Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 19
FRÆÐIGREINAR / OFFITUGREINING ÖRYRKJA Algengi offitugreiningar hjá öryrkjum á íslandi 1992-2004 Ágrip Sigurður Thorlacius1 SÉRFRÆÐINGUR í HEILA- OG TAUGASJÚKDÓMUM Sigurjón B. Stefánsson1,2,3 SÉRFRÆÐINGUR í GEÐLÆKNINGUM OG KLÍNÍSKRI TAUGALÍFEÐLISFRÆÐI Laufey Steingrímsdóttir4 NÆRINGARFRÆÐINGUR Tilgangur: Að kanna algengi örorku í tengslum við offitu á íslandi og hvort algengi hafi breyst á milli áranna 1992 og 2004. Efniviður og aðferðir: Aflað var upplýsinga úr örorkuskrá Tryggingastofnunar ríkisins og þjóðskrá Hagstofu íslands fyrir árin 1992 og 2004. Reiknað var algengi örorku í tengslum við offitu og örorku almennt fyrir bæði þessi ár. Kannað var hvort marktækar breytingar hefðu orðið á algengi örorku með kí-kvaðrat prófi og með því að reikna aldursstaðlað áhættuhlutfall fyrir örorku á milli áranna. Niðurstöður: A milli 1992 og 2004 fj ölgaði öryrkj um sem höfðu offitu sem fyrstu sjúkdómsgreiningu í örorkumati úr 37 í 111. Aukningin var 183% hjá konum og 263% hjá körlum. Þessi aukning var marktækt meiri en aukning örorku almennt á þessu tímabili. Aldurstengd fjölgun öryrkja sem höfðu offitu á meðal greininga í örorkumati var einnig umfram fjölgun öryrkja almennt. Körlum sem höfðu offitu á meðal greininga í örorkumati fjölgaði meira en karlkyns öryrkjum almennt, en á meðal kvenna var þessi aukning minni en hjá öðrum öryrkjum. Örorka tengd offitu var hjá konum marktækt algengari á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Ályktun: Marktæk aukning hefur orðið á örorku í tengslum við offitu á Islandi. Hugsanlegt er að aukin umræða um offituvandann á rannsókn- artímabilinu hafi haft einhver áhrif á greining- arvenjur lækna og þar með á tíðni offitugreininga í örorkuvottorðum og örorkumati. Allar líkur eru þó á að fjöldi þeirra sem hafa mikla eða sjúklega offitu hér á landi fari vaxandi og þar með að offita sé vaxandi lýðfræðilegt vandamál sem bregðast þurfi við á viðeigandi hátt. Inngangur Offita er vaxandi heilsufarsvandi á íslandi (1), eins og víða annars staðar (2). Hún er áhættuþáttur fyrir hjarta- og æðasjúkdóma, fullorðinssykursýki, slitgigt í burðarliðum og fleiri sjúkdóma (3-6). Því er ljóst að offita getur stytt ævi fólks og dregið úr lífsgæðum þess. Offita er auk þess mjög kostnaðarsöm fyrir þjóðfélagið. I Bandaríkjunum hafa 9% af heildarútgjöldum heilbrigðiskerfisins verið rakin til offitu, en þá eru ótalin útgjöld 'Læknadeild Háskóla íslands, 2Tryggingastofnun ríkisins, 3taugasjúkdómadeild Landspítala, 4Lýðheilsustöð. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Sigurður Thorlacius, læknadeild Háskóla íslands, Ármúla 30,108 Reykjavík. Sími 525 4072. sigurd.th@hi.is Lykilorð: örorka, örorku- bœtur, algengi örorku, offita. ENGLISH SUMMARY ThorlaciusS, Stefánsson SB, Steingrímsdóttir L Prevalence of disability pension related to obesity in lceland 1992-2004 Læknablaðið 2006; 92: 525-9 Objectives: To investigate changes in the prevalence of disability pension related to obesity in lceland from 1992 to 2004. Material and methods: Data were obtained from the disability register of the State Social Security Institute and Statistics lceland for the years 1992 and 2004. Prevalence of disability pension related to obesity and of disability pension in general was calculated for both years. Statistical significance was assessed by calculating chi square and standardized risk ratios. Results: From 1992 to 2004 the number of recipients of disability pension with obesity as a primary diagnosis increased from 37 to 111, amounting to 183% increase for females and 263% for males. This increase is significantly greater than the increase in disability pension in general during this period. Age standardized risk ratio showed increased disability related to obesity for both genders. Among males it was greater than the general increase in disability, while among females it was less. There was a significantly greater increase in disability reltaed to obesity in areas outside the capital compared with Reykjavík and surrounding areas among females. The increase in disability related to obesity far surpasses the increase in obesity in the population, according to population surveys, suggesting that severe and morbid obesity may be particularly on the rise. Conclusion: There has been a significant increase in the prevalence of disability pension related to obesity in lceland from 1992 to 2004. It is possible that increased social awareness of obesity during the study period has influenced diagnostic habits of physicians and thus increased the use of obesity as a diagnosis in medical certificates and disability assessment. In all likelihood, however, there has been an increase in disabling obesity in lceland, indicating that obesity is an increasing public health problem demanding appropriate intervention. Keywords: disability, disability pension, prevalence of disability, obesity. Correspondence: Sigurður Thorlacius, sigurd.th@hi.is Læknablaðið 2006/92 527
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.