Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR Á HLAUPUM Hildur Harðardóttir teygir vöðva og sinar við Neslaugina í þéttum og mildum rigningarúða sem er öflugasta fáanlegt yngingarmeðal og kost- ar ekkert. Baksviðs eru hlaupavinkonur hennar, þœr Sigrún Erlendsdóttir og Brynja Blumenstein. Góð aðferð til að losa um streitu Hildur Harðardóttir (1957) yfirlæknir á kvennadeild Landspítala hefur stundað hlaup um nokkurra ára skeið en vill þó ekki gera mikið úr afrekum sínum, segist hafa tekið upp hlaup sem markvissa aðferð til að losa um streitu. „Það er ótrúlega gott að fara út og fá sér frískt loft og hlaupa til að hreinsa hugann eftir erfiðan vinnu- dag þar sem maður hefur kannski þurft að fást við erfið mál og slítandi.” „Þegar ég bjó í Bandaríkjunum á sínum tíma stundaði ég hlaup dálítið og þá kom það nú einfaldlega þannig til að maður hafði engan tíma til að komast í aðra líkamsrækt en svo byrjaði ég aftur fyrir nokkrum árum hér heima og byrj- aði á því skokka vikulega með systur minni og vinkonum. í fyrrahaust byrjaði ég að hlaupa með Trimmklúbbi Seltjarnarness ásamt einni vinkonu minni og þá komst þetta í nokkuð fastar skorður. Seltjarnarnesið er þó ekki hverfið mitt en mágur minn sem hefur æft með hópnum hvatti mig til að koma og tímarnir hentuðu mér vel og andinn í hópnum er mjög góður. Þar hef ég kynnst konum á svipuðu róli og það er hvatning að hlaupa með þeim.” Hildur segir það skipta verulegu máli að hafa fasta hlaupatíma í vikunni. „Það er ákveðið aðhald í því og hlaupin verða þá ekki alltaf útundan þegar eitthvað annað kemur uppá. Alla jafna hleyp ég með hópnum tvisvar í viku og reyni síðan að bæta við einu eða tveimur skiptum þar fyrir utan.” Hildur stefnir að því að hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst og það er í fyrsta skipti sem hún hleypur þá vegalengd. „Eg hef hingað til hlaupið lengst í keppni 10 km og 18 km á æfingu og þessar vikurnar er ég að hlaupa allt að 40 km á viku. Það er nú það mesta sem ég hef hlaupið og það er sannarlega mjög gaman að því að finna stígandann í þessu og kemur óneitanlega kapp í mann.” Hún segist alveg hafa verið laus við meiðsli vegna hlaupa og segir hættuna á því vera hverf- andi ef ekki er hlaupið því meira. „Það hentar þó kannski ekki öllum að hlaupa, göngur eiga betur við suma og hver og einn verður bara að finna sinn takt í því.” Aðspurð um langtímamarkmið verður hún leyndardómsfull og segir það vera til staðar en ekki tímabært að ljóstra því upp. Okkur grunar þó að framundan sé heilt maraþon á erlendri grund og það frekar fyrr en seinna. Læknablaðið 2006/92 555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.