Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 35

Læknablaðið - 15.02.2007, Page 35
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐTAL VIÐ HARALD BRIEM álítur að bólusetningar séu aðgerð gegn móður náttúru og það sé betra að fá smitsjúkdóminn, kannski verði ónæmiskerfið betra á eftir, sumir eru hræddir við aukaverkanir af bólusetningum og aðrir telja jafnvel að með bólusetningum sé verið að ganga gegn guðsvilja.” Umræðan hvort taka eigi upp skyldubólusetn- ingu við HPV tekur þó á sig flóknari myndir en eingöngu trúarlegar eða siðferðilegar eins og Haraldur bendir á. í Bandaríkjunum hefur þeirri skoðun vaxið fiskur um hrygg að foreldrar eigi að ráða því sjálfir hvort þeir láti bólusetja börn sín. Alls kyns kenningar um aukaverkanir bóluefna við ýmsum smitsjúkdómum hafa gengið rnanna á meðal og fiskisögur fljúga nú hraðar og lengra en nokkru sinni fyrr með tilkomu netsins. Hlutfall bólusettra þarf að vera um 90% „Fyrir nokkrum árum var mikill áróður gegn notkun þrígilda bóluefnisins MMR við misiingum, rauðunt hundum og hettusótt. Pví var haldið fram að bóluefnið gæti valdið einhverfu, sykursýki og MS sjúkdómi. Þetta er alls ekki á rökum reist og margar rannsóknir hafa sýnt fram á það að þetta er hrein getgáta. Það var gerð mjög fræg rannsókn í Danmörku sem tekur af allan vafa með einhverf- una en fólk grípur oft svona viðhorf á lofti til að tala gegn bólusetningum. Það er þó misjafnt eftir löndum hvað þessi sjónarmið verða sterk. Þau virðast ná eyrum Breta og Dana betur en annarra í kringum okkur. í Bretlandi hefur þetta leitt til þess að dregið hefur svo úr bólusetningu með MMR bóluefninu að hettusóttar- og mislingafaraldrar hafa farið af stað aftur. Það eru til ákveðnar reikni- reglur sem segja okkur að um 90% barna þurfi að bólusetja til að koma í veg fyrir faraldra. Ef þetta hlutfall fer niður í 60-70% þá er það hrein ávísun á faraldra. Hér á landi eru um 95% barna bólusett á fyrsta ári og MMR bólusetning er í kringum 90%. Það er mjög ásættanlegt. íslenskur almenn- ingur hefur tekið þessu tilboði heilbrigðisyfirvalda mjög vel og því hefur ekki þurft að velta því fyrir sér hvort Iögbinda ætti bólusetningu gegn öðrurn sjúkdómum eftir að bólusóttinni var útrýmt. Ef sú staða kæmi upp að andstaða gegn tilteknum bólu- setningum yrði svo mikil að ekki tækist að þekja nægilegan breiðan hóp með bólusetningunni þá er alveg hægt að hugsa sér að slíkt yrði lögbundið til að korna í veg fyrir faraldur. Almannahagsmunir myndu þar vega þyngra en sjónarmið einstakling- anna. Það er þó ólíklegt að grípa þurfi til slíkra aðgerða því rauðir hundar, mislingar og hettusótt eru allt mjög slæmir sjúkdómar, sem geta valdið heilabólgum, fóstursköðum og dauða í ákveðnum tilvikum. Það færi ekki frant hjá fólki.” Haraldur segir að enn sem komið er að minnsta kosti sé þetta mjög takmarkaður hópur fólks sem er á móti bólusetningum. „Þetta er engu að síður býsna öflug hreyfing á heimsvísu sem heldur úti heimasíðum og beitir þar ýmsum rökum og rangtúlkunum íklædd fræðilegum búningi til þess gerð að afvegaleiða fólk. Við þurfum því að vera stöðugt á varðbergi og nota hvert tækifæri sem við getum til að sannfæra fólk um að bólusetningar séu nauðsynlegar. Það er nú einu sinni svo að eftir því sem bólusetningar eru stundaðar lengur þá vaxa UPP nÝjar kynslóðir sem hafa aldrei séð hvaða afleiðingar þessir sjúkdómar hafa. Þeir sem svo taka við við rökum þeirra sem vilja ekki bólusetn- ingar og láta ekki bólusetja börnin sín telja það rök í málinu að börnin hafi ekki fengið sjúkdóm- inn. Staðreyndin er auðvitað sú að enn er það hóp- bólusetningin sem er að vernda þá fáu sem ekki eru bólusettir. Ef þeim óbólusettu fjölgar um of þá verður bólusetningin nægilega gisin til að faraldur brjótist út. Þetta sást vel í Sovétríkjunum gömlu þar sem bólusetningaráætlanir fóru úr böndum og upp gusu faraldrar af mislingum, barnaveiki, og rauðurn hundum. Annað dæmi öllu nærtækara er hettusóttarfaraldur sern hér gekk 2005-2006 og átti upptök sín í Bretlandi. Þá veiktust hér á landi tæplega 200 einstaklingar af hettusótt og voru langflestir þeirra óbólusettir. Það þarf því í rauninni ekki að velta þessu neitt sérstaklega fyrir sér eða finna rök með eða á móti bólusetningum. Staðreyndin er einfaldlega sú að þegar um alvarlega smitsjúkdóma er að ræða þá brjótast út faraldrar ef hlutfall bólusettra fer niður fyrir 80-90% af heildinni. Því hefur verið haldið fram að foreldrar sem vilja ekki að börnin þeirra séu bólusett gangi á siðferðilegan rétt barnsins til heilbrigðs lífs.” Haraldur segir að þegar teknar eru ákvarðanir í dag um hvort hefja eigi bólusetningu við sjúkdómi sem ekki hefur verið bólusett við áður þá þurfi að skoða það mál mjög vandlega. „Það þarf að vega og meta ávinninginn af bólu- setningunni í hverju tilviki fyrir sig. Hér áður þegar bólusetningar voru almennt að hefjast gegn helstu smitsjúkdómum þá var ávinningurinn svo augljós að ekki þurfti að velta því mikið fyrir sér. Þá er ég að tala urn bólusótt,barnaveiki,stífkrampa,mænu- veiki, mislinga, rauða hunda og hettusótt. Fyrir rúmum fjórum árum var hafin allsherjar bólusetn- ing gegn heilahimnubólgu af meningókokka gerð C og þá var gerð kostnaðargreining sern leiddi í Ijós að ávinningurinn var ótvíræður. Einnig þarf að meta hugsanlegan ávinning af bólusetningu gegn HPV veiru, pneumókokkum og hlaupabólu.” Læknablaðið 2007/93 127

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.