Læknablaðið - 15.09.2004, Page 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 51
Gifs og tóm glös
I minnisprófi
Farið var að slá út í fyrir gömlu konunni og læknirinn
var að reyna að átta sig á því hversu vel áttuð hún
væri. Dóttir konunnar var henni til halds og trausts
en hélt sér til hlés. Skyndilega fór píptæki læknisins
í gang og hann brá sér út úr herberginu. Gamla kon-
an sneri sér að dótturinni og sagði: „Svona, vertu nú
snögg, hvaða dagur er í dag?“
„Af hverju spyrðu?“ spurði dóttirin.
„Eg er viss um að læknirinn spyr mig um það
næst,“ sagði sú gamla.
Fljót að fæða
Það var komið fram yfir áætlaðan fæðingardag. María
ætlaði svo sannarlega að hafa vaðið fyrir neðan sig í
þetta skipti og flýtti sér upp á fæðingardeild um Ieið
og hún fann fæðingarhríðarnar byrja. Hún komst inn
á fæðingarganginn og var á leið inn á fæðingarstofuna
í hjólastól þegar kollur kom í ljós. Konunni var mjög
brugðið og fór öll hjá sér.
„Þetta er nú ekkert til að skammast sín fyrir,“ sagði
ljósmóðirin hughreystandi. „Það var nú ein sem fæddi
barn í bíl úti á bílaplani í fyrra." Þá brast konan í grát
og sagði: „Það var einmitt ég.“
setið á sér og sendi svar til baka: „Aðeins prump í
glasinu.“
Fyrir nokkrum áratugum
Kona sem var komin hátt á fimmtugsaldurinn og bú-
sett á bóndabæ í afdal norðan heiða kom í kaupstað
til að fæða fjórtánda barn sitt á sextán árum. Ungi
læknirinn sem tók á móti hjá konunni spurði hana
eftir fæðinguna hvort hún vildi eitthvað af getnaðar-
vörnum vita eða jafnvel fara í ófrjósemisaðgerð. Kon-
an horfði undrandi á lækninn og spurði: „Og sleppa
fríinu mínu?“
Bjarni Jónasson
Vindlosun
Sjúklingur sem var lagður inn með þarmastíflu fór
loksins að rétta úr kútnum fjórum dögum eftir komu
á spítalann, án þess að til aðgerðar kæmi. Starfsfólki
deildarinnar létti mjög þegar það spurðist að sjúk-
lingurinn hefði leyst vind og leyfði sér meira að segja
að gleðjast yfir því. Hjúkrunarfræðingur á kvöldvakt
kom til sjúklingsins og sagði: „Ég frétti að þú hefðir
leyst vind í morgun.“ „Ja, það var annaðhvort ég eða
sjúkraþjálfarinn," svaraði sjúklingurinn áhugalítill.
bjarni.jonasson@hg.is
Þvagi safnað
Eiginmaður sem var yfirleitt talsmaður þeirra hjóna
hringdi á rannsóknastofuna og sagði við meinatækn-
inn. „Konan mín er að safna sólarhringsþvagi til rann-
sóknar. Hún er búin að bíða í tuttugu og þrjár klukk-
ustundir með að pissa og nú getur hún ekki beðið
lengur."
Gifsið af
Attræður karlmaður kom í endurkomutíma á slysa-
deild eftir handleggsbrot á hægri og hélt á gifsinu í
vinstri hendinni. Maðurinn greindi frá því að fyrr um
daginn hefði eiginkonan sagað gifsið af handleggn-
um. Sjúkraliðinn spurði manninn af hverju hann
hefði ekki beðið með að láta fjarlægja gifsið þangið
til hann kæmi í endurkomuna. „Ég hef þekkt konuna
mína yfir sextíu ár og treysti henni fullkomlega. Ég
þekki þig hins vegar ekki neitt.“
Tómt glas
Kandídat á lyflækningadeild var orðinn illa lúinn og
lítt sofinn í lok strangrar vaktar. Hann fyllti út beiðni
fyrir rannsókn á saursýni en var svo óheppinn að
beiðnin var send af stað á rannsóknastofuna með
tómu saursýnisglasi. Húmoristi á rannsókn gat ekki
Ein örvhent
Sérfræðingur á kvennadeildinni var að leiðbeina að-
stoðarlækni hvernig taka ætti krabbameinssýni frá
leghálsi. Aðstoðarlæknirinn fylgdist gaumgæfilega
með öllu og tók sérstaklega eftir því hvernig sérfræð-
ingurinn beitti skoðunaráhaldinu.
„Ertu örvhent?" spurði aðstoðarlæknirinn.
Konan í skoðunarstólnum reisti sig upp með undr-
unarsvip og spurði: „Hvernig í ósköpunum gastu vit-
að það?“
Leiðbeininga þörf
Heimilislæknirinn rétti unga manninum þvagsýnis-
glas í plastpoka og bað hann um að koma með morg-
unþvag á rannsóknastofuna daginn eftir. Meinatækn-
irinn rak upp stór augu þegar maðurinn birtist með
plastpokann fullan af hlandi og tómt glasið á floti í
pokanum.
Hvaða stærð?
Faðir unglingsdrengs kom í Lyfju og bað um íþrótta-
bindi fyrir soninn.
„Hvaða stærð?" spurði afgreiðslustúlkan.
Maðurinn hélt vísifingri og þumli rúma fimm sent-
imetra í sundur. „Um það bil svona.“
„Nei, ég meina mittismálið,“ sagði stúlkan.
Bjarni er heimilislæknir
í Garðabæ.
Læknablaðið 2004/90 659