Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 20

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 20
FRÆÐIGREINAR / LANGVINN LUNGNABÓLGA Almennt er mælt með yfir 40% eósínófíla af heild- arfjölda hvítra blóðkorna í berkjuskoli og yfir 1000/mm3 í blóði. Útiloka þarf ýmsa aðra lungna- sjúkdóma áður en komist verður að greiningu (2). Lítið er vitað um faraldsfræði þessa sjúkdóms en hann hefur verið lalinn vera innan við 2,5% af öllum millivefslungnasjúkdómum þegar reynt er að taka þá alla saman og áætla algengi (2-3). Ekkert er vitað um faraldsfræði LEL hjá heilum þjóðum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði, klínísk einkenni, meðferð og afdrif þessara sjúklinga á Islandi og bera saman við erlendar rannsóknir. Efniviður og aðferðir Um er að ræða aftursæja rannsókn sem náði yfir tímabilið 1990-2004. Fengin voru sjúkdómsgrein- ingarnúmer frá sjúkrahúsum, vefjafræðigreiningar frá Rannsóknastofu í meinafræði og upplýsing- ar frá læknastofum um sjúklinga sem greindir höfðu verið með langvinna eósínófíl lungnabólgu. Eingöngu voru teknir í rannsóknina sjúklingar sem höfðu vefjasýni til staðfestingar sjúkdóms- greiningu. Öll vefjasýni voru yfirfarin af meina- fræðingi (HJÍ) og stuðst við alþjóðleg skilmerki til að ganga úr skugga að um LEL væri að ræða en ekki aðra sjúkdóma. Sjúklingar sem höfðu merki um aðra sjúkdóma voru útilokaðir frá rann- sókninni. Úr sjúkraskýrslum fengust upplýsingar um klínísk einkenni, blóðrannsóknir, meðferð og klínískan gang. Þessum upplýsingum var safnað Mynd 1. Röntgenmynd aflungum hjá sjúklingi með langvinna eósínófíla lungnabólgu og dœmigerðar útlœgar íferðir. skipulega í gagnagrunn. Fengin voru leyfi frá Vísindasiðanefnd og Persónuvernd auk leyfa frá yfirlæknum sjúkrastofnana. Nidurstódur A rannsóknartímanum greindust 10 sjúklingar með LEL. Um var að ræða þrjár konur og sjö karla. Nýgengni sjúkdómsins á öllu rannsókn- artímabilinu var 0.23 á 100.000/ári en jókst síðustu fimm árin í 0,54 á 100.000/ári. Flestir sjúklinganna greindust því á seinni hluta rannsóknartímabilsins. Meðalaldur við greiningu var 58 ár en aldursbilið náði frá 24 árum til 77 ára. Enginn sjúklinganna reykti við greiningu. Sex höfðu sögu uin astma og tveir um ofnæmiskvef. Eins og sést í töflu I voru klínísk einkenni sjúklinganna öll svipuð. Mikið bar á slappleika, þreytu, þurrum hósta, mæði, og megrun. Margir sjúklinganna kvörtuðu um hitakóf og svita, sérstaklega á kvöldin og á nóttunni. Mikil bólguvirkni sást í blóði og sökk var 72 mm/klst og C-reactive protein (CRP) 125 mg/L. Atta af 10 voru með hækkað hlutfall eósínófíla í blóði. Við skoðun heyrðist brak við lungnahlustun hjá sjö en önghljóð hjá þremur. Aðeins einn var með eðlilega lungnahlustun. Allar sýklaræktanir voru neikvæðar. Algengt var að reynd hafði verið sýkla- lyfjameðferð áður en greining fékkst. Forced vital capacity (FVC) var 75% af áætluðu gildi og forced expiratory volume in one second (FEVl) var 73% af áætluðu gildi. Hlutþrýstingur súrefnis (p02) var 68 mmHg. Á röntgenmynd af lungum höfðu allir sjúklingarnir dæmigerðar dreifðar íferðir beggja vegna og yfirleitt nokkuð útlægar (mynd 1). Vefjasýni frá öllum sjúklingum sýndu millivefs- og lungnablöðrubólgu sem samrýmdist langvinnri eósínófíl lungnabólgu eins og sést á myndum 2 og 3. Allir fengu sterameðferð og svöruðu allir með- ferðinni vel í upphafi. Meðalupphafsskammtur með prednisólon var 42,5 mg (sjá töflu I). Sjö sjúklingar fengu endurkomu sjúkdóms en allir svöruðu aftur sterameðferð sem gjarnan var gefin í að minnsta kosti 1-2 ár. Enginn lést vegna sjúk- dómsins.Tímalengd eftirfylgdar í rannsókninni var að meðaltali 5,5 ár. Umræða Faraldsfrœði Langvinn eósínófíl lungnabólga (LEL) er sjald- gæfur sjúkdómur og algengi er ekki vel þekkt. Hefur sjúkdómurinn verið talinn allt að 2,5% af millivefslungnasjúkdómum í hinum ýmsu skrám (2-3). LEL getur komið fyrir í hvaða aldurshóp sem er, en er afskaplega sjaldgæf í börnum (4). Okkar rannsókn er sú fyrsta í heiminum sem 112 Læknablaðið 2007/93

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.