Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2006, Page 30

Læknablaðið - 15.03.2006, Page 30
FRÆÐIGREINAR / ANDNAUÐ algengustu ástæður reyndust vera lungnabólga, lífhimnubólga, fjöláverkar, sýklasótt og skurðað- gerð í kviðarholi. Aðrar ástæður reyndust fjöl- breytilegar en ef orsökum er skipt í uppruna utan lungna (óbeinn lungnaáverki) eða innan lungna (beinn lungnaáverki) sést að í meirihluta tilfella er orsökin utan lungna og dánarhlutfall er marktækt hærra ef undirliggjandi sjúkdómur byrjar í lungum (sjá töflu IV). Gattinoni og félagar (20) hafa bent á að hugsanlega svari sjúklingar misvel þeim með- ferðarmöguleikum sem í boði eru eftir því hvort um beinan eða óbeinan lungnaáverka sé að ræða en í þeirra rannsókn reyndist ekki vera munur á dánarhlutfalli. Meðferð BAH byggist fyrst og fremst á stuðn- ingsaðferðum þar sem reynt er að koma sjúk- lingunum yfir hina alvarlegu öndunarbilun og hafa mestar framfarir orðið á því sviði. Ýmsar aðferðir hafa verið reyndar í meðferð eins og innöndun á nituroxíði (NO) (21) til þess að lækka þrýsting í lungnaslagæðakerfinu, innöndun á prostacyklíni (22), einnig til þess að lækka lungnaháþrýsting, og margs konar ónæmisbælandi lyf hafa verið prófuð til að draga úr bólgusvari en yfirleitt án teljandi ár- angurs. Margt hefur einnig verið reynt í öndunar- vélarmeðferð eins og hátíðniþeytiöndun (high fre- quency jet ventilation, HFJV) (23), hátíðnihristi- öndun (high frequency oscillation, HFO) (24), grúfulega (25) og ýmsar stillingar á hefðbundinni öndunarvélarmeðferð, svo sem þrýstingsstýrð önd- un og PEEP (26). Ástand sjúklinga með BAH get- ur orðið það slæmt að venjuleg öndunarvélarmeð- ferð dugar ekki og er þá stundum reynd meðferð með hátíðniöndunarvélum. Það var gert í 12 tilfell- um á rannsóknartímabilinu en hjá þeim sjúkling- um var dánarhlutfall 58%. í erfiðustu tilfellum hefur verið notuð hjarta- og lungnavél (ECMO) til að súrefnismetta blóðið utan líkamans og hvíla þannig lungun. Þeirri aðferð var beitt í einu tilfelli á tímabilinu. Síðustu tvö ár rannsóknar okkar var grúfulega 6-12 klst/sólarhring notuð í 12 tilfellum og var dánarhlutfall í þeim hópi 33% en erfitt er þó draga ályktun um árangur af svo litlum hópi. í nýlegum rannsóknum hefur ekki tekist að sýna fram á að grúfulega bæti horfur nema hugsanlega hjá veikustu sjúklingunum en meðferðin bætir greinilega súrefnisbúskap hjá sjúklingum með BAH (25,27). í heildina séð virðist lungnaverndandi önd- unarvélarmeðferð (lung protective ventilation), grúfulega 6-12 klst og HFO öndunarvélarmeðferð hafa skilað bestum árangri. Það vantar þó frekari rannsóknir á því hvaða meðferðarúrræði reynast best til þess að auka lífslíkur sjúklinga með BAH. Athyglisvert er hve mikil breyting varð í önd- unarvélarmeðferð á tímabilinu með aukningu á notkun þrýstingsstýrðar öndunar. Samkvæmt niðurstöðunum virðist vera marktækt lægra dán- arhlutfall þegar notuð er þrýstingsstýrð öndun á öndunarvél í samanburði við rúmmálsstýrða öndun. Með notkun þrýstingsstýrðrar öndunar er reynt að hlífa öndunarvegum og lungnafrumum við háurn innöndunarþrýstingi. Birt hefur verið rannsókn þar sem lungnaverndandi öndunarvél- armeðferð reyndist auka lífslíkur sjúklinga með BAH (7). I þeirri meðferð var notuð rúmmáls- stýrð öndun með þrýstingstakmörkum (Pmax <35 cm/H,0) og andrýmd (tidal volume) haldið um 6 ml/kg. Slfk meðferð er talin draga úr þrýst- ingsáverkum (barotrauma) og rúmmálsáverkum (volutrauma) í lungum og er einnig talin draga úr þensluáverkum á lungnavef. Samkvæmt nið- urstöðum þeirrar rannsóknar náðist að lækka dánarhlutfall úr 40% niður í 31% og telst það einn besti árangur sem náðst hefur í meðferð á BAH á síðustu árum. I rannsóknina voru einnig teknir sjúklingar með bráðan lungnaáverka (Pa02/Fi02 <300) og ákveðið úrval fór fram sem ef til vill gerir samanburð við aðrar rannsóknir erfiðan. Flestar nýlegar rannsóknir hafa sýnt dánarhlutfall 40-50% og það reyndist jafnvel enn hærra, eða 55%, í fjölsetrarannsókn frá 2004 (3). Sumir greinahöf- undar hafa þó bent á lækkandi dánartíðni und- anfarinn áratug (28-30). Tilhneigingu til lækkunar dánarhlutfalls seinni hluta tímabilsins má sjá á niðurstöðum rannsóknarinnar en þar sem dán- arhlutfall er mjög breytilegt milli ára getur slíkur samanburður verið erfiður sérstaklega þar sem efniviðurinn er ekki stór. Þó var reynt að draga úr áhrifum breytilegs dánarhlutfalls með því að skipta rannsóknartímabilinu í tvennt og bera saman tvö fimm ára tímabil. Hið breytilega dánarhlutfall sést vel á mynd 1 en þar fylgir það nokkuð APACHE II gildi sem einnig er lægra þau ár sem dánarhlut- fallið er lágt og ástand sjúklinga hugsanlega ekki eins alvarlegt. Sjá má lækkun í dánartíðni síðustu tvö ár tímabilsins sem gæti gefið von um betri ár- angur meðferðar þessara sjúklinga. Fróðlegt væri að sjá hvort sú þróun hefur haldið áfram og væri það tilefni til áframhaldandi könnunar á nýgengi BAH og afdrifum sjúklinga. Samantekt Tíðni bráðs andnauðarheilkennis virðist fara vax- andi á íslandi og árlega greinast að meðaltali 15 sjúklingar með þetta heilkenni í kjölfar annars alvarlegs sjúkdóms, eitrunar eða slyss. Flestir sjúklingar þurfa meðferð í öndunarvél, að með- altali í 16 daga og meðallegutími á sjúkrahúsi er 39 dagar. Dánarhlutfall er 40% og tilhneiging til lækkunar sést á rannsóknartímabilinu. Notkun 206 Læknablaðið 2006/92

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.