Læknablaðið - 15.03.2006, Síða 35
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
að tímabært væri „að sameina stóru sjúkrahúsin
tvö í Reykjavík“. Málalyktir urðu þær, að báðum
tillögum var vísað til stjórnar og henni falið að
„móta framtíðarstefnu eigi síðar en um næstu ára-
mót“(5).
Þegar sama haust var reynt við málið að nýju
innan stjórnar LÍ og nú með stjórn Læknafélags
Reykjavíkur. í febrúar árið eftir samþykktu stjórn-
ir félaganna ályktun, sem var stuðningur við eitt
sjúkrahús, yrði það undir einu þaki. „Stjórnirnar
taka undir orð heilbrigðismálaráðherra á aðalfundi
LÍ haustið 1999 og telja, að í framtíðinni eigi að
byggja eitt sjúkrahús sem rúmi núverandi starfsemi
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala“(6).
Þetta var pólitísk niðurstaða stjórna læknafélag-
anna. Sjónarmið þeirra sem fyrir henni börðust, tel
ég hafa verið fyrst og fremst þau, að læknar lentu
ekki enn einu sinni í pólitískri einangrun eða eyði-
merkurför, þegar ákvarðanir í heilbrigðismálum
væru annars vegar. Það má vera, að hér hafi verið
farin „Steingrímsfjarðarheiði" lækna og verður þá
svo að vera.
Annað áhugavert efni er staðsetning hins nýja
spítala. Lagt hefur verið að læknafélögunum að
beita sér gegn þeim stað sem ákvörðun hefur verið
tekin um. Ég hef daufheyrst við þeim kröfum. Sú
ákvörðun byggir á pólitískum forsendum. Mestu
skiptir að ákvörðun um uppbyggingu Landspítala
hefur verið tekin og eru það minni hagsmunir að
trufla þá ákvörðun með deilum um staðsetningu
úr því senr komið er.
Það er hins vegar mín skoðun að niðurstaðan
um staðsetningu hins nýja sjúkrahúss hafi verið
röng í veigamiklum atriðum. En þar sem ég var
og er ekki í neinni aðstöðu til að taka um þetta
„pólitíska ákvörðun" læt ég þetta málefni liggja á
milli hluta.
Þrátt fyrir allt búa íslendingar við háþróaða
sjúkrahúsþjónustu, heilsugæslu til fyrirmyndar og
framúrskarandi en hræódýra þjónustu sjálfstætt
starfandi sérgreinalækna. Ef til vill er það ekki
með öllu afleitt að leyfa heilbrigðisþjónustunni að
þróast að nokkru fyrir „atburði líðandi stundar“.
Heimildir
1. Eigum við ekki að ræða málin betur? Læknablaðið 2006; 92:
216-9.
2. Fundargerð aðalfundar LÍ, 1997.
3. Fundargerð aðalfundar LÍ, 1998.
4. Skýrsla til stjórnar Læknafélags íslands um samvinnu og
verkaskiptingu sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu, maí 1999.
Aðalfundargögn LÍ 1999.
5. Fundargerð aðalfundar LÍ 1999.
6. Sameinum sjúkrahúsin í nýrri byggingu. Læknablaðið 2000; 86:
189.
Formannafundur Læknafélags íslands
Stjórn Læknafélags íslands boðar til formannafundar skv. 11. grein laga félagsins föstudaginn 28. apríl 2006 í húsnæði
læknasamtakanna að Hlíðasmára 8, Kópavogi.
Dagskrá
10:00-12:30 Skýrsla formanns LÍ um afgreiðslu ályktana aðalfundar 2005, störf stjórnar og stöðu helstu mála.
Gert er ráð fyrir ítarlegum umræðum um skipulag læknasamtakanna og þagnarskyldu lækna.
Einnig verður rætt um Orlofssjóð, Lífeyrissjóð lækna, Læknablaðið og fleira.
12:30-13:30 Matarhlé
13:30-15:00 Skýrslur helstu starfsnefnda
Umræður
15:00-15:30 Kaffihlé
15:30-17:00 Áframhald umræðna
Skýrslur formanna aðildarfélaga, samninganefnda og helstu starfsnefnda eftir atvikum.
Önnur mál
Fundarlok verða á heimili formanns að Hæðarseli 28, Reykjavík.
Læknablaðið 2006/92 211