sem upprunnið er í Bandaríkj-
unum fyrir tveimur áratugum eru um 500 sjúkdóma-
flokkar af sjúkdómsgreiningum sem eiga að ná yfir
velflesta þá krankleika sem hrjáð getur mannfólkið.
Gerð er kostnaðaráætlun fyrir hvern flokk og síðan
eiga læknar að meta í hvaða flokk hver aðgerð skuli
sett. Deildirnar fá svo greitt fyrir þær aðgerðir sem
gerðar eru.
Á kvennasviði Landspítala var gerður samningur
árið 2001 um fyrstu tilraunina til að innleiða DRG-
greiðslukerfið á spítalanum. Jón Hilmar Alfreðsson
sviðsstjóri segir að kvennasviðið hafi orðið fyrir val-
inu vegna þess að það var hæfilega stórt.
„Það var samið um að fyrstu árin yrði 30% af
rekstrinum á þessu formi. Nú erum við komin í 50%
og stefnum að því að reksturinn verði að öllu leyti á
Þröstur
Haraldsson
Allir vilja vera með“
segir Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir verkefnisstjóri
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir deildar-
stjóri á skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga
er verkefnisstjóri í hópi sem skipaður var
til að koma DRG-kerfinu í gagnið á Land-
spítala. Hún segir að menn hafi byrjað að
skoða DRG-kerfið skömmu eftir að það
kom fram í Bandaríkjunum en haustið 2000
var hafist handa við að koma því skipulega
í gagnið. Markmiðið var að geta samið við
ríkið um breytta fjármögnun á rekstri spít-
alans árið 2005 og það virðist ætla að nást
þótt ekki sé enn farið að semja.
Hún segir að kerfið sé þegar farið að
skila árangri og gefi góða raun. Það veldur
því að áætlanir um að innleiða það skref
fyrir skref, fyrst á þessari deild og svo á
þeirri næstu, hafi riðlast.
„Þegar fólk sá hvernig þetta virkaði
vildu allir vera með svo við ákváðum að
skella okkur út í djúpu laugina. Það er
búið að innleiða kerfið á flestum deildum,
öllum klínískum legudeildum og erum að
laga kerfið að göngudeildum en sú vinna á
einnig að geta gagnast læknum sem starfa á
eigin stofum. Við sjáum fram á að geta kom-
ið á DRG eða öðru framleiðslutengdu kerfi
á öllum deildum á næsta ári eða snemma
árs 2006. Við erum reyndar búin að reikna
spítalareksturinn í heild út sem DRG-ein-
ingar en það er bara rantminn, svo á eftir
að fylla upp í hann.
Þetta hefur valdið hugarfarsbreytingu
sem sést á því að þótt einhverjir hafi haft
efasemdir í upphafi þá veit ég ekki um
starfsmenn sem eru á móti framleiðslu-
mælikerfi. Þetta hefur aukið kostnaðar-
vitund starfsmanna og er farið að nýtast
okkur til að fylgjast með gæðum starfsins.
Á því áttum við ekki von svo þetta starf
fer fram úr okkar björtustu vonum. Þetta
er þegar farið að skila sér í breytingum á
skráningu og hugsun um nýtingu og hvern-
ig fólk getur gert hlutina betur. Áherslan
hefur færst frá því að einblína á peningana
í það að skoða þjónustuna sem verið er
að veita. Upp úr þessu hafa sprottið ýmis
verkefni sem horfa til úrbóta hér og þar í
starfi spítalans."
Guðrún Björg segir að kerfið veiti sam-
anburð á milli deilda og stofnana sem auð-
veldi starfsfólki að velja hagkvæmustu og
bestu þjónustuna. Það getur verið innlögn
eða göngudeild eða kannski heimahjúkr-
un. En eykur þetta ekki álag á starfsfólk og
skriffinnsku?
„Jú, en við höfurn reynt að vinna með
upplýsingakerfin til að gera þau auðveldari
og notendavænni og þetta starf hefur ýtt
undir þróun rafrænnar sjúkraskrár. Kerf-
ið hefur leitt til endurskoðunar á vöktum
í þeim tilgangi að jafna vinnuálag en það
hefur ekki leitt til uppsagna og ekki fyr-
irsjáanlegt að það gerist,“ segir Guðrún
Björg.
Læknablaðið 2004/90 639