Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2006, Qupperneq 40

Læknablaðið - 15.03.2006, Qupperneq 40
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILBRIGÐISPÓLITÍK Eigum við ekki að ræða málin betur? Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur segir stjórnvöld ekki móta stefnu í heilbrigðismálum, hún gerist bara Þröstur Haraldsson Peir sem fylgjast með umræðum í fjölmiðlum um heilbrigðismál hafa ekki komist hjá því að taka eftir nafninu Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir. Þar er á ferð nýbakaður doktor í stjórnsýslufræðum frá Lundúnum sem hefur hellt sér út í umræður um starfsemi og skipulag íslensks heilbrigðiskerfis. Á dögunum hélt hún fyrirlestur í Öskju þar sem vel var mætt og hlustað af athygli enda setur hún mál sitt skýrt og skilmerkilega fram og dregur ekkert undan. Lœknablaðinu þótti því einboðið að fá hana til viðtals og það tókst að góma hana rétt áður en hún flaug aftur til Englands. í fyrirlestrinum var Sigurbjörg að kynna doktors- ritgerð sína en hún fjallar um aðdraganda að ákvörð- un ríkisins um kaup á Sjúkrahúsi Reykjavíkur árið 1998 og síðar sameiningu sjúkrahúsanna tveggja í Reykjavík árið 2000. Hún bar hana saman við sameiningu tveggja sjúkrahúsa í Lundúnum, St. Thomas' og Guys Hospitals, árið 1995 en spurði einnig hvers vegna sameiningin hér hefði tekist 1998 en mistekist á árunum 1986-1987. Svarið við þessari spurningu var ekki alveg ein- hlítt en hún benti á að á þeim tíma sem leið milli tilraunanna hefði staða tveggja fjölmennustu og áhrifamestu starfsstétta heilbrigðiskerfisins breyst. Á sama tíma og hjúkrunarstéttin sameinaðist í eitt félag og varð öflug og virk í pólitískri umræðu kom upp sundurlyndi meðal lækna, ekki síst vegna deilna um tilvísanakerfið, átaka milli heimilislækna og annarra sérfræðinga og aukinnar sóknar þeirra síðarnefndu út í stofurekstur. Hún bætti því við að þegar sameiningin var í höfn hefðu margir litið á það sem sigur á læknum sem hefðu veitt harðasta mótspyrnu gegn sameiningunni. Slagur í Sjálfstæðisflokknum Þetta vildu sumir áheyrendur túlka þannig að Sigurbjörg væri að segja að á spítalanum ríkti stríð á milli hjúkrunarfræðinga og lækna. En hvað átti hún við? „Þegar ég fór að skoða þetta sýndist mér stað- an hafa verið sú þarna 1986 til 1987 að læknarnir skiptust nokkuð jafnt með og á móti. Hörðustu andstæðingar sameiningar voru í Fossvoginum og hörðustu fylgismennirnir við Hringbraut. Andstæð- ingarnir voru hins vegar miklu háværari og höfðu sterk tengsl inn í Sjálfstæðisflokkinn sem þá fór með heilbrigðismálin. Það má raunar segja að sam- einingin hafi dottið upp fyrir inni í flokknum því á þessum tíma voru ýmis erfið mál í gangi, ekki síst það að Albert Guðmundsson var að kljúfa sig út. Flokkurinn réð hreinlega ekki við að taka á svona erfiðu máli og hefja einhvern slag við læknana. Það gerði málin enn flóknari að málsmetandi læknar höfðu sterk persónuleg tengsl inn í þing- flokkinn. Ragnhildur Helgadóttir var heilbrigð- isráðherra og systir Tómasar Helgasonar og helsta vonarstjarna flokksins á þessum árum, Sólveig Pétursdóttir, er systir Hannesar Péturssonar. í stað þess að taka slaginn var ákveðið að drepa málinu á dreif og nota tímann til að útvatna andstöðuna í læknahópnum. Einn viðmælandi minn hélt því fram að þeirri þróun hefði lokið þegar Hannes tók við stöðu prófessors í geðlækningum við Háskóla íslands árið 1998, en við það fluttist hann úr Fossvogi niður á Hringbraut." Ekki stéttastríð „í millitíðinni var Landakot sameinað Borgar- spítala og læknar sem fluttust þangað ætluðu að halda áfram á sömu nótum og þeir voru vanir, það er með öfluga ferliverkastarfsemi og fá greitl samkvæmt verkgreiðslum. En þá mætir þeim stétt hjúkrunarfræðinga sem var miklu öflugri en þeir höfðu átt að venjast á Landakoti. Margir læknar brugðust við með því að hefja eða auka eigin stof- urekstur sem var opin leið og gaf læknum kost á að losna undan deilum um stjórnun og niðurskurð sem tók sífellt meiri tíma frá lækningunum. Afturköllun á gildistöku tilvísunarreglugerðar árið 1995 gerði þessa leið enn greiðfærari fyrir sérfræð- ingana. Ég sé þetta alls ekki sem deilur milli hjúkrunar- fræðinga og lækna. Hins vegar náðu stjórnvöld að spila á mismunandi áherslur og stöðu fagþróunar meðal þessara stétta. Hjúkrunarfræðingar höfðu með afgerandi hætti tekið að sér stjórnunarhlut- verk innan sjúkrahúsanna, ekki bara á sviði hjúkr- unar heldur á rekstri heilu deildanna. Þær höfðu öðlast stjórnunarlegt sjálfstæði og voru til þess að gera nýteknar við því hlutverki þegar niðurskurð- arhnífnum var brugðið á loft á níunda áratugn- um og þær þurftu að glíma við lokanir deilda, tilflutning starfseminnar á milli deilda og stjórnun mannahalds sem var erfitt vegna skorts á hæfu starfsfólki. Staða þeirra og þessi eldskírn í stjórnun veitti þeim mikla yfirsýn yfir reksturinn, ekki bara á einstökum deildum heldur á sjúkrahúsunum í 216 Læknablaðið 2006/92
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.