Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐTAL VIÐ HEILBRIGIÐSRÁÐHERRA þetta eru mál sem nefndin er vinnur að framgangi málsins er með til skoðunar.” En er þó ekki umhugsunarefni að þessi gagnrýni frá lœknum, þeim sem eiga að starfa við hið vœnt- anlega sjúkrahús? „Eg hef ekki orðið vör við annað en mjög almennan stuðning starfsmanna spítalans við þetta verkefni, lækna ekki síður en annarra. Ég hef heimsótt margar deildir spítalans síðan ég tók við embætti og ekki fundið annað en almennan og sterkan stuðning við verkefnið. Starfsmannaráð spítalans ályktaði sérstaklega um þetta efni og það er alveg ljóst að með nýjum spítala mun að- staða sjúklinga, starfsmanna og nemenda batna stórlega.” Hvernig verður framkvœmdaáœtlun háttað? „Það verður byrjað á bráðamóttökunni og talað er um að fyrsti áfangi fari í framkvæmdir árið 2008 en það þarf að vanda mjög til undirbúnings og gera má ráð fyrir að nýja byggingin muni skila hagræðingu uppá um 10-15% á ári svo þetta verkefni mun borga sig á innan við tveimur áratugum.” Hversu vel heppnuð telurðu að sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík hafi verið á sínum tíma og allar götur síðan? „Ég tel hana mjög vel heppnaða. Þegar lagt var upp með hana var ekki lögð áhersla á sparnað en sameiningin hefur skilað því að útgjaldaaukning hefur verið hamin verulega. Sameiningin hefur tekist afar vel og skilað meiri hagræðingu í rekstri en upphaflega var gert ráð fyrir. Skýrsla ríkisendurskoðunar um rekstur Landspítala staðfestir hversu vel hefur tekist til.” Lœknar hafa gagnrýnt að stjórnun spítalans sé úr þeirra höndum og komin í hendur þeirra sem þekki lítið til lœkninga. Ég tel að stjórnun Landspítala sé öflug og góð. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim sem stjóma spítalanum og tel þau afar fim í sínum störfum. Það er auðvitað mikið mál að stjórna 4500 manna vinnustað sem er að þjóna mjög viðkvæmum hópi sjúklinga. En þetta tekst auðvitað líka af því að starfsfólkið er einnig öflugt og lipurt.” Er Landspítali ekki of stór í okkar íslenska samhengi? „Nei, alls ekki. Þetta er sérgreinasjúkrahús sem þarf að geta sinnt öllum þeim fjölmörgu tilfellum sjúklinga með flókna og erfiða sjúkdóma. Drifkrafturinn á bakvið sameininguna var einmitt að sameina hinar mörgu sérgreinar í eitt öflugt háskólasjúkrahús.” Engu að síður eru nokkuð áberandi óánœgju- raddir meðal lækna með stjórn og rekstur Landspítala. „Læknar eru auðvitað mjög mikilvægur hópur og þeirra hlutverk er að sinna sjúklingum og þeir gera það með slíkum ágætum að eftir er tekið um víða veröld. Dæmi um það er hversu frábærlega vel hefur tekist til með fæðingarlækningar og að við búum við lægstu tölur um ungbarnadauða í heiminum. En auðvitað verður að vera stjórnun á þessum vinnustað eins og öðrum og til þess eru stjórnendur. Það geta ekki allir verið stjórnendur og ég held að þessum málum sé ágætlega fyrir komið á Landspítala.” Hjartalœknar fóru af samningi við Trygginga- stofnun í febrúar og þess í stað var tekið upp tilvís- anakerft sem þeir voru alls ekki sáttir við. Stendur til að leysa þennan ágreining? „Hjartalæknar gengu sjálfir útaf samningi við sérgreinalækna sem var í gildi og var gerður fyrir ári síðan og er í gildi til 2008. Það var þeirra val að fara af samningi og mér þótti það leitt, en með þessu upphefst endurgreiðsluréttur sjúklinga og til að tryggja hann áfram settum við á beiðnakerfi. Þannig að ef sjúklingar vilja nýta endurgreiðslu- rétt sinn gagnvart Tryggingastofnun verða þeir að fara með beiðni frá heimilislækni til hjartalæknis. Það bar of mikið á milli svo hjartalæknarnir ákváðu að segja upp samningi.” Er verið að vinna að lausn þessa máls? „Nei, það eru ekki neinar beinar viðræður í gangi við hjartalækna núna enda sagði ég við þá þegar ég ræddi við þá um þessa stöðu að ef ekki næðist saman þá kæmi til beiðnakerfi og það myndi ekki vara í örskamman tíma því það er heilmikil aðgerð að koma því í gang. Það er fram- kvæmd sem ekki er sett á til skamms tíma. En ég útiloka ekki að þeir komi inn á samning síðar. Við búum við slíkt kerfi að það er ekki eðlilegt að þegnarnir greiði fyrir meira en þá þjónustu sem nauðsynlegt er að veita. Sérgreinasamningar eru byggðir upp eins og nokkurs konar kvótakerfi og ef farið er yfir þann kvóta, þurfa sérgreina'.æknar að veita afslátt og læknar hafa samþykkt það með gildandi samningi. En hjartalæknar kusu sem sagt að ganga af samningnum og það bar einfaldlega allt of mikið á milli til að hægt væri að mæta kröf- um þeirra.” Mannaflaspá í fjórum heilbrigðisstéttum sem Hagfrœðistofnun HÍ hefur unnið fyrir ráðuneytið hefur verið talsvert til umræðu að Undanförnu. Par vekur fyrst og fremst athygli dökkar horfur í stétt- um hjúkrunarfrœðinga og sjúkraliða. Talað hefur verið um að atika inntöku nýnema í hjúkrunar- frceðum en þar hafa ríkt fjöldatakmarkanir. Þó eru í landinu um 500 menntaðir hjúkrunarfrœðingar sem vinna við annað en hjúkrun. Er fjölgun hjúkr- unarfræðinema lausnin á vandanum? „Lausnin á þessum vanda er margháttaður en ein lausnin er að fjölga nemunum. Mannaflaspáin 550 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.