Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR Á HLAUPUM Líkaminn gerður til að hlaupa Eyjólfur Guðmundsson (1957) starfar sem heim- ilislæknir á heilsugæslustöðinni í Hlíðum og hefur stundað hlaup um margra ára skeið. Hvenœr byrjaðirðu að hlaupa? „Það var árið 1992 en á þeim tíma var ég búsett- ur í Svíþjóð og hafði nýlega lokið framhaldsnámi í heimilislækningum.” Hvað varð til þess að þú byrjaðir að hlaapa? „Þetta var liður í endurhæfingarprógrammi hjá mér sem hófst um þetta leyti. Frá 23 ára aldri hafði ég þjáðst af hrygggigt (Spondylitis ankylopoietica) og gigtinni tengdust krónískir verkir og ég var farinn að seilast um of í sterk verkjalyf og sú notkun fór úr böndum. Þetta voru því ákveðnar andlegar og líkamlegar þrengingar sem ég gekk í gegnum á þessum tíma og hlaupin voru liður í þeirri endurhæfingu sem ég setti mér. Ég fann að hlaupin voru góð aðferð til streitulosunar og í rauninni besta verkjastillandi lyfið sem ég gat fengið og satt að segja besta meðferðin við gigtinni. Það merkilega við hrygggigtina er að þetta er kvilli sem þolir mjög vel hæfilega hreyfingu og álag á liðamót og við það dregur verulega úr einkennum sjúkdómsins.” Áttirðu þér sögu úr íþróttum? Varstu í boltan- um? „Nei, ég var aldrei neitt í skipulögðum íþrótt- um. Ég var hins vegar mikið í alls kyns boltaleikj- um með félögunum á æskuslóðum í túninu við Álfheimana þar sem nú er Fjölskyldu- og hús- dýragarðurinn.” Hreyfing dregur úr þunglyndi Var einhver sem benti þér á að gott vœri að byrja að hlaupa? „Nei, ég vissi auðvitað vel um gildi almennrar hreyfingar og að manninum er áskapað að vera á hreyfingu. Bíllinn er innan við 100 ára gömul uppfinning en í árþúsundir hefur mikil hreyfing verið mannslíkamanum eðlislæg og er enn mikilvæg til að viðhalda bæði andlegu og líkamlegu heilbrigði. Mannslíkaminn er til þess gerður að hlaupa og það eru alþekkt sannindi að líðan og tilfinningar tengjast því hversu mikið og reglulega við hreyfum okkur. Hreyfing dregur úr þunglyndi og streitu og því afar mikilvæg nútímamanninum.” Þrátt jyrir þetta er alltaferfitt að byrja að hreyfa sig. „Já, það tekur sinn tíma að venjast því að hreyfa sig og það þarf að tileinka sér hlaup eins og allt annað. Maður þarf hreinlega að læra að hlaupa og þó ég sé búinn að hlaupa í ein 14 ár er ég enn að læra eitthvað nýtt í sambandi við hlaupin. Lykillinn að því að gera hlaupin að lífsstíl er að hafa þolinmæði í byrjun því það tekur tíma að upplifa það jákvæða við hreyfinguna og að maður geti ekki án hennar verið.” Er hœgt að hlaupa ofmikið? „Já, það er auðvitað hægt og þá fara hlaupin að vinna gegn upphaflegum tilgangi sínum. Það á reyndar við um alla hegðun sem fer úr böndum og verður að áráttu. Ég vil þó alls ekki nota orðið fíkn yfir þetta enda er fíkn annars eðlis. í starfi mínu sem heimilislæknir hef ég fengið til mín fólk sem hefur lent í ógöngum með líkamsrækt vegna ofþjálfunar og lyfjanotkunar en slíkt tilheyrir undantekningu. Almennt mæli ég eindregið með hreyfingu og hlaupum sérstaklega til að bæta heil- brigði og líðan.” Hvernig hefur þinn eigin hlaupaferill verið? „Hann hefur verið nokkuð áfallalaus. Ég hef verið laus við meiðsli vegna álags og þakka það því að þrátt fyrir að hafa hlaupið talsvert mikið þá hef ég samt æft fremur skynsamlega og dregið úr hlaupamagninu þegar ég hef fundið fyrir þreytu eða álagseinkennum.” Lært mikið um hlaup af því að hlaupa Þegar grennslast er nánar eftir því hvað Eyjólfur á nákvœmlega við þegar hann segist hafa hlaupið „talsvert mikið” þá kemur í Ijós að hann hefur hlaupið 16 maraþon og fjölmörg hálfmaraþon og þar af styttri hlaup. Hann segist þó aldrei hafa leiðst út í miklar pœlingar um tíma og hraðasta maraþonið sitt hljóp hann á 3:44 og verður það að teljast einkar góður tími. „Ég hef hlaupið hálft maraþon á 1:38 og 10 km á 45 mínútum. Þetta er hraði sem hentar mér ágætlega og ég legg meira upp úr því að fá vellíðan útúr hlaupunum og með árunum hef ég dregið úr áherslunni á hraðann og tímann í einstökum vega- lengdum. Mér finnst ég ekki fá þá vellíðan sem ég sækist eftir úr hlaupunum ef ég er of upptekinn af tímanum. Þá getur viðhorfið gagnvart hlaupunum tekið ranga stefnu. Kynni mín af hlaupum og vera í hlaupahóp hafa kennt mér gríðarlega mikið og nýst mér ómet- anlega í starfi mínu. Ég hef talað við fjöldann allan af hlaupurum og þekki orðið mjög vel öll helstu 558 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.