Læknablaðið - 15.02.2007, Page 15
FRÆÐIGREINAR / SARKLÍKI
Niðurstöður
Á árunum 1981-2003 voru alls 235 einstaklingar
vefjagreindir með sarklíki, 122 konur (52%) og
113 karlar (48%). Nýgengi sarklíkis á íslandi var
í heildina 3,84/100 þús/ári. Á fyrra tólf ára tíma-
bilinu (1981-1992) var nýgengið 2,8/100 þús/ári,
en 5,0/100 þús/ári á síðara ellefu ára tímabilinu
(1993-2003) (mynd 1). Samkvæmt talningu úr
legudeildarkerfum Landspítala og FSA á rann-
sóknartímabilinu voru einungis 60 einstaklingar
sem höfðu fengið greininguna sarklíki án þess
að vefjasýni lægi fyrir. Ekki er hægt að útiloka að
einhverjir þeirra hafi verið greindir með vefjasýni
áður en rannsóknartímabilið hófst. Meðalaldur
kvenna við greiningu var 50,8 ár en karla 47,5 ár
(mynd 2). Munurinn var ekki tölfræðilega mark-
tækur (p=0,069). Gögn um búsetu lágu fyrir hjá
219 einstaklingum (93%) og af þeim bjuggu 144
(66%) á höfuðborgarsvæðinu við greiningu.
Greining: Greining var gerð með berkjuspegl-
un og sýnatöku úr lungnavef hjá 113 sjúklingum.
Hjá 60 var gerð miðmætisspeglun og sýnataka frá
eitlum, en hjá 107 var tekið sýni á annan hátt sem
leiddi til greiningar á sarklíki og var oftast um sýni
frá húð, úteitlum og lifur að ræða.
Hjá tæplega helmingi sjúklinga (48%) var getið
um atvinnu. I þeim hópi unnu flestir skrifstofustörf
(21), en iðnaðarmenn voru næstflestir (17) og af
þeint flestir smiðir (5) en bændur voru sjö. Sextán
einstaklingar höfðu unnið þar sem búast má við
loftmengun í vinnuumhverfi, svo sem við bíla-
málun, framleiðslu plastsvamps, við áliðnað og
múrverk. Níu einstaklingar höfðu búið erlendis
um lengri eða skemmri tíma. I þeim tilfellum þar
sem reykingasaga var skráð (143 einstaklingar)
hafði helmingur aldrei reykt. Fjörutíu og tveir
voru samkvæmt sjúkraskrá áður hraustir og 47
notuðu engin lyf að staðaldri við greiningu. Hjá 38
manns var skráð ofnæmi. Tuttugu og fjórir höfðu
skráð ofnæmi fyrir lyfjum og langflestir þeirra fyrir
penisillíni og/eða súlfalyfjum. Hjá 57 voru skráðar
upplýsingar um berkla. Af þeim höfðu tólf ein-
staklingar sögu um berklasmit eða berkla og hjá
sjö er getið um berkla hjá nánustu fjölskyldumeð-
limum. Hjá einungis 46 manns var gert Mantoux
próf við greiningu og reyndist það jákvætt hjá
þremur þeirra. Einn var bólusettur gegn berklum
áður en greining sarklíkis var gerð. Hjá engum var
gerð vefjaflokkun (HLA greining). Reynt var að
meta tímann sem leið frá byrjun einkenna þar til
greiningin lá fyrir (dagsetning vefjasvars). Hjá 20
manns var um innan við mánuð að ræða, en hjá 9
tók ferlið yfir eitt ár.
Einkenni: Flestir sjúklinganna lýstu einkenn-
um frá öndunarvegum. Mæði fannst hjá um 27%
karla og 23% kvenna, hósti hjá 35 % karla og 28%
Aldur við greiningu
Aldur
Mynd 3. Algengi einkenna sarklíkis lijá konum og körium.
kvenna og takverkur/verkir í brjóstholi hjá 17%
hjá báðum kynjurn (mynd 3). Nítján (8%) höfðu
Læknablaðið 2007/93 107