Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 30

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 30
FRÆÐIGREINAR / TILFELLI MÁNAÐARINS Tilfelli mánaðarins - nýjung í Læknablaðinu tomasgud@landspitali.is í þessu tölublaði er bryddað upp á nýjung, Tilfelli mánaðarins. Er ætlunin að hafa eitt slíkt tilfelli í að minnsta kosti öðru hverju tölublaði Læknablaðsins. Ákveðið tilfelli er kynnt með stuttri sögu (aðeins nokkrar línur) og síðan sýndar ein til tvær röntgenrannsóknir, myndir af vefja- sýnurn eða ljósmyndir af útbrotum/æxlum og svo framvegis. Einnig kemur til greina að hafa áhuga- verð hjarta- og heilalínurit eða niðurstöður blóð- rannsókna. Læknar geta síðan spreytt sig á þessum tilfellum en aftar í blaðinu eru að finna stutt svör þar sem fram kemur greining og meðferð. Einnig er vísað til ítarefnis. Umsjónarmaður þessa dálks í blaðinu erTómas Guðbjartsson skurðlæknir. Eru læknar hvattir til að hafa samband við hann hafi þeir tilfelli í sínum fórum sem gætu komið til greina sem Tilfelli mánaðarins. Tilfelli mánaðarins 54 ára áður hraustur karlmaður er lagður inn með tveggja vikna sögu um svæsna lungnabólgu í neðri hluta vinstra lunga. Tölvusneiðmynd við komu er sýnd á mynd 1. Þar sem lungnabólgan lét ekki undan kröft- ugri sýklalyfjameðferð var fengin segulómskoðun af brjóst- og kvið- arholi (mynd 2). Hver er greiningin og hvað er besta meðferðin? Svar er að finna á bls. 170 122 Læknablaðið 2007/93

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.