Fréttatíminn - 12.09.2014, Side 82
Þetta er ný
tilfinning og
mjög góð.
TónlisT ÁTTa Ára bið efTir plöTu Damiens rice Á enDa
Fjöldi Íslendinga spilar
á plötu Damiens Rice
Ný plata með írska tónlistarmann-
inum og Íslandsvininum Damien
Rice, sem ber nafnið My Favorite
Faded Fantasy, kemur úr í byrjun
nóvember. Nýs efnis hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu en
8 ár eru liðin frá útgáfu plötunnar
„9“ sem naut gríðarlega vinsælda.
Síðan hefur lítið spurst til Damien
Rice.
Á þessarri nýju plötu hans vinn-
ur hann með Rick Rubin sem unn-
ið hefur að mörgum bestu plötum
sem út hafa komið, að mati gagn-
rýnenda. Það sem vekur áhuga
okkar Íslendinga er þó það, að
upptökur fóru m.a fram á Íslandi
og nokkrir íslenskir hljóðfæraleik-
arar koma við sögu á plötunni. Þar
má helst nefna Magnús Trygvason
Eliassen trommuleikara, Bryndísi
Höllu Gylfadóttur sellóleikara og
básúnuleikarann Helga Hrafn Jóns-
son, en hljóðver hans á Seltjarnar-
nesi, Big Spring Studio, var eitt af
þeim sem notað var til upptöku á
plötunni. Einnig notaði Rice sund-
laug Sigur Rósar í Mosfellsbæ og
Gróðurhús Valgeirs Sigurðssonar
í Breiðholti til þess að vinna. Fjöl-
miðlafólk og gagnrýnendur hlust-
uðu á plötuna fyrr í þessari viku
og verður fróðlegt að fylgjast með
dómum um þessa plötu, sem beðið
hefur verið af mikilli eftirvænt-
ingu. -hf
Damien Rice er Íslandsvinur af bestu gerð. Ný plata hans var að stórum hluta tekin
upp hér á landi og fjöldi íslenskra listamanna lagði honum lið.
Ingó segist mjög spenntur fyrir
viðbrögðum áhorfenda í sjón-
varpsþættinum Minute to win it.
Ljósmynd/Hari
sjónvarp ingó sTýrir minuTe To win iT Á skjÁeinum
Ástfanginn í fyrsta sinn
Í næstu viku hefur göngu sína á Skjá 1 nýr þáttur sem nefnist Minute to win it Ísland. Þætt-
irnir, sem hafa verið framleiddir í mörgum löndum, ganga út á það að keppendur hafa eina
mínútu til þess að framkvæma erfiða þraut sem lögð er fyrir þá í hverjum þætti. Umsjónar-
maðurinn verður söngvarinn og tónlistarmaðurinn knái Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó eins
og allir þekkja hann, en hann mætir til leiks með nýjar tilfinningar sem bærast í brjóstinu.
Þ etta er búið að vera mjög skemmtilegt, og ég upplifi þetta ekki mikið öðruvísi
en að mæta bara með gítarinn,“
segir Ingó sem reynir fyrir sér í
fyrsta sinn sem þáttastjórnandi í
sjónvarpi.
„Maður er búinn að vera að
koma fram í tíu ár með kassagít-
arinn og núna undanfarið er ég
búinn að vera að koma fram með
allskonar þrautir og það er ótrú-
lega skemmtilegt og fjölbreyttara
oftar en hitt.“
Búið er að taka upp nokkra
þætti og segir Ingó það vera erf-
itt ferli. „Það getur verið mjög
strembið og mikil orka sem fer í
það, ekkert ósvipað og að spila á
fjögurra tíma balli. En einnig er
mikil orka í keppendum og mér
finnst þeir smita mjög út frá sér og
hrífa mann með. Það verður auð-
velt fyrir áhorfendur að halda með
mörgum sem taka þátt í þessu því
áhuginn og metnaðurinn er svo
mikill. Ég hef mikla trú á því að
þegar fólki sér einn þátt, þá vilji
það pottþétt horfa á annan. Þetta
er ávanabindandi.“
Þættirnir hafa verið sýndir
um allan heim og margir skraut-
legir karakterar sem hafa verið
stjórnendur. Einn allra frægasti
er sjónvarpskokkurinn Guy Fieri
sem stýrir þáttunum í Bandaríkj-
unum. Er Ingó búinn að læra alla
taktana? „Ég geri þetta svolítið á
minn hátt, mér finnst kjánalegt að
herma. Stundum er ég spenntur
og stundum er maður bara ekk-
ert spenntur,“ segir Ingó sem fer
sínar eigin leiðir í sinni nálgun.
Sumarið vonbrigði
Ingó gerðist þjálfari Hamars frá
Hveragerði í 3. deild karla í knatt-
spyrnu í sumar en árangurinn var
alls ekki sá sem Ingó ætlaði sér.
„Það gekk ömurlega, ekkert flókn-
ara en það. Þetta var aðeins öðru-
vísi en ég hélt þetta mundi verða,
og þessi deild er öðruvísi en það
sem ég þekkti áður. Ég veit ekki
hvað tekur við, en ég mun pottþétt
sprikla eitthvað í fótbolta áfram.
Það verður bara að koma í ljós
hvar og með hverjum.“
Veðurguðinn hefur verið að
spila hverja einustu helgi og oft í
viku undanfarinn áratug og hann
segir ennþá vera mjög mikið að
gera í því. „Já, það er allt vitlaust
að gera í því. Ég er oftar einn eða
með píanóleikara heldur en með
Veðurguðunum. Það hefur bara
þróast út í það, en auðvitað koma
böll inn á milli. Stemningin er
samt alveg jafn góð. Ég ætla að
senda frá mér ný lög í vetur, og
nokkur eru nú þegar tilbúin. Ég
er samt ekki svo spenntur fyrir því
að gera plötu, en það er gaman að
senda frá sér lög.“
Fann ástina
Ingó stendur á ákveðnum tíma-
mótum um þessar mundir þar
sem hann er búinn að finna ástina
og er kominn í samband, eitthvað
sem hann hefur aldrei verið mikið
fyrir.
„Ég er ástfanginn í fyrsta sinn
og það er bara frábær tilfinn-
ing. Hún heitir Rakel og er hár-
greiðslukona og vinnur í Borgar-
leikhúsinu. Við kynntumst fyrir
nokkrum mánuðum og hún er
bara frábær manneskja. Þetta er
ný tilfinning og mjög góð,“ segir
Ingó léttur.
Fyrsti þátturinn af Minute to
win it Ísland verður frumsýndur
á Skjá 1 fimmtudaginn 18. sept-
ember.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Hjaltalín í
Hrauninu
Spennuþáttaröðin Hraunið
verður frumsýnd á RÚV í
lok þessa mánaðar. Þætt-
irnir eru sjálfstætt fram-
hald Hamarsins sem sýndir
voru fyrir fimm árum
síðan. Sem fyrr er valinn
maður í hverju rúmi við
gerð þáttanna; leikstjóri
er Reynir Lyngdal og þau
Björn Hlynur Haraldsson
og María Ellingsen eru í
stórum hlutverkum eins
og í fyrri þáttaröðinni.
Hljómsveitin Hjaltalín á
titillagið í þáttunum og ættu
aðdáendur sveitarinnar að
fylgjast vel með því lagið er
sagt gefa forsmekkinn af
væntanlegri plötu...
Met í Borgar-
leikhúsinu
Met var slegið í Borgar-
leikhúsinu síðastliðinn
þriðjudag í sölu áskriftar-
korta. Aldrei áður í sögu
Leikfélags Reykjavíkur hafa
fleiri áskriftarkort selst á
einum degi. Mikil gleði og
eftirvænting ríkti í húsinu en
strax daginn eftir fór metið
enn hærra. Því er óhætt að
segja að nýtt leikár Kristínar
Eysteinsdóttur leikhússtjóra
fari afar vel í leikhúsgesti.
Flóamarkaður
Sagafilm
Framleiðslufyrirtækið
Sagafilm heldur flóa-
markað í húsakynnum
sínum við Laugaveg 176
á laugardaginn. Saga-
film auglýsir eftir nýjum
eigendum að leikmunum,
fatnaði, tækjabúnaði
og fleiru sem safnast
hefur upp í farsælli og fjöl-
breyttri 36 ára sögu fyrir-
tækisins. Þar er fatnaður
ýmiskonar, eldhúsáhöld,
leikföng, húsgögn, raftæki
og allt milli himins og
jarðar. Þá eru þar einstak-
ir leikmunir úr framleiðslu
fyrirtækisins, bæði kvik-
myndum, auglýsingum og
sjónvarpsþáttum. Einnig
mun starfsfólk Sagafilm
leggja í púkkið úr eigin
geymslum. Að minnsta
kosti einn eldhúsvaskur
verður á boðstólum.
Markaðurinn verður
opnaður klukkan 13 og
stendur til klukkan 17.
Gísli og Nína
flytja út á Nes
Leikarahjónin Gísli Örn
Garðarsson og Nína Dögg
Filippusdóttir flytja á næst-
unni úr miðbæ Reykjavíkur og
út á Seltjarnarnes. Þau hafa
undanfarin ár verið búsett við
Bergstaðastræti en hafa nú
fest kaup á húsi við bæjarmörk
Reykjavíkur og Seltjarnarness.
Húsið nefnist Sækambur. Gísli
Örn er þegar farinn að máta sig
við bæinn því hann hefur sést
reglulega í Sundlaug Seltjarn-
arness síðustu morgna.
82 dægurmál Helgin 12.-14. september 2014
Bókaðu ferðina á uu.is
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Viðbótarsæti
í næstu viku
17.–24. september 2014
HHHH ZENTRAL CENTER
69.900 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna
í tvíbýli með morgunverði.
7 nætur á Tenerife