Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 28

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 28
FRÆÐIGREINAR / ÆÐAHIMNUÆXLI Mynd 1 A. Optical coherence tomography (OCT) fyrir leysi- og lyfjameðferð sýnir vess- andi sjónhimnulos og bjúg undir makúlu, sem mœlist 709 pm í þykkt. Optical coherence tomography er nýtt myndgreiningartœki sem sýnir sneiðmynd afsjónhimnu augans í mik■ illi upplausn. Notað er innrautt Ijós til að fá bœði tví- og þrívíddarmyndir af augnbotni og tœkið þarf ekki að snerta augað. Pessi nýja tœkni nýtist vel til að greina, rannsaka og fylgjast með sjúkdómum í augnbotnum (13). B. Optical coherence tomography (OCT) níu mánuðum eftir leysi- og lyfjameðferð sýnir að þykktin á sjónhimnunni er komin niðttr í 197 pm. 0,1 en jókst í 0,25 fimm vikum eftir meðferðina auk þess sem vessandi sjónhimnulos var ekki leng- ur til staðar. Níu mánuðum eftir meðferðina mæld- ist sjónskerpan 0,5 og beyglusjón var horfin. OCT sýndi greinilega minnkun á bjúg undir makúlu (mynd 1B) og var þykkt sjónhimnu komin niður í 197 pm úr 709 pm fyrir meðferðina. Á augnbotna- mynd mátti sjá að æðahimnuæxlið hafði gengið til baka og að miðlægt ör var komið í litþekju eða æðahimnu (mynd 2B). Umræða Æðahimnuæxlum má skipta í tvo hópa, afmörkuð eða dreifð. Vessandi sjónhimnulos er aðalorsök minnkaðrar sjónar (1) og sjást hjá um það bil helmingi sjúklinga með dreift æðahimnuæxli (3). Til skamms tíma var meðferð við æðahimnuæxlum takmörkuð við geislun, sem hefur gefið ófullnægj- andi árangur (1, 4). Undanfarin ár hefur leysi- og lyfjameðferðin verið notuð með góðum árangri hjá sjúklingum með æðahimnuæxli. I samantekt Jurklies og Bornfeld (8) á árangri leysi- og lyfja- meðferðar á æðahimnuæxli kemur meðal annars fram að leysi- og lyfjameðferð með verteporfin hefur ýmsa kosti fram yfir geislun (til dæmis „plaque radiotherapy" og „proton beam“ geislun). Hún er örugg og árangursrík göngudeildarmeð- ferð sem einnig er hægt að nota þegar æðahimnu- Mynd 2 A. Augnbotnamynd fyrir leysi- og lyfjameðferð sýnir sorturek í makúlu. Æðahimnuœxli sést ekki auðveld- lega á tvívíddarmynd af augnbotni. æxli er staðsett undir fovea (8). Einnig virðist langtímaárangur vera góður (8). Fleiri rannsóknir hafa sýnt fram á góð langtímaáhrif leysi- og lyfja- meðferðar á æðahimnuæxli (11, 12). Fimmtán manns með afmarkað æðahimnuæxli fóru í leysi- og lyfjameðferð og minnkaði æxlið hjá þeim öllum auk þess sem sjónskerpan lagaðist verulega hjá 13 einstaklingum og stóð í stað hjá tveimur (11). Við eftirlit 50 mánuðum seinna voru sjúklingarnir ein- kennalausir (11). Lýst hefur verið (12) átta manns nreð æðahimnuæxli og vaxandi sjóntap sem geng- ust undir leysi- og lyfjameðferð. Æxlið minnkaði hjá öllum og sjónskerpan batnaði verulega hjá sjö af sjúklingunum og stóð í stað hjá einum auk þess sem þeir voru allir einkennalausir við eftirlit fimm árum seinna (12). Á síðustu árum hafa komið fram nokkur tilfelli þar sem leysi- og lyfjameðferð með verteporfin lyfi og rauðum leysi hefur borið góðan árangur (1-3,7). Æðamyndunin hefur minnkað, vessandi sjónhimnulos hjaðnað og sjónskerpa lagast (1,3). I fyrsta skráða tilfellinu þar sem þessi leysi- og lyfjameðferð var notuð mældist sjónin á auganu fyrir aðgerðina sem fingurtalning í 0,5 m fjar- lægð auk þess sem sjúklingurinn var með vess- andi sjónhimnulos. Átta vikum eftir meðferðina mældist sjónin 0,05 og hliðarsjón hafði aukist. Sjónhimnulosið hafði gengið til baka og komið var litþekjuör þar sem sjónhimnan hafði lagst að (1), eins og í okkar tilfelli. Samkvæmt ómskoðun hafði þykktin á æðahimnuæxlinu minnkað úr 0,520 mm niður í 0,360 mm (1). í öðru tilfelli hafði 10 ára sjúklingur með 0,5 sjónskerpu á öðru auganu farið í leysimeðferð á húð í andliti (3) eins og okkar sjúklingur. í framhaldinu hrakaði sjónskerpunni hjá sjúklingnum úr 0,5 í 0,2 á mánaðartímabili. Hann var með dreift æðahimnuæxli og vessandi sjón- 120 Læknablaðið 2007/93

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.