Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2006, Qupperneq 55

Læknablaðið - 15.03.2006, Qupperneq 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNINGAHÚMOR Aðalfundur félags um lækningahúmor Aðalfundur HÍFL, Hins íslenska félags um lækningahúmor, var haldinn að Hótel Loftleiðum þann 19. janúar 2006 í tengslum við Læknadaga. Andstætt við aðra stórlæknafundi var þessi ekki „makalaus“ í neinum skilningi. Aðalfundarins hafði verið beðið með nokkurri eftirvæntingu vegna þess að búist var við miklum átökum vegna stjórnarkjörs í félaginu og hugsanlegs „sprengi- framboðs". Formaður félagsins, Bjarni Jónasson, setti fundinn og stýrði honum af sinni alkunnu rósemi. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2005 og reikningar voru fram lögð og kynnt samkvæmt lögum félagsins. Viðstaddir luku lofsorði á kynninguna og sam- þykktu hvort tveggja. Að auki var árgjald félagsins fyrir næsta starfsár, kr. 2006, samþykkt einróma. Þá var komið að stjórnarkosningunni sem allir biðu eftir. Kjörnefnd félagsins lagði til að tveir sitjandi stjórnarmenn, þeir Bjarni Jónasson, formaður, og Jóhann Heiðar Jóhannsson, meðstjórnandi, yrðu endurkjörnir. Óvænt var engum andmælum hreyft og ekkert heyrðist af sprengiframboðinu þannig að báðir náðu kjöri til næstu tveggja ára. Fyrir í stjórn var Friðrik Vagn Guðjónsson, varaformaður. Pá voru endurkosnir í kjörnefnd þeir Jón Eyjólfur Jónsson og Ólafur Mixa og var þeim fagnað með ástríðufullu lófaklappi. Kjörnefndin lagði til að Sigurður Guðmundsson skyldi enn sinna starfi skoðunarmanns reikninga og var það sömuleiðis samþykkt með lófunum. Sérstakir gestir fundarins voru norski læknirinn Stein Tyrdal, forseti Nordisk Selskap for Medisinsk Humor, og kona hans Astrid Gjerland. Stein flutti fyrirlestur um hina ýmsu eiginleika lækningahúm- ors og þær hættur sem stafað gætu af beitingu hans. Var honurn ákaft fagnað og þau heiðursgestirnir leystir út með bókargjöf. Undir liðnum: „Önnur mál og uppákomur" var eftirfarandi tillaga einróma samþykkt: Aðalfundur HÍFL (Hins íslenska félags um lækningahúmor) haldinn að Hótel Loftleiðum 19. jan. 2006 harmar þá fljótræðislegu ákvörðun fyrrverandi forráðamanna Læknablaðsins að leggja niður hið næringarríka „Broshorn" sem þó augljóslega hefur stuðlað að þeirri velgengni Læknablaðsins að það hefur núna náð því tak- marki að vera skráð í MEDLINE. Skorar fund- urinn á nýja ritnefnd að hefja að nýju birtingu „Broshornsins“ með einum eða öðrum hætti. Áður en fundi var slitið var fyrrverandi varafor- maður, Pétur nokkur Pétursson, aldavinur for- manns HÍFL, heiðraður fyrir störf sín í þágu félagsins og áratuga fylgispekt. Matur og drykkur voru um hönd höfð og um munn tekin. Örvaði fóður þetta félagsmenn til ýmissa upphrópana og orðaskipta um aðra félagsmenn og hástemmdra yfirlýsinga um starf og framtíð félagsins sem ekki voru til bókar færð. Fundi var slitið að áliðnu kvöldi og fór þá væntanlega hver til síns heima. Fréttatilkynning frá HÍFL. Egils Snorrasonar fyrirlesturinn 2006 The paradigm shift in scientific methodology and in medical ethics after The Second World War - a self-experienced near-history Povl Riis. Fyrirlesari: Professor Povl Riis DR. MED. HC. FRCP, Danmörku Hringssal á Landspítala laugardaginn 1. apríl kl. 11.00. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku og öllum opinn. Professor Povl Riis er íslenskum læknum að góðu kunnur fyrir fjölda námskeiða og erinda um læknisfræði, tölfræði, siðfræði o.fl. sem hann hefur haldið á íslandi. Hann hefur heimsótt ísland 50 sinnum. Að fundi loknum eru kaffiveitingar í boði Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar. Heimasíða: www.icemed.is/saga/ Læknablaðið 2006/92 231
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.