Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 11
RITSTJÓRNARGREINAR Sjúkdómsgreiningar: Trúverðug lýsing á heilbrigðisvanda eða villandi hálfsannleikur? í þessu tölublaði Læknablaðsins fjalla Sigurður Thor- lacius og félagar um mikla fjölgun offitugreininga hjá öryrkjum (1). Pessi fjölgun bendir til þess að offita valdi æ oftar heilsubresti og örorku. Niðurstaða höf- unda er að tíðni greiningar alvarlegrar offitu meðal öryrkja geti verið að aukast umfram raunverulega aukningu ástandsins meðal landsmanna. Þeir sem rannsaka offitu eru sama sinnis, það er að fólk skiptist nú í tvo hópa með tilliti til holdafars. Annar hópurinn, sá minni, er í nokkurn veginn eðlilegum holdum en hinn sem er of feitur verður stöðugt feitari. Sé þetta rétt er offita og heilsufarsvandi tengdur henni enn meiri en álitið hefur verið hingað til. Offita birtist meðal örorkugreininga hjá rúm- lega 7% kvenna og tæplega 4% karla. Offitutíðni (BMI>30) (BMI=Body Mass Index, þyngdarstuð- ull) fyrir aldurshópinn 20-65 ára er um 20%, ofþyngd (BMI 25-30) 35-40%, eðlilegt holdafar (BMI<25) um 40% (2). Sé þetta borið saman við þekkt áhrif offitu á algengi ýmissa sjúkdóma sem valda örorku má ætla að offita sé vanskráð sem orsök fyrir eða sem meðverkandi þáttur við ör- orku (3). Hér má nefna að fylgst hefur verið með holdafari sjúklinga sem koma til meðferðar á Reykjalundi undanfarin ár. A árunum 2002-2005 var tíðni þeirra sem voru í eðlilegri þyngd um 25%, í ofþyngd um 32% og feitir 42%. Vannærðir voru um 1% sjúklinga. Annað athyglisvert í rannsókninni á örorku- greiningum er að jafnvel þegar offita er tilfærð sem sjúkdómsgreining koma ekki fram tölulegar upplýsingar um holdafar sjúklings, svo sem BMI eða mittismál. Læknum virðist ekki tamt að nota holdafarsmælingar í klínískri vinnu, jafn einfald- ar og þýðingarmiklar og þær eru, krefjast aðeins aðeins vogar og málbands. Rannsóknin tekur 2-3 mínútur. Hún gefur oft mun þýðingarmeiri upp- lýsingar en dýrar nýtískulegar hátæknirannsóknir en er vissulega óskáldleg og gamaldags miðað við fínheitin. Það ætti að vera fastur liður í klínískri vinnu að skrá holdafar sjúklinga. Læknar byggja starf sitt á að greina sjúkdóma og meðhöndla. Greiningar byggja nær alltaf á sjúk- dómseinkennum eða safni einkenna, heilkennum. Þær ná yfirleitt ekki til orsaka sjúkdómsins, hversu alvarlegur hann er, né til aðstæðna sem kunna að hafa áhrif á afleiðingar hans. Að minnsta kosti 70% langvinnra sjúkdóma, fatlana og snemmkominna dauðsfalla eru talin lífsstílstengd og afleiðingar félagslegra aðstæðna. Þar koma til streita, óreglulegur svefn og önnur óreiða í lífsháttum, reykingar, misnotkun vímuefna og lyfja, glannaskapur, lítil hreyfing, röng nær- ing, ofeldi, vaneldi, ógætilegt kynlíf, atvinnuleysi, skilnaðir, einsemd, fátækt og erfiðar aðstæður. Ef þessa er ekki gætt verður meðferð þegar best lætur meðhöndlun sjúkdóms en ekki sjúklings. Dæmin blasa við: Meðferð lungnateppusjúklinga þar sem ekki er lögð megináhersla á reykleysi getur dregið um hríð úr einkennum sjúkdómsins en leiðir hjá sér horfur eða aðrar heilsufarslegar afleiðingar reykinga. Lyfjameðferð við sykursýki þar sem ekki er sinnt hreyfingarleysi, rangri næringu og ofþyngd skilar takmörkuðum árangri. Örorkuvottorð sem aðeins greinir frá vefjagigt en lætur ógetið að öryrkinn er ung einstæð móðir sem á aðeins kost á erfiðum, ótryggum láglauna- störfum og nýtur lítils félagslegs stuðnings, lýsir ekki því sem mestu máli skiptir sem ástæðu örorku- umsóknar. Tinetti og félagar hafa bent á takmarkanir sjúk- dómshugtaksins (4). Með því að einblína á það eitt sé hætta á of- eða vanmeðhöndlun, jafnvel rangri meðferð. Meðferð sjúkdóma þurfi að sam- hæfa öðrum þáttum sem máli skipta. Hluti slíkrar samhæfðrar meðferðar snýr að lífsháttum og aðstæðum sjúklings, óskum hans og markmiðum. Heilbrigðisþjónustan þarf að temja sér vinnubrögð þar sem lögð er áhersla á forvarnir og aðstoð við lífsháttabreytingar í því skyni að bæta árangur meðferðar og gæði þjónustu. Heimildir 1. Thorlacius S, Stefánsson SB, Steingrímsdóttir L. Algengi offitu- greiningar hjá öryrkjum á íslandi 1992-2004. Læknablaðið 2006;92:525-9. 2. Guðmundsdóttir SL, Óskarsdóttir D, Franzson L, Indriðason ÓS, Sigurðsson G. Samband líkamlegrar þjálfunar við þyngdar- stuðul, fitumassa og gripstyrk í íslensku þýði. Læknablaðið 2004;90:479-86. 3. Overweight and Obesity in Adults; National Health and Medi- cal Research Council, Sept 2003. 4. Tmetti ME.FriedT.The end of the disease era.Am J Med 2004; 116:179-85. Ludvig Guðmundsson LudvigG@ reykjalundur.is Medical diagnoscs: A credible description of health problems or a mislcading scmitruth? Ludvig Guðmundsson MD, Physiatrist, Reykjalundur Rehabilitation. Höfundur er læknir á Reykjalundi. Læknablaðið 2006/92 519
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.