Læknablaðið - 15.03.2006, Side 34
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Haldið ti
Sigurbjörn
Sveinsson
form@lis.is
Höfundur er formaður
stjórnar LÍ.
í pistlunum Af sjónurhóli
stjórnar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Hvað er pólitísk ákvörðun? Er það ákvörðun sem
byggir á einhverjum öðrum forsendum en þeim
sem fagmenn gefa sér? Er það ákvörðun þeirra
sem sjá minni hagsmuni í öðru ljósi en fagaðilar?
Gefa hinum svokölluðu minni hagsmunum annað
vægi en sérfróðir gera í samanburði við meiri hags-
muni. Fylgir hinni pólitísku ákvörðun krafa um að
hún sé ekki vegin með sama hætti og þær ákvarð-
anir sem teknar eru á faglegum forsendum; með
öðrum orðum að ekki þurfi að svara fyrir hana
með rökum sem standast þurfa almenna gagn-
rýni?
Þess konar dæmi eru vel þekkt. Sagan segir
að það hafi tekið þingmenn Vestfjarða ein-
ungis tíu mínútur að taka ákvörðun um teng-
ingu landshlutans við þjóðvegakerfi landsins um
Steingrímsfjarðarheiði. Heiðin var lakasti kostur-
inn af þremur að áliti fagaðila, það er Vegagerðar-
innar. Ákvörðunin var greinilega háð einhverjum
öðrum hagsmunum en tæknimenn höfðu komið
auga á við rannsóknir árum saman. Þá var sagt að
þetta hefði verið pólitísk ákvörðun.
Skemmtileg umræða hefur vaknað að nýju um
sameiningu sjúkrahúsanna tveggja í Reykjavík.
Því ræður stórfróðlegt doktorsrit Sigurbjargar
Sigurgeirsdóttur, stjórnsýslufræðings, sem kynnt
er hér annars staðar í blaðinu (1). Sigurbjörg gerir
í niðurstöðum sínum hárbeittar athugasemdir
við þróun heilbrigðisþjónustu á Islandi og dregur
neyðarlega fram hvernig stefnumótandi ákvarð-
anir ráðast af atburðum líðandi stundar. Meðal
annars má lesa það út úr umfjöllun hennar að sam-
eining sjúkrahúsanna tveggja hafi loks tekist vegna
þverrandi samstöðu og andstöðu lækna og vaxandi
hugmyndafræðilegrar leiðsagnar vel menntaðra
hjúkrunarfræðinga í samfélaginu.
Hvað sem því líður er rétt við þetta tilefni að
rifja í fáum orðum upp aðkomu Læknafélags
fslands að þessu sameiningarferli og skoðun þess á
því sem gerðist, þegar það gerðist.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðismálaráðherra,
kom á aðalfund lækna í Borgarnesi haustið 1997
(2). Af ýmsum ástæðum var þungt í læknum, yfir-
standandi sparnaðaraðgerðir og niðurskurður og
erfiðir samningar bæði fyrir sjúkrahúslækna og
sjálfstætt starfandi sérfræðinga. í umræðum kom
skýrt fram sá vilji ráðherrans að sameina yfirstjórn
Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur og engum
duldist að áform voru um eitt sjúkrahús. Kallaði
ráðherrann eftir stuðningi lækna við þessa pólitík.
Minnist ég þess ekki, að nokkur á fundinum hafi
mælt bót þessu ráðabruggi stjórnvalda.
Á aðalfundi félagsins 1998 var kominn annar
tónn í ráðherrann. Þá fullyrti hún, að ekki væri
pólitískur vilji fyrir sameiningu sjúkrahúsanna en
vildi þó auka hagkvæmni með aukinni samvinnu.
Kom fram í máli hennar að hana langaði til að
gera tilraun með einn forstjóra yfir báðum sjúkra-
húsunum í að minnsta kosti eitt ár. Það gekk eftir
í desember 1998. Aðalfundurinn samþykkti síðan
„að fela stjórn Læknafélags íslands að skipa starfs-
hóp sem skoða á með hvaða hætti samvinnu og
verkaskiptingu sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu
sé best fyrir komið“ (3).
Því var öllum ljóst að hverju stefndi, hvað sem
pólitískum vilja liði. Stjórn Læknafélags íslands
skipaði þann 24. febrúar 1999 starfshóp sem fékk
erindi það, sem aðalfundurinn hafði mælt fyrir
um. Fyrir hópnum fór Kristján Guðmundsson
og með honum Jens Kjartansson og Guðmundur
Þorgeirsson. Skoðað í ljósi sögunnar er nefnd-
arálitið (maí 1999) að mörgu leyti athyglisvert og
framsýnt þó ekki hafi nefndarmenn komist að
afgerandi niðurstöðu í sameiningarmálinu. Þó eru
eftirfarnandi tilvitnanir til marks um hvert hugur
nefndarinnar stóð. „Ýmis rök mæla með því, að
þjóðin geti ekki staðið undir nema einu háskóla-
og hátæknisjúkrahúsi." „Ef reynt er að ráða í
pólitískar rúnir undanfarinna ára virðist sameining
SHR og RSP vera í spilunum en án skýrra fram-
tíðarmarkmiða." „Ef litið er til framtíðar telur
nefndin að byggja eigi eitt sjúkrahús sem rúmi nú-
verandi starfsemi Borgarspítala og Landspítala og
það er eðlilegt að krefjast pólitískrar afstöðu þar
að lútandi. Verði niðurstaðan sameining, þá renna
áðurgreindar stofnanir í eina nýja stofnun með eitt
markmið.“ (4)
I framhaldi þessa var gerð tilraun innan stjórnar
LÍ sumarið 1999 til að ná samstöðu um álit sem
byggði á niðurstöðum nefndarinnar. Það mistókst.
í stað þess lagði stjórnin til við aðalfund þá um
haustið að ekki væri „tímabært að sameina stóru
sjúkrahúsin tvö í Reykjavík, Ríkisspítalana og
Sjúkrahús Reykjavíkur“. Heitar umræður urðu
um sameiningarmálið og starfshópur um til-
lögu stjórnar skilaði gagnstæðu áliti þess efnis,
210 Læknablaðið 2006/92