Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 56

Læknablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FUNDAHÖLD Hvenær rumskar Tómas Helgason tomashe@isholf.is * Höfundur er prófessor, dr. med. Aðalfundur Læknafélags íslands hefur verið aug- lýstur. Það vekur undrun að ekki er á dagskrá um- ræða sem lítillega hefur farið fram í Læknablaðinu um skipulag og stjórn heilbrigðismála (1-3). Þó er þagnarskyldan sem einnig hefur verið rædd á síðum Læknablaðsins á árinu (4-8) á dagskrá. En ekki verður séð að þar eigi að ræða um allsherjar niðurbrot þagnarskyldunnar með rafrænni sjúkra- skrá og heilbrigðisneti þar sem þúsundir heilbrigð- isstarfsmanna munu fá aðgang að upplýsingum um alla sem einhvern tíma hafa leitað læknis (9). Hrós handa stjórn LÍ Stjórn Læknafélags íslands á heiður skilið fyrir að styðja við bakið áTómasi Zoéga í málaferlum hans gegn Landspítalanum með því að ábyrgjast greiðslu málskostnaðar. Enda er hér um mikið alvörumál að ræða sem snertir atvinnufrelsi og atvinnuöryggi lækna þegar aðeins er einn síminnkandi spítali starfræktur í Reykjavík. Sem betur fer var spít- alinn dæmdur til að greiða málskostnað enda talið óheimilt að flytja Tómas úr stöðu yfirlæknis í stöðu sérfræðings. Niðurstaða Hæstaréttar er að aðgerðir stjórnar spítalans gegn Tómasi hafi verið ólögmæt- ar (10). En nú reynir á að Læknafélagið láti ekki spítalastjórnina komast upp með lögleysu og sjái til þess að hann fái sitt fyrra starf. Andvaraleysi Andvaraleysi lækna að því er varðar skipulag og rekstur heilbrigðisþjónustunnar virðist ótrúlegt. Hámarki náði andvaraleysið þegar læknar létu sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík ganga yfir sig nánast þegjandi og hljóðalaust. Læknar lápu jafnvel upp hagræðingarþruglið, í stað þess að mótmæla kröftuglega þeirri einokun sem af sam- einingunni mundi leiða. Einokun sem bitnar bæði á sjúklingum og starfsfólki. Vonandi er að verða breyting á með grein Friðbjörns Sigurðssonar for- manns læknaráðs Landspítalans „Uppskorið eins og til var sáð“ (11), þó að hann verði stöðu sinnar vegna að játast undir hagræðingartrúna. Misheppnuð sameining - fækkun sjúkrarúma og starfsfólks - minni afköst I úttekt Ríkisendurskoðunar frá því í desember 2005 kemur fram að raunkostnaður hins samein- aða spítala er nánast óbreyttur frá því sem var fyrir sameininguna (12). Áður hefur verið bent á að afköst minnkuðu frá 1999-2004 (13). Friðbjörn benti á að eftir sameiningu spítalanna í Reykjavík hefði rúmum þar fækkað um 411, segi og skrifa fjögur hundruð og ellefu. Jafnframt hefur starfs- fólki fækkað verulega á sama tíma, eða um 285, samkvæmt ársskýrslum Landspítala 2000-2005. Eftir að hafa hrakið þessa starfsmenn burt vakna stjórnendur spítalans allt í einu við vondan draum sem er sjálfskaparvíti eins og Friðbjörn bendir á og tala um skort á starfsfólki. Eins og oft áður er talað um gangainnlagnir og kveinað yfir því að á spítalanum séu 60-80 öldrunarsjúklingar sem bíði eftir öðrum vistunarúrræðum (14) og taki upp dýr rúm án þess að geta um að auðvitað kosta þessir sjúklingar ekki svo neinu nemi meira á Landspítalanum en á hjúkrunarheimilum. Á síð- ustu sex árum hefur hjúkrunar- og dvalarrýmum fyrir aldraða í Reykjavík og nágrenni ekki fjölgað nema um tæplega 300, það er fjöldi rýma hefur að- eins aukist úr 85 í 88 á hverja þúsund íbúa 67 ára og eldri (15,16). Ekki er að undra þótt biðlistar séu langir. Og þeir styttast ekki þó að heilbrigðisráð- herra segi að Landspítali eigi að semja um frekari forgang að rýmum á hjúkrunarheimilum. Ógnarstjórn Landspítalans heldur áfram í fréttum nýverið kom fram að formanni félags unglækna hafi verið hótað uppsögn á Landspítala vegna eðlilegra afskipta hans af deilu læknanema við sjúkrahússtjórnina. Eins og oft vill verða stóð orð gegn orði, lækningaforstjóri spítalans gaf aðra skýringu á hótun um áminningu. Annars hefur lítið borið á afskiptum spítalalækna af rekstri spítalans á síðustu árum vegna þöggunarstefnu spítalastjórnarinnar. Hennar er ekki getið í stefnu- korti spítalans sem Helga Hansdóttir (17) gagn- rýndi af varkárni í júníhefti Læknablaðsins. Þetta „stefnukort" er fullt af sjálfsögðum hlutum sem allir læknar hafa starfað eftir, en þó er ekki minnst á jafnsjálfsagt hugtak og mannúð eins og Helga bendir á. Nýútkomið stefnumótunarplagg spít- alans (14) minnir helst á þegar fjöllin tóku jóðsótt og fæddist mús. Þar er minnt á ýmislegt sem spít- alastjórnin hefur ekki farið eftir að undanfömu, en bætir vonandi úr snarlega. I úttekt Ríkisendurskoðunar (12) er rætt um stjórnunarvanda Landspítalans og óánægju lækna sem hafi verið áberandi. Ríkisendurskoðun segir 564 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.