Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2004, Síða 52

Læknablaðið - 15.09.2004, Síða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMEINING HEILBRIGÐISSTOFNANA Sjö heilbrigðisstofnanir sameinaðar Magnús Skúlason ráðinn framkvæmdastjóri á Suðurlandi Um i'Essi mánaðamót verða þau tímamót að allar heil- brigðisstofnanir á Suðurlandi sameinast í eina sem hef- ur hlotið nafnið Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Und- ir þeim hatti verða framvegis sjö heilsugæslustöðvar frá Þorlákshöfn austur að Kirkjubæjarklaustri, auk sjúkrahússins á Selfossi. Þessi nýja stofnun verður meðal stærri heilbrigðisstofnana landsins. Hún þjón- ar um 17 þúsund íbúum og velta hennar er um 1.230 milljónir króna á þessu ári. Heilbrigðisráðherra skipaði á dögunum fram- kvæmdastjóra fyrir þessa nýju stofnun og varð fyrir valinu Magnús Skúlason deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hann er viðskiptafræð- ingur að mennt og starfaði um fimmtán ára skeið á Borgarspítalanum og síðar Sjúkrahúsi Reykjavíkur en hefur starfað á fjármálaskrifstofu ráðuneytisins undanfarin fjögur ár. Þar hefur hans hlutverk meðal annars verið að fylgjast með rekstri heilbrigðisstofn- ana sem ráðuneytið hefur verið að sameina á Aust- urlandi, í Þingeyjarsýslu og á Vestfjörðum. Magnús Skúlason deildar- stjóri í heilbrigðisráðu- neytinu hefur verið ráðinn framkvœmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands með aðsetur á Selfossi. Þröstur Haraldsson Þjónustan aukin Læknablaðið hitti Magn- ús að máli og innti hann eftir því hvernig hefði gengið að sameina þess- ar stofnanir. „Það hefur gengið nokkuð vel. Ráðuneytið kynnti þessi áform fyrst á miðju ári 2003 og þá var fundað með sveitar- stjórnum á Suðurlandi og stjórnendum stofn- ananna sem hluta eiga að máli. Viðbrögð þeirra voru jákvæð þótt vissulega hefðu komið fram athugasemdir. Sveitarstjórnarmenn óttuðust sumir hverjir að til stæði að skerða þjónustu en það var ekki ætlunin, þvert á móti er stefnt að því að styrkja hana. Sumar þessara stofnana eru litlar og þess vegna ekki sterkar stjórnsýslueiningar en með sameiningu er hægt að búa til öfluga stofnun sem get- ur aukið þjónustu við íbúana. Með því móti er hægt að veita meiri þjónustu heima í héraði og draga úr því að fólk þurfi að leita til Reykjavíkur." Eins og áður segir eru heilsugæslustöðvarnar á Suðurlandi sjö talsins; í Þorlákshöfn, Hveragerði, á Selfossi, í Laugarási í Biskupstungum, á Hvolsvelli/ Hellu, í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri. Tvö sjúkrahús eru á Suðurlandi, annað á Selfossi en hitt er réttargeðdeildin á Sogni í Ölfusi. Hún verður ekki hluti af hinni nýju stofnun, ekki frekar en elli- og hjúkrunarheimilin sem starfrækt eru af sveitarfélög- um á Suðurlandi. Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands munu hins vegar hafa umsjón með rekstri réttargeðdeildarinnar. Framkvæmdastjórar stofnananna sjö munu starfa með Magnúsi að sameiningunni fram til 1. desember en þá verða stöður þeirra lagðar niður. Stjórnsýslan verður sameinuð en ekki eru fyrirhugaðar sérstakar breytingar á þjónustu við þessa sameiningu á stjórn- sýslunni, að sögn Magnúsar. Þrengsli á Selfossi Hann segir að héraðið sé nokkuð vel mannað en eins og annars staðar á landinu hefur gengið mis- jafnlega að manna minnstu stöðvarnar. „Það er hins vegar reynslan af Austurlandi og Þingeyjarsýslu að þar hefur gengið betur að manna stöðvarnar eft- ir sameiningu. Starfsmenn sjá að þeir verða hluti af stærri stofnun sem getur boðið upp á fræðslu og afleys- ingar. Stöðvarnar eru ekki eins viðkvæmar fyrir því ef einhver veikist eða hættir og vaktabyrðin verður ekki eins stíf. Það er verið að gera þessar stofnanir að eftirsóknarverðari vinnustöðum fyrir lækna og aðra heilbrigðisstarfsmenn," segir Magnús. Hann bætir því við að með sameiningu verði auðveldara að mennta heilbrigðisstarfsmenn á Suðurlandi, bæði læknakandídata, nema í framhaldsnámi og aðrar heilbrigðisstéttir. „Það er mikilvægt að kynna þeim starfsemina því hugsanlega koma þeir hingað til starfa síðar.“ Vinnustaður Magnúsar verður á Selfossi og segist hann fyrst um sinn ætla að keyra á milli. „Það eru tölu- verð þrengsli í stofnuninni á Selfossi en það stendur vonandi til bóta á næstunni þegar hafist verður handa við að byggja við núverandi húsnæði. Það stendur til að reisa tveggja hæða hús og í það flytur heilsugæslan og verður á neðri hæð. Á efri hæðinni verður hjúkrun- arrými fyrir aldraða sem nú dvelja í Ljósheimum, gamla sjúkrahúsinu við Austurveg. Ástand þess er orðið óviðunandi og heimilið starfrækt á undanþágu frá heilbrigðiseftirliti. Úr þessu þarf að bæta sem fyrst og ég er bjartsýnn á að hafist verði handa við bygging- una áður en langt um líður,“ segir Magnús Skúlason. 648 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.