Læknablaðið - 15.07.2005, Side 26
FRÆÐIGREINAR / HRÖRNUN í AUGNBOTNUM
Mynd 9. Klassísk nýœðamyndun - fluorsceinœðamynd.
Mynd 11. Eðlileg miðgróf sjónhimnu með séð með OCT.
graphy) hel'ur valdið byltingu við sjúkdómsgrein-
ingu í og undir sjónhimnu, sjá myndir 11 og 12
(11). Aðferðin er nokkurs konar ómun með ljós-
geislum þar sem leysigeisli er sendur inn í augað
og endurvarpið skráð og úr verður sneiðmynd af
augnbotni.
Meðferð
Við þurri ellihrörnun í augnbotnum er engin með-
ferð. Fyrsta meðferðin við votri ellihrörnun sem
kom var Argon leysimeðferð. Þrátt fyrir víðtæka
notkun í fyrstu kom í ljós að meðferðin gaf einungis
árangur gegn klassískri votri hrörnun utan miðgróf-
ar. Þar sem flestar himnur í votri ellihrörnun ná inn
undir miðgróf hefur verið lagt mikið í rannsóknir á
nýjum meðferðarmöguleikum. Undanfarin ár hefur
aðferð sem byggir á ljósnæmu lyfi og leysiljósi gefið
góða raun. Þessi aðferð sem nefnist Photodynamic
Therapy byggir á að Ijósnæmu efni, verteporfin
(Visudyne®) er sprautað í æð. Það binst sértækt
LDL (low-density lipoprotein) viðtökum í vegg
nýmyndaðra æða undir sjónhimnu. Því næst er
hrörnunin í auganu meðhöndluð með rauðum leysi
(698nm bylgjulengd) og þannig er lyfið virkjað. Það
veldur losun frírra radíkala sent eyðileggja æða-
veggi og valda þannig sértækri lokun þessara æða án
þess að hafa áhrif á nærliggjandi æðar og vefi.
Sjúklingar með klassískan sjúkdóm sem fengu
þessa meðferð misstu marktækt minni sjón saman-
Mynd 10. Occult nýœðamyndun - fluorsceinœðamynd.
Mynd 12. Miðgróf sjónhimnu með klassíska nýæða-
myndun undir miðgróf séð með OCT.
borið við þá sem fengu enga meðferð (12). Síðar
hefur einnig tekist að sýna fram á marktækan mun
til hins betra í hópi sjúklinga með occult sjúkdóm
sem og þeirra sem fá nýæðamyndun undir sjón-
himnu af öðrum orsökum, svo sem nærsýni, pre-
sumed ocular histoplasmosis (POHS) og Angioid
Streaks (13-15).
Hjá sjúklingum með langt genginn sjúkdóm
hefur skurðaðgerð verið möguleg undanfarin ár.
Þetta er töluvert flókin aðgerð þar sem sjónhintn-
an er losuð frá undirlaginu og henni snúið þannig
að miðgrófin lendi á heilbrigðu undirlagi. Við það
snýst myndin og því þarf nokkrunt vikum síðar að
losa alla vöðva augans og snúa auganu til baka.
Reynsla af þessum aðgerð hefur verið misgóð en
eftir því sem náðst hafa belri tök á tækninni og
réttir sjúklingar valdir til meðferðar hefur árang-
urinn batnað (16).
Fleiri aðferðir hafa verið reyndar til að stöðva
sjúkdóntinn og jafnvel koma í veg fyrir hann. Ný-
leg rannsókn hefur sýnt fram á verndandi áhrif
ákveðinna vítamína og antioxidanta gegn votri augn-
botnahrörnun (17). Sjúklingar sem hafa fengið vota
hrörnun í eitt auga og eru með drusen í hinu, ná að
draga úr líkum á votri hrörnun á því auga með því
að taka ákveðna skammta af C- og E-vítamínum,
zinki, kopara og betakaróteni. í byrjun árs 2005 var
nýtt lyf, Macugen®, samþykkt í Bandaríkjunum til
nteðhöndlunar votri ellihrörnun. Þetta lyf sem er
594 Læknablaðið 2005/91