Fréttatíminn - 12.09.2014, Qupperneq 34
citroen.is
C3
LÆGRA VERÐ - FRÁ 2.250.000 KR.
Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Nýir og notaðir bílar: Söludeild er opin alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Við frumsýnum nýja bíltækni á lægra verði. Hinar nýju PureTech vélar frá Citroën hafa meiri kraft, lægri eldsneytiseyðslu
og 25% minni losun koltvísýrings en fyrri kynslóðir slíkra véla. Eldsneytiseyðsla Citroën C3 með nýju PureTech vélinni er
aðeins 4,3 l/100 km í blönduðum akstri.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Komdu og reynsluaktu vel búnum Citroën C3.
CRÉATIVE TECHNOLOGIE
NÝR CITROËN C3
LÆGRA BÍLVERÐ - MINNI EYÐSLA
„Það var annað sem mér fannst stórkostlegt
að upplifa í þessari ferð og það var þegar nokkr-
ir strákar úr fátækrahverfinu sem við heim-
sóttum við útjaðar höfuðborgarinnar plötuðu
mig til að spila með sér fótbolta,“ segir Ólafur
Darri og hlær. „Þeir kölluðu í mig og bara
drógu mig bókstaflega inn í leikinn og ég hef
sjaldan skemmt mér jafn vel. Það er svo merki-
legt að sjá svona mikla gleði og fegurð innan
um annars þessa miklu neyð sem þarna ríkir.
Því eins og þetta var nú falleg
stund þá var þessi heimsókn í
fátækrahverfin eitt það erfiðasta
við ferðina. Það fyrsta sem slær
mann þar er lyktin og mikið rusl
allsstaðar. Svo eru bara börn út
um allt. En samt er svo áber-
andi hvað allir eru að reyna að
bjarga sér, það er svo mikil von.
Á einum staðnum sáum við eins-
konar endurvinnslustöð þar sem
fólk fer með allt endurnýtanlegt
úr ruslinu og fær greitt fyrir. Á
öðrum stað í hverfinu er starf-
rækt þvottahús. Það eru allir að
vinna alls staðar.“
Barnungar stúlkur í vændi
Blendnar tilfinningarnar sem
Ólafur Darri upplifði í fátækra-
hverfinu breyttust í sorg þegar
hann hitti fyrir barnungar stúlk-
ur sem neyðast til að stunda
vændi til að lifa af. „Sú yngsta
sem við sáum var ellefu ára.
Það var hryllilega sorglegt. Ég
talaði við nokkrar þeirra og þær
voru bara börn, þetta var mjög
átakanlegt. Við hittum þarna
konu, sem stundaði vændi áður, sem tók það
upp hjá sjálfri sér að passa upp á vændiskonur
í hverfinu, hjálpa þeim og veita þeim ráðgjöf.
Hún fór að dreifa smokkum til þeirra og þá setti
UNICEF sig í samband við hana og fór að að-
stoða hana. Svo núna er hún komin í samstarf
við UNICEF. Ég verð bara að segja aftur hversu
frábært mér finnst það vera að svona stór sam-
tök sem starfa um allan heiminn vinna á svona
sterkan hátt innan samfélaganna og með þeim.
Sjálfboðaliðar í pínu litlu þorpi á Madagaskar,
og á ótal öðrum stöðum í heiminum, fá tæki og
tól frá UNICEF sem hefur áhrif svo langt upp
stigann.“
Börnin skipta mestu máli
„Maður fær ákveðið samviskubit yfir því að lifa
svona góðu lífi þegar aðrir eiga svona lítið. Ekki
það að ég sé ríkur maður, en samt finnst mér
ég skyldugur til þess að leggja eitt-
hvað af mörkum til að gera heiminn
að betri stað,“ segir Ólafur Darri og
notar tækifærið til að hvetja alla til
að gerast heimsforeldar UNICEF.
„Fyrir flest okkar eru 2500 krónur á
mánuði ekki miklir peningar. Eftir
að hafa fengið að fara á stað sem
nýtur svona góðs af þessu framlagi
þá get ég ekki annað en mælt með
því að allir sem geti gefi þessa gjöf
til barnanna með hjálp UNICEF. Ég
veit að við erum öll sammála um það
að standa vörð um réttindi og hag
barna, allra barna sama hvar þau
fæðast og alast upp. Gamla klisjan
á vel við um það að þegar maður
eignast sjálfur börn og getur ekki
bara rétt öðrum þau þegar maður
er orðinn þreyttur þá opnast fyrir
manni nýr heimur. Maður verður
þátttakandi í þessum stórkostlega
hugarheimi barnsins, sem bara
hættir ekki að koma manni á óvart.
Dætur mínar gera það að verkum
að maður getur ekki beðið eftir að
vakna og heyra fleiri gullmola og
djúpvitrar pælingar. Á sama tíma,
um allan heim, hugsa ótal foreldrar
það sama en eru í ofanálag áhyggjufullir um
framtíð og heilsu barnanna sinna vegna þess að
ytri aðstæður þeirra eru á annan veg en okkar.
„It takes a village to raise a child“ og börn
heimsins eru á ábyrgð okkar allra. Það er bara
ekkert mikilvægara en börnin.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
heimsföreldrar
Heimsforeldrar UNICEF
mynda net sem nær
um alla heimsbyggðina
og grípur bágstödd
börn sem þurfa hjálp.
Heimsforeldrar gæta að
velferð barna um heim
allan, hjálpa börnum
sem eiga undir högg
að sækja, börnum á
öllum aldri, í ólíkum
aðstæðum – allan ársins
hring. Í dag gæti gjöf
þín sem heimsforeldri
hjálpað ungri stúlku að
ganga í skóla í fyrsta
sinn. Á morgun gæti
barn fengið meðferð
við alvarlegri vannær-
ingu eða losnað undan
barnaþrælkun. Heims-
foreldrar styðja þannig
ekki við eitt barn í einu
samfélagi heldur hjálpa
börnum um allan heim.
„Börnin þurfa að
hafa málsvara, ein-
hvern sem passar
upp á að þau njóta
réttinda sem við á
Íslandi teljum sjálf-
sögð, einhvern sem
hjálpar börnunum og
fjölskyldum þeirra
með mat, skóla, föt,
lyf og fleira. Það
er það sem UNICEF
gerir, á Madagaskar
og í ótal löndum í
heiminum. UNICEF
starfar í yfir 190
löndum í heiminum
og eru rekin áfram
með hjálp hugsjóna-
fólks eins og heims-
foreldra og af ástríðu
fyrir réttindum og
velferð barna. Það
er eitthvað sem ég
vil vera hluti af. Þess
vegna er ég heims-
foreldri.“
34 viðtal Helgin 12.-14. september 2014