Læknablaðið - 15.02.2007, Page 59
AUGLÝSINGAR
Aðalfundur Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélag íslands
Haldinn í tengslum viö árlegt vísindaþing Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélag
íslands á Hótel Sögu, föstudaginn 30. mars kl. 18.
Dagskrá hefðbundin aðalfundarstörf.
f.h. stjórnar Svæfinga- og gjörgæslulæknafélag íslands
Sigurbergur Kárason, formaður
fea
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Sérfræðingur í endurhæfingarlækningum
Laus ertil umsóknar staða sérfræðings í endurhæfingarlækningum við endurhæfingardeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri en deildin er til húsa í Kristnesi sem er um 10 km sunnan við Akureyri.
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í endurhæfingarlækningum. Starfinu fylgir vaktskylda við endurhæfingardeild-
ina en jafnframt við öldrunarlækningadeild sem er í Kristnesi. Þá fylgir starfinu þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta,
þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk þátttöku í rannsóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norður- og
Austurlandi.
Til greina kemur að ráða lækni án sérfræðiréttinda í endurhæfingarlækningum sem hefur áhuga á starfa við endurhæf-
ingu.
Á endurhæfingardeildinni eru 27 rými, 19 legurými og 8 dagrými. Ráðgert er að auka göngudeildarþjónusta enn frekar.
Nú er einn læknir í fullu starfi á deildinni auk sérfræðings í taugasjúkdómum í 10% stöðu.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum til samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnu-
bragða.
Starfskjör fara eftir kjarasamningi Læknafélags íslands við fjármálaráðuneytið.
Staðan veitist frá 1. ágúst 2007 eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2007.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt meðfylgjandi gögnum, skulu berast í tvíriti til Þorvaldar Ingvarssonar,
framkvæmdastjóra lækninga, FSA, 600 Akureyri, sími 463 0100, thi@fsa.is og gefur hann nánari upplýsingar ásamt
Ingvari Þóroddssyni, yfirlækni endurhæfingardeildar í síma 463 0100, ingvarth@fsa.is
Öllum umsóknum verður svarað.
Læknablaðið 2007/93 151