Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2007, Síða 37

Læknablaðið - 15.02.2007, Síða 37
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILBRIGÐISFRUMVARP mætti hugsa sér annars konar skipurit þar sem áherslan væri á faglega og fjárhagslega ábyrgð yfirlækna og öryggi og velferð sjúklinga væri í fyr- irrúmi. í athugasemdum Læknaráðs við frumvarp- ið er lögð áhersla á eftirfarandi atriði: Abyrgð lækningaforstjóra á lækningastarfsemi þarf að vera skýr. Fagleg og rekstrarleg ábyrgð yfir starfsemi sérgreina læknisfræðinnar þarf að vera skýr í lögum. Faglegt ráðningarferli þarf að vera vel skilgreint í allar stöður yfirlækna og sérfræði- lækna á háskólasjúkrahúsum og auglýsa þarf allar stöður. Hlutverk framkvæmdastjórnar þarf að vera vel skýrt og vel afmarkað frá faglegum rekstri sérgreina læknisfræðinnar. Ráðgefandi hlutverk Læknaráðs þarf áfram að vera skýrt. Síðan segir í athugasemdum Læknaráðs: „Pessi þættir eru skýrir í núgildandi lögum en ekki í fyr- irliggjandi lagafrumvarpi, sem fellir t.d. niður laga- greinar um yfirlækna án þess að getið sé um það í athugasemdum sem fylgja frumvarpinu. I raun er um að ræða frumvarp til laga sem veitir for- stöðumönnum og ráðherra heimild til að byggja upp stjórnskipulag ríkisrekinna sjúkrastofnana að eigin vild en ekki frumvarp um faglega uppbygg- ingu heilbrigðisþjónustunnar. Læknaráðið telur í raun svo mörgu vera ábótavant í því frumvarpi sem fyrir liggur, að skoða ætti hvort l'resta ætti frumvarpinu og vísa til nefndar að nýju.” Páll Torfi færði rök fyrir því að með því að svipta yfirlækna sérsviðanna fjárhagslegri ábyrgð væri í rauninni verið að svipta þá faglegri ábyrgð að hluta. „Með því koma þeir engu í verk. Þeir þurl'a að leita leyfis til sviðsstjóra fyrir öllum fjár- útlátum hversu fagleg eða lítilfjörleg sem þau eru og boðleiðirnar verða sífellt lengri. íslenskir sérfræðilæknar hafa stundað nám og störf við sjúkrahús víða um heim. Þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu. A Landspítala starfa 398 sér- fræðilæknar í 40 sérgreinum. Við teljum ekki að það sé nauðsynlegt að gera tilraun á íslandi með Umsögn Læknafélags íslands um frumvarp til laga um heilbrigöisþjónustu, 272. mál og frumvarp til laga um embætti landlæknis, 273. mál Stjórn Læknafélags íslands (LÍ) þakkar fyrir að vera beðin um umsögn um ofangreind mál. Stjórn LI skipaði í nóvember nefnd fjögurra lækna til að semja drög að áliti félagsins um efnið. I nefndina voru skipaðir Björn Magnússon, Ernil L. Sigurðsson, Gísli H. Sigurðsson og Kristján Guðmundsson. Þeim til aðstoðar og ritari nefndarinnar var Gunnar Armannsson hdl. Nefndin hefur skilað áliti sínu og er það meðfylgjandi. Á fundi sínum þann 16. janúar sl. ákvað stjórn LI að gera álit nefndarinnar að sínu fyrir hið háa Alþingi með einni undantekningu. Samantekt • Tilgangur frumvarpsins er sagður vera að setja ráðherra og öðrum skýran lagaramma til að starfa eftir. o ífrumvarpinueraðfinna 15reglugerðarheimildirþarsemráðherra er falið að fylla upp í hinn „skýra“ lagaramma. o Ráðherra er ætlað að marka stefnuna innan hins skýra laga ramma. o Ráðherra skal gæta þess að gera samninga um heilbrigðisþjón- uslu í samræmi við hina mörkuðu stefnu sem hann sjálfur skal marka. o Ef það er ætlun löggjafans að heilbrigðisráðherra ráði einn einum veigamesta og fjárfrekasta málaflokki landsmanna er eðlilegt að l'rá því sé greint í athugasemdum með frumvarpi til laga urn heilbrigðisþjónustu en ekki falið í þeim búningi að verið sé að setja ráðherra skýran lagaramma til að starfa eftir. • Forstöðumönnum er falið mikið vald og ábyrgð en engar hæfnis- kröfur eru gerðar til þeirra í frumvarpinu. • Dregið er úr faglegri ábyrgð heilbrigðisstétta í frumvarpinu. • Heilbrigðisþjónusta er í heild sinni undanskilin reglum samkeppn- isrétlarins. • Hagsmunir stofnana ríkisins og forráðamanna þeirra eru settir í öndvegi á kostnað hagsmuna og öryggis sjúklinga. • Lagt er til að afgreiðslu frumvarpsins verði frestað til að unnt verði að vinna það betur. Læknablaðið 2007/93 129

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.