Læknablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 36
UMRÆÐA & FRETTIR / HEILBRIGÐISFRUMVARP
Lögleysa leidd
Hávar
Sigurjónsson
Menn lágu ekki á skoðun sinni á frumvarpi til heil-
brigðisþjónustu á fundi Læknafélags Reykjavíkur
þann 17. janúar sl. Fundu menn frumvarpinu flest
ef ekki allt til foráttu og þegar einn mælenda tók
svo til orða að ekkert væri gott við frumvarpið
nema fyrsta greinin gall samstundis við úr salnum:
Fyrsta greinin er ekki góð heldur!
Til fundarins var boðið öllum læknum á landinu
og var hann fjölsóttur en auk lækna sátu fund-
inn nokkrir þingmenn úr heilbrigðis- og trygg-
inganefnd Alþingis. Nefndin hefur frumvarpið
nú til umfjöllunar og mátti heyra á þingmönnum
sem tóku til máls á fundinum að þeim væri ljóst að
rnikil andstaða væri við frumvarpið meðal lækna,
ekki síst lækna á Landspítala, og væntanlega yrði
tekið tillit til þeirrar óánægju við endurskoðun
frumvarpsins áður en það verður lagt fram í
þinginu síðar í vetur. Er talað um að frumvarpið
eigi að verða að lögum fyrir þinglok sem verða
óvenju snemma í vor vegna alþingiskosninganna
í maí.
Athugasemdum þeim sem fram komu má
skipta í tvennt. Annars vegar eru almennar at-
hugasemdir sem beinast að því að með frumvarp-
inu er vald ráðherra aukið til muna, frumvarpið
sjálft er almennt orðað í flestum greinum og með
nánari útfærslu er vísað til reglugerðarheimilda
heilbrigðisráðherra. Benti Gunnar Ármannsson
framkvæmdastjóri Læknafélags Islands á að með
þessu væri ráðherrann í rauninni gerður alvaldur
í heilbrigðismálum og tæpasl hægt að reikna með
því að þann stól vermdi framsóknarmaður til ei-
lífðar þó flokkurinn hefði haldið stólnum mörg
undanfarin ár. Gall þá við í Guðjóni Ólafi Jónssyni
þingmanni Framsóknarflokksins og formanni heil-
brigðisnefndar Alþingis: Eigum við ekki bara að
festa það í lögunum líka? Líklega var þetta tilraun
til gamansemi en fundarmönnum var þó ekki hlát-
ur í hug þegar þeir gengu í pontu hver af öðrum
og lýstu skoðun sinni tæpitungulaust. Aðrar at-
hugasemdir sem fram komu beindust sérstaklega
að þætti Landspítala í frumvarpinu en þar er vald
forstjóra aukið til muna, dregið úr fjárhagslegri
ábyrgð lækna, Læknaráð í rauninni lagt niður og
stjórnarnefnd spítalans einnig.
Páll Torfi Önundarson gerði grein fyrir at-
hugasemdum Læknaráðs sem fékk frumvarpið
til umsagnar í vetur og hefur nýlega skilað grein-
argerð til heilbrigðisnefndar Alþingis.
Dýrkeypt tilraun
„Einkennandi fyrir núgildandi lög, sem ég tel að
mörgu leyti góð, er að í þeint er skilgreind fagleg
ábyrgð og hvernig ábyrgðin eigi að skiptast,”
sagði Páll Torfi í upphafi máls síns. Hann rakti
síðan með skýringarmyndum hvernig stjórnskipan
Landspítala væri háttað og sýndi síðan hvernig
Þingmennirnir,
Kristján Möller, Ásta R.
Jóhannesdóttir, Guöjón
Ólafttr Jónsson og Ásta
Möller voru mœtt til að
meðtaka skoðanir lœkna á
frumvarpinu til Iteilhrigð-
isþjónustu.
Fundarsókn har með sér
greinilegan áhuga lœkna á
efni fundarins.
1 W) tiilí
á w . £ j l ? i
128 Læknablaðið 2007/93